Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2012, Side 25
n Varð fyrir fólskulegu ofbeldi í Afganistan n Fékk nýtt líf í Bandaríkjunum
Ofbeldisplága í
bandaríkjunum
n Obama felldi tár vegna morðanna í Newtown n 10.000 falla árlega vegna byssuofbeldis
V
ið getum ekki haft þetta
svona lengur, er þetta kostn-
aðurinn fyrir frelsið? Þannig
komst Barack Obama, forseti
Bandaríkjanna, að orði í smá-
bænum Newtown í Bandaríkjunum í
vikunni – bæ á stærð við Kópavog þar
sem búa aðeins um 27.000 manns.
Adam Lanza sá til þess föstudaginn
14. desember að nafn bæjarins verð-
ur greypt í sögu Bandaríkjanna eftir
hið hræðilega fjöldamorð sem hann
framdi í einum af grunnskólum bæj-
arins. Þar myrti hann með köldu
blóði 20 börn á aldrinum 5–7 ára og
sjö fullorðna. Áður en hann fór í skól-
ann myrti hann móður sína, Nancy
Lanza. Samkvæmt Huffington Post
voru vopnin sem Adam notaði við
voðaverkin skráð á móður hans. Fjöldi
vopna var skráður á hana.
Vopnið sem Lanza notaði var hálf-
sjálfvirkur hríðskotariffill, Bushmast-
er, sem er nokkurs konar almennings-
útgáfa af bandaríska M4-herrifflinum
sem bandarískir hermenn nota að
staðaldri í stríðsrekstri Bandaríkjanna
víða um heim.
Fordæming um allan heim
Viðbrögð umheimsins hafa einkennst
af fordæmingu, en þótt ótrúlegt megi
virðast hefur sala á rifflum og skot-
vopnum aukist eftir ódæðið. Vegna
þess að nú er búist við að löggjöf um
skotvopn verði hert í Bandaríkjunum. Í
frétt í The Guardian er sagt frá „stjarn-
fræðilegri söluaukningu“ á sumum
tegundum skotvopna.
Í augum Bandaríkjamanna er
stjórnarskrá þeirra nánast heilagt
plagg. Hún tók gildi árið 1787 í kjöl-
far sjálfstæðisbaráttunnar sem inn-
flytjendur Bandaríkjanna háðu mest-
megnis gegn nýlenduveldi Breta.
Önnur grein bandarísku réttinda-
skrárinnar (e. The Bill of Rights) veitir
borgurum Bandaríkjanna rétt til þess
að eiga og bera skotvopn og í þessu
sama ákvæði segir að þennan rétt
megi ekki skerða.
Þetta ákvæði hefur óspart verið
notað af fylgismönnum vopnaeignar
í Bandaríkjunum, enda er það svo að
skotvopn í eigu Bandaríkjamanna eru
nánast jafnmörg og íbúarnir, eða um
300 milljónir. Um 9.000–10.000 manns
falla árlega vegna glæpa þar sem sem
skotvopn eru notuð, eða um 30 á dag,
meira en einn á klukkustund. Það má
því með sanni segja að Bandaríkin séu
samfélag sem er gegnsýrt af byssuof-
beldi. Samkvæmt Daniel Webster, sér-
fræðingi sem New York Times ræddi
við, er beint samband á milli vopna-
eignar og fjölda morða í Bandaríkjun-
um. Því fleiri skotvopn, því fleiri morð
og sjálfsmorð.
Breytingar á skotvopnalöggjöf?
En er líklegt að eitthvað breytist í
þessum málum í kjölfar ódæðisins í
Newtown? Það er ekki ástæða til bjart-
sýni í þeim efnum. Í kjölfarið á hverj-
um harmleiknum á fætur öðrum, þar
sem saklausir borgarar, oft skólafólk,
eru myrtir, hefur umræðan um byssu-
eign blossað upp. En mjög lítið hefur
breyst og í sumum fylkjum Bandaríkj-
anna er leikur einn að verða sér úti um
mjög öflug skotvopn.
En nú hefur Barack Obama skip-
að vinnuhóp, undir forystu varafor-
setans Joe Biden, til þess að fara yfir
þessi mál og vill hann fá tillögur í lok
janúar næstkomandi. Obama var gráti
næst þegar hann ræddi hryllinginn við
fréttamenn í Hvíta húsinu. Hann hefur
engu að tapa í þessu máli og þar sem
hann mun ekki bjóða sig fram aftur í
embætti forseta Bandaríkjanna þarf
hann ekki að gera neitt í þessu máli
sem eykur vinsældir hans. Þvert á móti
gæti hann skráð sig á spjöld sögunn-
ar með því að breyta þessu ófremdar-
ástandi til hins betra.
Tugir hafa fallið
Á undanförnum árum hafa tugir fallið
vegna brjálaðra, ungra byssumanna í
Bandaríkjunum. Ekki hafa fleiri fall-
ið fyrir hendi eins manns síðan óður
byssumaður myrti 32 einstaklinga í
Virginia Tech-háskólanum árið 2007,
þegar 32 féllu. Árið 1999 voru þrettán
myrtir í Columbine-menntaskólan-
um í Colorado af tveimur fyrrverandi
skólafélögum sínum. Í öllum þess-
um þremur tilfellum frömdu ódæðis-
mennirnir síðan sjálfsmorð. Frá 1989
hafa verið skráð um 40 tilfelli alvar-
legra skotárása í bandarískum skól-
um. Að meðaltali er þetta því um tvö
tilfelli á ári. Þetta hlýtur að teljast 40
tilfellum of mikið.
