Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2012, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2012, Blaðsíða 16
„Þú munt ekki lifa Þetta af“ 16 Fréttir 21.–27. desember 2012 Jólablað Annþór og Börkur sakfelldir n „Þetta eru mikil vonbrigði og ég geri ráð fyrir að áfrýja“ A nnþór Kristján Karlsson var á fimmtudag sakfelldur í héraði ásamt Berki Birgissyni og átta öðrum karlmönnum fyrir sér- staklega hættulegar líkamsárásir, til- raun til fjárkúgunar, og fyrir ólögmæta nauðung og frelsissviptingu. Annþór fékk þyngsta dóminn af öllum, sjö ára fangelsi. Næstþyngsta dóminn hlaut Börkur en hann var á fimmtudaginn dæmdur í sex ára fangelsi. „Ég er mjög ósáttur við þennan dóm. Þetta eru mikil vonbrigði og ég geri ráð fyrir að áfrýja,“ sagði Ingi Freyr Ágústsson, verjandi Barkar, er dómur féll í málinu. Þeir voru með- al annars dæmdir fyrir að hafa ráð- ist á fjóra menn í íbúð í Mosfells- bæ og veist að þeim með bareflum; golfkylfum, handlóðum og sleggju. Annþór og Börkur veittust einnig að tveimur öðrum mönnum en í öðru tilfellinu neyddu þeir vin fórn- arlambsins til þess að kasta þvagi yfir hann. Annþór var að auki dæmdur fyrir að ráðast á tvo menn á sólbaðs- stofu í Hafnarfirði, annan tók hann kverkataki þar til hann missti með- vitund en Annþór reyndi að kúga mennina til þess að greiða sér 500 þúsund krónur. Átta aðrir voru dæmdir fyrir að- ild sína að árásunum. Jón Ólafur Ró- bertsson, Smári Valgeirsson og Viggó Emil Berglindarson fengu tveggja ára dóma. Kaj Anton A. Larsen, Viktor Hrafn Einarsson, Sigmund- ur Geir Helgason og Sindri Krist- jánsson fengu átján mánaða dóma. Þórbergur Ísak Þóroddsson fékk 15 mánaða dóm. Þeim var öllum gert að greiða máls- og sakarkostnað, sem var í flestum tilfellum á bilinu 1,2 til 1,5 milljónir. Annþór hefur frá ár- inu 1993 hlotið tíu refsidóma, meðal annars fyrir skjalafals, þjófnað, grófa líkamsárás, húsbrot, frelsissviptingu og fíkniefnabrot. Börkur var dæmd- ur í sjö ára fangelsi árið 2005 fyrir að slá mann með öxi, en sá dómur var einnig fyrir fleiri brot, meðal annars margar líkamsárásir. n Ungur maður sem kærði Börk til lögreglu hótað n Aldrei rólegur U ngum manni sem lagði fram kæru á hendur Berki Birgissyni hefur verið hótað af mönnum sem hann segir tengjast Berki. Maðurinn fór til lögreglunn- ar og lagði fram kæru á hendur Berki fyrir hótanir, fjárkúgun og líkamsárás sem hann á að hafa orðið fyrir af hans hálfu. Mál- ið var sent af lögreglu til ríkissak- sóknara sem sendi málið aftur til lögreglu til frekari rannsókna fyrir um mánuði. Eins og sjá mér hér að neðan hefur Börkur verið dæmdur í sex ára fangelsi fyrir sérstaklega hættulegar líkamsárásir, ólög- mæta nauðung og fjárkúgun sem hann framdi í félagi við Annþór Kristján Karlsson. Annþór hlaut sjö ára fangelsisdóm. Ungi maðurinn segir í samtali við DV að hann hafi ákveðið að kæra Börk eftir að fjölmiðlar fjöll- uðu um handtöku hans og Ann- þórs og að fleiri fórnarlömb hefðu stigið fram og ákveðið að kæra. Fyrirsát við vinnustaðinn Maðurinn er nú í hálfgerðum fel- um og bíður þess að mál hans verði tekið fyrir hjá dómstólum. „Ég segi ekki mörgum hvar ég er og það eru aðeins nánustu vinir mínir og fjölskylda sem vita sím- ann hjá mér.“ Varðandi hótanirn- ar sem honum hafa borist segir hann þær hafa verið með marg- víslegum hætti. „Það hefur verið setið fyrir mér fyrir utan vinnustað minn sem gerði það að verkum að ég gat ekki farið í vinnuna í nokkra daga. Það hefur nokkrum sinnum verið hringt í mig og þá alltaf úr tí- kallasíma þar sem mér hefur ver- ið hótað lífláti. Í einu símtalinu var sagt við mig: Þú munt ekki lifa þetta af.