Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2012, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2012, Blaðsíða 24
24 Erlent 21.–27. desember 2012 Jólablað U ng afgönsk kona, Aesha Mohammadzai, sem varð fyrir hrottalegum pynting- um í heimalandi sínu af hálfu eiginmanns síns er á góðum batavegi. Eins og sést á meðfylgjandi myndum afmyndað- ist Aesha í andliti þegar hún hót- aði að yfirgefa ofbeldisfullan eig- inmann sinn. Athygli er vakin á því að lýsingarnar í þessari frétt kunna að vekja óhug enda um fólsku- legt ofbeldi að ræða. Á undanförn- um misserum hefur Aesha gengist undir nokkrar vel heppnaðar að- gerðir í Bandaríkjunum en þangað flutti hún fyrir tveimur árum til að hefja nýtt og betra líf. Óttaðist spegilmyndina „Í dag er mér alveg sama,“ sagði Aesha, sem er 21 eða 22 ára, í viðtali við bandaríska fréttamiðilinn CNN á dögunum þegar hún var spurð hvort hún óttaðist að líta í speg- il. „Allir glíma við einhvers konar vandamál. Til að byrja með óttað- ist ég spegilmynd mína. Ég óttað- ist hvað yrði um mig í framtíðinni en ég óttast ekkert lengur. Núna skil ég tilgang lífsins og hvernig á að lifa því. Í Afganistan gerði ég það ekki,“ sagði hún. Aesha sagði sögu sína fyrst í eftirminnilegu forsíðuviðtali við bandaríska blaðið Time í ágúst 2010 þar sem mynd af afmynduðu and- liti hennar birtist á forsíðu. Þegar hún var 12 ára seldi faðir henn- ar hana í hjónaband með talíbana vegna fjárhagsvandræða. Fljótlega eftir að sambúð hennar og eigin- manns hennar hófst fór að bera á miklu andlegu og líkamlegu ofbeldi og var hún til dæmis látin sofa með dýrum í gripahúsi eiginmanns síns. Hún komst ekki langt þegar hún reyndi að flýja undan eiginmanni sínum. Hann náði henni og skar af henni nefið og eyrun í hefndarskyni. Hún var skilin eftir úti í óbyggðum en tókst við illan leik að komast til afa síns sem bjó í nágrenninu. Góðar horfur Aeshu var komið undir hendur bandarískra lækna í Afganistan og lá hún inni á sjúkrastofnun í tíu vik- ur. Í kjölfarið sáu góðgerðasamtök til þess að hún kæmist undir lækn- ishendur í Bandaríkjunum. Eft- ir að hafa legið inni á sjúkrahúsi þar í nokkra mánuði fluttist hún til fósturfjölskyldu í Maryland-ríki. Nú, tveimur árum síðar, hef- ur Aesha gengist undir fjölmargar lýtaaðgerðir og er óhætt að segja að árangurinn af þeim lofi góðu. Hún á þó enn eftir að gangast undir fleiri aðgerðir og er enn langur vegur framundan. Fyrir skemmstu gekkst hún undir aðgerð sem miðaði að því að búa til húðvef sem nýttur verður í enduruppbyggingu á nefi hennar. Það var gert með því að koma fyrir sílikonpúða undir enni hennar en þannig verður til um- framhúðvefur sem skorinn verður burt og komið fyrir á nefinu. Næsta skref verður að taka brjóskvef við eitt af rifbeinum hennar sem not- aður verður í enduruppbygingu á nefinu. Sex mánuðir eftir Aesha hefur undanfarin misseri búið hjá hjónunum Mati og Jamilu Arsala sem tóku hana að sér og hugsa um hana sem eigin dóttur. Þau eiga fimmtán ára stúlku, Mienu Ahmadzai, og er henni og Aeshu vel til vina. Þrátt fyrir að vera á góð- um batavegi er sem fyrr segir lang- ur vegur framundan. Læknar