Ástralir gripu til aðgerða
En það er ekki bara í Bandaríkjunum
sem voðaverk af þessu tagi eru unn-
in. Í lok apríl árið 1996 gekk 28 ára
Ástrali, Martin Bryant, berserksgang
í smábænum Port Arthur á eyjunni
Tasmaníu, sem tilheyrir Ástralíu. Alls
létu 35 manns lífið í þeirri skotárás.
Viðbrögð ríkisstjórnar Ástralíu vöktu
athygli, því í kjölfarið greip stjórnin
til þess ráðs að innkalla og greiða fyr-
ir skotvopn. Fleiri hundruð þúsund
skotvopn komu inn í þessari aðgerð
og voru eyðilögð. Samkvæmt frétt BBC
um málið hefur voðaatburður af þessu
tagi ekki gerst í Ástralíu síðan.
Stöðvum faraldur ofbeldis
Samkvæmt frétt RÚV í kjölfar
fjöldamorðanna í Sandy Hook-
grunnskólanum í Newtown kom
fram að meirihluti Bandaríkja-
manna styddi nú bann við árásar-
vopnum og skotvopnum með fjöl-
skota magasínum. Slíkt bann myndi
að öllum líkindum draga úr vanda-
málinu, en ekki leysa það endan-
lega. Barack Obama vill að vara-
forsetinn Joe Biden ráðist gegn því
sem hann kallar „faraldur ofbeldis
sem plagar þjóðina á degi hverjum.“
Það verður erfitt verkefni, en alger-
lega borðleggjandi að nú verður að
gera allt hvað menn geta. Obama
og demókratar verða nú að reyna
að fá repúblikana til þess að ná fram
breytingum í þessum efnum. n
Gunnar Hólmsteinn Ársælsson
blaðamaður skrifar
Obama strýkur burt tárin
Valdamesti maður heims, Barack
Obama, gat ekki hamið tilfinningar
sínar á fréttamannafundi í Hvíta
húsinu, þegar hann ræddi Newtown-
fjöldamorðin við blaðamenn.
Ávallt í hjörtum okkur Minningarkross með nöfnum fórnarlambanna í Newton í Connect-
icut-fylki Bandaríkjanna. 14. desember 2012 var dimmur dagur í sögu bæjarins. Þann morgun
myrti Adam Lanza 20 skólabörn á aldrinum 5–7 ára og sex fullorðna í Sandy Hook-grunnskólan-
um í bænum, þar á meðal skólastjórann. Áður hafði hann einnig myrt móður sína, Nancy Lanza.
Erlent 25Jólablað 21.–27. desember 2012
Áhrifarík heimildamynd
Ein áhrifamesta heimildamynd
síðari ára er án efa heimildamynd hins
þekkta leikstjóra Michaels Moore um
fjöldamorðin í Columbine–menntaskól-
anum í bænum Littleton í Colorado-fylki
í Bandaríkjunum. Myndin heitir Bowling
for Columbine og fékk Óskarsverðlaun
á sínum tíma. Það var að morgni hins
20. apríl 1999 sem tveir nemendur
skólans gengu þar inn þungvopnaðir,
eftir að hafa verið í keilu um morguninn.
Með litla létta vélbyssu, haglabyssur,
99 sprengjur og fjóra hnífa gerðu þeir
morðárás á samnemendur sína. Tólf
nemendur og einn kennari létust og 24
særðust. Skot í vopnin höfðu þeir meðal
annars keypt í stórmarkaðnum K-Mart.
Nýr tónn
samtaka
byssueigenda
Samtök byssueigenda í Bandaríkjun-
um, NRA (National Rifle Association)
eru ein sterkustu og valdamestu
hagsmunasamtök Bandaríkjanna. Eitt
af markmiðum samtakanna er einmitt
að standa vörð um „byssuákvæðið“ í réttindaskránni sem rætt er um í greininni. Samkvæmt
alfræðisíðunni Wikipedia eru um 4,3 milljónir manna í samtökunum. Á vefsíðu samtakanna er
meðal annars að finna hjartnæmt myndband með gamla hetjuleikaranum Charlton Heston
(Heston var forseti NRA 1998–2003) þar sem hann talar um frelsið, byssuákvæðið og hvað
stjórnvöld í Ástralíu voru vond við byssueigendur í kjölfar fjöldamorðanna í Port Arthur. Hann
fullyrðir í myndbandinu að þarlend stjórnvöld hafi gert ástralska byssueigendur að „glæpa-
mönnum“ með aðgerðum sínum og innköllun vopna. Samtökin hafa hingað til verið alfarið
á móti öllum breytingum á bandarískri vopnalöggjöf. Nú kveður hins vegar við nýjan tón og í
yfirlýsingu samtakanna eftir Newtown-morðin segir að samtökin „séu harmi slegin og reiðu-
búin að leggja sitt af mörkum til að svona lagað gerist aldrei aftur.“ Svo er það bara spurningin
hvort þetta séu orðin tóm eða hvort NRA láti til sín taka í málinu að þessu sinni?