“ Aldrei rólegur Þrátt fyrir hótanirnar segist hann reyna að lifa eðlilegu lífi. Það hafi verið persónulegur sigur að hafa stígið fram og kært Börk fyr- ir ofbeldið. „Óttinn er alveg undir niðri en ég reyni að láta hann ekki stjórna mér. En maður er alltaf var um sig og getur farið að taka alls konar hlutum sem hótunum. Eitt skipti var ég inni í bílskúr hjá for- eldrum mínum þegar ég sá lamb- húshettu í felulitum, líka þeirri sem Börkur notar til að fela andlit sitt í dómsal, liggja á á gólfinu. Ég fyllt- ist mikilli hræðslu og ég hélt að ein- hverjir menn á vegum Barkar hefðu komið henni þarna fyrir til þess að ógna mér. Svo reyndist þetta vera lambhúshettan hans pabba sem hafði dottið á gólfið. En maður er aldrei rólegur.“ Fer óhræddur í dómsal Maðurinn segist hafa hafið nýtt líf en hann var áður í óreglu og komst þannig í kynni við Börk. „Ég vona að mál mitt fari fyrir dómstóla og að Börkur verði dæmdur, því fyrir mér markar það upphafið að nýju tímabili.“ Hann segist ekki hræð- ast tilhugsunina að mæta Berki fyr- ir dómi. „Nei, ég er ekki hræddur. Ég er búinn að sjá þetta fyrir mér svo ótal mörgum sinnum í hugan- um og ég ætla að mæta honum og sýna honum að það er ekki hægt að hræða mig til þess að þegja. Hann getur ekkert gert ef hann er í fang- elsi.“ En ef hann fær ekki fangels- isdóm? „Þá flyt ég sennilega úr landi.“ Karl Ingi Vilbergsson aðstoðar- saksóknari staðfesti við DV að mál- ið hafi verið sent aftur til lögreglu til frekari rannsóknar. n „Ég ætla að mæta honum og sýna honum að það er ekki hægt að hræða mig til þess að þegja Í dómsal Maðurinn kærði Börk Birgisson fyrir hótanir, fjárkúgun og líkamsárás. Má aldrei aka aftur Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur svipt 26 ára karlmann ökuleyfi ævilangt, dæmt hann í 45 daga fangelsi og til greiðslu 160 þúsund króna sektar til ríkissjóðs. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa sunnu- daginn 1. janúar síðastliðinn ekið undir áhrifum amfetamíns, kókaíns og kannabisefna en lögregla stöðv- aði för hans á Bústaðavegi í Reykja- vík. Maðurinn var þegar svipt- ur ökuréttindum þegar hann var stöðvaður. Þann 1. júní var hann síðan stöðvaður á Akureyri og var hann þá einnig undir áhrifum fíkni- efna og enn og aftur án ökuréttinda. Hann var handtekinn skömmu síð- ar eftir að hann neitaði lögreglu um þvagsýni fyrir rannsókn málsins. Í bifreið hans fundust 0,8 grömm af tóbaksblönduðu kannabisefni. Langur afbrotaferil Annþór og Börkur hafa hlotið marga dóma. Ákærður Mál Sævars Óla Helgasonar var tekið fyrir í héraðsdómi á fimmtudag en hann er ákærður fyrir húsbrot og eignaspjöll á ráðherrabústaðnum að Tjarnar- götu 32. Honum er gefið að sök að hafa fimm sinnum brotið rúðu í húsinu, en hann er sagð- ur hafa gert það til að kom- ast þar inn. Brotin varða allt að tveggja ára fangelsi. Athygli vek- ur að Sævar Óli var með skráð lögheimili í ráðherrabústaðnum að Tjarnargötu 32 þegar þessi meintu brot áttu að hafa verið framin. Sólveig J. Guðmunds- dóttir hjá Þjóðskrá segir að lögin séu þannig að hver sem er geti skráð sig til heimilis hvar sem er. Ráðherrabústaðurinn hafi verið skráður sem einbýlishús og því gat hann átt lögheimili þar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.