töldu ráðlagt að fresta lýtaaðgerð á nefi hennar þar sem þeir töldu að hún væri ekki tilbúin andlega undir þá löngu og ströngu meðferð sem beið hennar. Eftir komuna til Banda- ríkjanna sýndi Aesha miklar skap- sveiflur og þjáðist einnig af þung- lyndi. Nú er aðgerðin hins vegar hafin og er áætlað að Aesha ljúki meðferð sinni innan sex mánaða og þurfi eftir það ekki að gangast undir frekari aðgerðir. n Í bataferli Undir enni Aeshu eru sílikonpúðar sem gera það að verkum að umframhúð myndast. Hún verður nýtt til að endurbyggja nef hennar. Á forsíðunni Aesha birtist á eftirminni- legri forsíðu Time-tímaritsins árið 2010. Með fjölskyldunni Aesha býr hjá fósturfjölskyldu í Maryland. Hér er hún með fóstur- móður sinni og systur. Ekki lengur hrædd við að líta í spegil n Varð fyrir fólskulegu ofbeldi í Afganistan n Fékk nýtt líf í Bandaríkjunum „Núna skil ég tilgang lífsins og hvernig á að lifa því Einar Þór Sigurðsson blaðamaður skrifar einar@dv.is Virki breytt í lúxushótel Gamalt varnarvirki sem stendur úti fyrir ströndum Bretlands hefur fengið nýtt hlutverk og er orðið að nokkurs konar lúxushóteli. Virk- ið sem um ræðir var byggt fyrir 134 árum og var hugsað til að verjast mögulegri innrás Frakka. Stein- veggir virkisins eru hvorki meira né minna en 4,5 metrar á þykkt. Endurbæturnar á virkinu kostuðu þrjár milljónir punda, eða rúmar 600 milljónir króna, og samanstend- ur það núna af níu lúxusherbergj- um, veitingastað, heitum potti og sólbaðsaðstöðu svo fátt eitt sé nefnt. Nóttin á þessu nýja hóteli kostar um 70 þúsund krónur en ef 18 manns leigja hótelið saman kostar nóttin eina milljón króna. „Við höfum haft opið í fimm mánuði og móttökurn- ar hefðu ekki getað verið betri,“ segir Mark Watts, eigandi hótelsins. „Sjúkt að þetta skuli gerast“ Hrottaleg hópnauðgun á 23 ára konu í strætisvagni í Nýju-Delí á Indlandi hefur vakið mjög hörð við- brögð þar í landi. Fjölmargir mót- mæltu á götum borgarinnar í vik- unni og kröfðust þess að yfirvöld tækju harðar á ofbeldi gegn konum en tíðkast hefur. Beinist gagnrýnin að lögreglunni sem virðist taka á at- vikum sem þessu með nánast silki- hönskum – sérstaklega þegar fórn- arlömbin eru konur. Atvikið, sem átti sér stað á sunnudag, hefur einnig verið rætt á indverska þinginu og vilja sum- ir þingmenn ganga svo langt, að dæma þá einstaklinga til dauða, sem gerast sekir um nauðgun. Atvik- ið í strætisvagninum á sunnudags- kvöld hefur vakið mikla athygli en fleiri hópnauðganir hafa þó verið til- kynntar til lögreglu á Indlandi í vik- unni. Í einu tilviki lést fórnarlambið, 10 ára barn, af sárum sínum. Konan sem varð fyrir ofbeldinu í strætisvagninum í Nýju-Delí er enn á sjúkrahúsi og er hún sögð vera lífshættulega slösuð. Að sögn lög- reglu réðust sex menn á konuna og vin hennar og beittu þau hrotta- legu ofbeldi og beittu þeir meðal annars járnstöngum. Konunni og vini hennar var svo hent út úr vagn- inum og þau skilin eftir á víðavangi, nakin og illa slösuð. „Það er sjúkt að þetta skuli gerast í okkar landi,“ sagði Smitha, 32 ára mótmælandi, í samtali við AP-fréttastofuna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.