Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2012, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2012, Side 26
26 Erlent 21.–27. desember 2012 Jólablað Svipmyndir Liðinnar viku n Brot af því besta frá ljósmyndurum Reuters–fréttastofunnar víðs vegar að úr veröldinni Fórnarlambanna minnst Stúlkur kveikja á kertum til að minnast fórnar lamba skotárásarinnar í Newtown. Tuttugu og sjö létu lífið, mestmegnis börn. Í sigti Rússlandsforseta Vladimír Putín horfði djúpt í augu ljósmyndara á fundi í Moskvu 19. desember. Hýr á brá Pierre Moscovici, fjármálaráðherra Frakklands, ræddi við fjölmiðla eftir fjöl­ miðlafund í París á miðvikudaginn. Þar kynnti hann umbætur á regluverki um bankanna sem hann sagði að gætu orðið öðrum Evrópulöndum fyrirmynd. Þjóðverjar væru til að mynda að skoða svipaðar leiðir. Myndaður á hlaðinu Leikar­ inn góðkunni Gerard Depardieu hefur verið sakaður af æðstu mönnum í ríkisstjórn Frakklands um að reyna að komast hjá skattgreiðslum með því að byggja sér hús í Belgíu, rétt innan landamæranna að Frakklandi. Þessi 63 ára leikari er einn fjölmargra auðmanna sem hafa flust til annarra landa vegna hárra skatta sósíal­ istastjórnarinnar frönsku. Áfram gakk! Þessi skrautlegi lögreglumaður í Jammu og Kasmír, nyrsta héraði Indlands, hrópar skipanir að þátttakendum í skrúðgöngu í bænum Sheeri, 60 kílómetra utan höfuð­ staðar héraðsins, Srinagar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.