Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2012, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2012, Side 20
olíufurstar græða 20 Fréttir 21.–27. desember 2012 Jólablað B ensínlítrinn kostar umtals­ vert meira en hann gerði árið 2008 með tilliti til vísi­ tölu neysluverðs. Í janúar árið 2008 kostaði ódýrasti bensínlítrinn 134,5 krónur en í dag kostar hann rúmar 245,7 krónur þar sem hann er ódýrastur. Verð­ lag hefur hækkað um 42,63 prósent samkvæmt Hagstofunni en bensín­ lítrinn um 83 prósent. Í saman­ burði við heimsmarkaðsverð á eldsneyti kemur í ljós að hækkunin fer að litlu leyti til ríkisins og olíu­ félaganna sjálfra. Álagning hækkar í takt Líkleg álagning olíufélaganna á bensínlítrann hefur hækkað í takt við verðlagsbreytingar og hafa þau því að raunvirði lítið meira upp úr hverjum lítra en áður. Árið 2008 var álagning líklega 26 krónur á hvern lítra en í dag er hún rúmlega 36 krónur á lítrann. Sé álagning frá 2008 uppreiknuð miðað við verð­ lagsþróun kemur í ljós að lítrinn gæti kostað einni krónu meira í dag ef hann hefði fylgt verðlags­ þróun nákvæmlega. Olíufélögin hafa hins vegar á tímabilinu fengið meira fyrir sinn snúð en þau gera eins og dæmið er í dag. Álagning olíufélaganna hefur nefnilega sveiflast mikið samkvæmt fyrirliggjandi útreikn­ ingum hjá bæði Félagi íslenskra bifreiðaeigenda og Datamarket. Mest hefur álagning farið upp í 41,61 krónu, í júlí síðastliðnum en miðað við þróun vísitölu neyslu­ verðs hefði álagning þá staðið í tæplega 36,6 krónum, eða verið fimm krónum lægri hefði álagning fylgt nákvæmlega vísitölunni. Heimsmarkaðsverð áhrifamest Áhrifamesti þátturinn í hækkun­ inni er innkaupsverð á eldsneyti en það er keypt á erlendum mörkuð­ um. Líklegt innkaupsverð á bensíni hefur hækkað um tæp 128 prósent á tímabilinu janúar til desember, eða um fimmtíu krónur. Gengi ís­ lensku krónunnar gagnvart Banda­ ríkjadal hefur líka áhrif á hversu hátt heimsmarkaðsverð á bensíni er fyrir íslensku olíufélögin og er því ekki sjálfgefið að þó að heims­ markaðsverðið hækki eða lækki á mörkuðum að það hækki eða lækki til jafns gagnvart félögunum vegna gengisþróunarinnar á sama tíma. Í gögnum sem Datamarket birtir á vefsíðu sinni kemur fram hvern­ ig bensínverð skiptist í hlutföllum. Skipting var í byrjun mánaðarins á þá leið að almennt bensíngjald er 9,89 prósent, sérstakt bensín­ gjald 15,98 prósent, kolefnisgjald 2,02 prósent, virðisaukaskatt 20,32 prósent, innkaupaverð 37,12 pró­ sent og svo flutningar, tryggingar og álagning 14,66 prósent. Hlutur ríkisins lægri Samkvæmt gögnunum hefur hlutur ríkisins í bensínverði minnkað frá því sem hann var í upphafi árs 2008. Hluturinn hækkaði þó um tíma og fór hæst í 53,1 prósent. Hlutur rík­ isins hefur verið um helmingur af útsöluverði bensíns og ríkissjóður því sá aðili sem græðir langmest á hverjum seldum bensínlítra. Álögur á bensíni hafa lengi ver­ ið þrætuepli á milli stjórnmála­ manna og almennings. Hluti skatt­ heimtunar er reiknaður sem hlutfall af bensínverði en hluti föst krónu­ tala. Hækkanir á bensínverði geta því leitt til hærri gjalda sem neyt­ endur greiða af lítranum til ríkis­ ins sem svo aftur skilar sér í hækk­ un á vísitölu neysluverðs sem hefur í mörgum tilfellum bein áhrif á lán landsmanna. Þetta gerir það einnig að verkum að við hækkun á bensín­ verði lækkar hlutur ríkisins í hverj­ um lítra. n n Verð á bensíni skýrist mest af hækkandi heimsmarkaðsverði n Ríkið og olíufélög fá það sama Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is 300 250 200 150 100 50 0 2008 2009 2010 2011 2012 Bensínverð: Samsetning Eining: Krónutala (ISK) Skiptingin Hér má sjá hvernig bensínverð hefur skipst á milli ríkisins og annarra aðila. Þeir sem tilheyra hópnum aðrir aðilar eru meðal annars olíufélögin og olíuframleiðendur. Tölurnar eru ekki uppreiknaðar á verðlagi dagsins heldur sýna hvernig verðið hefur þróast óháð verðlagi. n Hlutur ríkisins n Hlutur annarra

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.