Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2012, Qupperneq 41
A
ðdragandi móðurmorðs
Jasons Bautista og hálf-
bróður hans, Matthews
Montejo, var ekki flókinn.
Bræðurnir voru rétt búnir
að horfa á Sopranos-þátt í sjónvarp-
inu heima hjá sér í Riverside, úthverfi
Los Angeles, um miðjan janúar 2003,
þegar þeir ákváðu að fyrirkoma
móður sinni og Jason sagði: „Ger-
um það svona, eins og í sjónvarpinu.“
Flóknara var það ekki.
Eftir að hafa kyrkt móður sína þar
sem hún lá í rúmi sínu þá, í anda
Sopranos, afhöfðuðu þeir hana,
skáru af henni hendurnar svo ekki
væri hægt að ná fingraförum henn-
ar. „Ekkert höfuð, ekki hægt að bera
kennsl á líkið. Engar hendur, engin
fingraför. Svona gerðu þeir þetta í
Sopranos,“ sagði Jason.
Síðar útskýrði Matthew, 15 ára,
ástæður verknaðar bræðranna: „Við
vorum báðir hræddir við hana. Við
höfðum um margra ára skeið sætt bar-
smíðum, hótunum og andlegu ofbeldi.
Heimili okkar var skítugt, það var varla
að mamma sinnti nokkurri vinnu og
Jason, sem er fimm árum eldri en ég,
fékk hvergi vinnu til að hlaupa undir
bagga við að greiða reikninga.
Löng saga geðveiki
Í máli Matthews kom fram að Jason
hefði fengið hugmyndina ári áður og
hefði haft á orði að best yrði að stofna
til rifrildis áður; þá gætu þeir bor-
ið við sjálfsvörn. En svo horfðu þeir á
Sopranos og ákváðu að láta verða af því.
Matthew ku hafa verið í herbergi
sínu þegar hann heyrði hávaða, rifr-
ildi og grát. „Mamma veinaði og svo
heyrði ég ekki meira – þögn,“ sagði
Matthew. Örskömmu síðar kom
Jason og sagði Matthew að allt væri
yfirstaðið og þeir væru loksins frjálsir.
„Hann sundurlimaði líkið og því
sem eftir stóð fleygðum við við af-
skekktan þjóðveg,“ sagði Matthew.
Móðir bræðranna, Jane Bautista,
hafði lengi glímt við geðveiki og
ekki skánaði ástandið þegar faðir
Jason svipti sig lífi 1983. En þó kunn-
ugir vissu að víða væri pottur brot-
inn í heimilishaldi hennar þá hafði
enginn gert sér grein fyrir hve slæmt
ástandið hefði í raun verið.
Gripnir glóðvolgir
Um klukkan tvö eftir miðnætti 15.
janúar, nokkrum klukkustund-
um eftir að Jane var myrt, gekk ör-
yggisvörður, Pete Martinez, fram
á tvo drengi sem hugðust losa sig
við svefnpoka á byggingarsvæði í
Oceanside.
„Ég spurði þá hvað þeir væru að
gera og þeir sögðust vera að henda
rusli. Ég sagði þeim að þeir gætu
ekki gert það þarna og þeir yrðu að
taka svefnpokann með sér. Þegar
þeir tóku hann upp sá ég í fót sem
hékk úr pokanum,“ sagði Pete.
Hann skipaði drengjunum að
láta pokann niður, en þeir neituðu
og skelltu honum í farangursrými
bifreiðar sinnar.
Pete náði að skrá niður bíl-
númerið áður en þeir brenndu á
brott, sem og allt annað sem hann
mundi eftir í svipinn. Síðan hafði
Pete samband við lögregluna.
Ákærðir á Valentínusardegi
Um morguninn fannst höfuð- og
handalaust lík Jane í skurði við vegar-
kant í Orange-sýslu. Líkið var vel sjá-
anlegt en margir höfðu ekið framhjá
því í þeirri trú að um væri að ræða
gínu. Það var ekki fyrr en mótorhjóla-
lögga ákvað að kanna málið að hið
sanna kom í ljós.
Jason var handtekinn 24. janúar
á svæði háskólans sem hann stund-
aði nám við og þegar hann var spurð-
ur hvort hann byggi hjá móður sinni
svaraði hann: „Já, en við höfum ekki
séð hana svo vikum skiptir.“
En innan skamms viðurkenndi
hann allt saman og á Valentínusardag
voru bræðurnir ákærðir fyrir morðið á
móður sinni.
Bræðurnir snérust hvor gegn öðr-
um við réttarhöldin. Matthew samdi
um vægari refsingu en ella fyrir að
bera vitni gegn Jason. Jason bar ekki
gegn því að hann hefði banað móð-
ur sinni – og skorið af henni höf-
uð og hendur – en það hefði hann
gert í sjálfsvörn. „Matthew lýgur
því að þetta hafi verið skipulagt og
að ég hafi fengið hugmyndina úr
Sopranos. Hann hefur vitnað gegn
mér til að bjarga eigin skinni,“ sagði
Jason.
Þann 4. febrúar, 2005, var Jason
Bautista dæmdur til 25 ára til lífstíðar-
fangelsis. Innan við viku síðar varð
Matthew Montejo frjáls maður á ný
eftir að hafa eytt 749 sólarhringum á
bak við lás og slá. n
41Jólablað 21.–27. desember 2012
morð fengust staðfest í máli Úkraínumannsins Serhiy Tkach. Tkach er fyrrverandi rann-
sóknarlögreglumaður og afplánar nú lífstíðardóm. Hann fullyrti sjálfur að fjöldi fórnarlamba
hans væri mun fleiri, eða á annað hundrað. Kach stundaði að kæfa stúlkur á aldrinum sex til
átján ára og svívirti síðan lík þeirra kynferðislega. Hann fór fram á að verða dæmdur til dauða, en
varð ekki að ósk sinni. 29
n Tveir bræður og ein sjúk móðir n Uppskrift að morði í boði Sopranos
Í ANDA SOPRANOS
Var myrt af sonum sínum Jane Bautista hafði lengi glímt við geðræna kvilla. Neitaði ekki sök Jason Bautista sagði að um sjálfsvörn hefði verið að ræða.
Fékk vægan
dóm Matthew
Montejo samdi
við saksóknara.