Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2012, Qupperneq 43

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2012, Qupperneq 43
Kristín segir goðsögnina um Britn ey hreint brjálæðislega þegar hún er skoðuð nánar. „Hún var ólög- ráða og í skólastelpubúningi eins og klippt út úr klámmynd þegar fyrstu myndböndin hennar birtust. Það var verið að selja meydóminn hennar, en það tíðkast í okkar sam- félagi, meydómur stúlkna er seldur dýrum dómum og það var það sem gerðist með Britney Spears. Þetta er saga sem allir þekkja og fólk hugsar kannski ekki mikið um hana en mér finnst hún búa yfir einhverjum rosa- legum sannleika fyrir okkur að horf- ast í augu við.“ Eiginlega ekki manneskja Kristín segir Britney líka standa fyrir kúltúr hennar eigin kynslóð- ar. „Það sem er svo mikilvægt við Britney er að það er alltaf talað um að hún sé alveg hæfileikalaus. Hún er pródúseruð. Hún er valin ein af milljón og sett í einhver föt og röddin á henni mixuð og Sví- ar semja lögin og henni eru kennd einhver dansspor. Hún er algjör- lega ólögráða og ósjálfbjarga og hæfileikalaus. Það hefur alltaf verið talað þannig um Britney. En svo er hún líka þessi ofboðslega stjarna og þetta viðfang okkar.“ Kristín segir að Britney sé eig- inlega ekki manneskja. „Þessi krísa er önnur svona öfgafull, ofboðslega meitluð mynd af einhverju sem ég held að geti verið ástand hvers sem er og við ættum öll að geta speglað okkur í að einhverju leyti. Og þetta er náttúrulega gífurleg einstaklings- hyggja og rosalega vestrænt og rosa- lega firrt sem er eitthvað sem við þekkjum öll í okkar sálarlífi.“ Týpískt alkaviðtal Kristín segist þekkja afneitun og óheiðarleika af eigin raun. „Ég er eitt- hvað að spá hvort við eigum að tala um alkóhólisma af því að mér finnst það alveg fínt í þessu samhengi. En ég fer þá að spá hvort þetta verði eitthvað svona týpískt alkaviðtal? Hvort að það sé ekki hægt að gera það einhvern veginn án þess að það sé þannig?“ Eftir að hafa komist að samkomu- lagi um að þetta verði ekki „týpískt alkaviðtal“ heldur hún áfram: „Ég er alkóhólisti og óheiðarleiki og það að horfast ekki í augu við eigin bresti er mér rosalega kunnuglegt og ég á auð- velt með að skrifa um það.“ Hún líkir eigin reynslu af alkóhól- isma við myndband sem sýnt var í Steindanum okkar. Þar var fylgst með manni sem gat ekki hætt að djamma og það þótt hann hefði misst flesta útlimi. „Þetta er bara nákvæm- lega þannig, það þarf alltaf að vera djamm í kvöld!“ Segir Kristín, fliss- ar og heldur áfram: „Það er bara Menning 43Jólablað 21.–27. desember 2012 Fálmkennt að vera manneskja „Alkóhólistinn Ísland var píndur í dítox en strauk á sloppnum Verum stjörnur Kristín er upptekin af goðsögninni um Britney Spears. Öllum sé í dag uppálagt að vera stjörnur, að vera svo mikill einstaklingur, svo sérstakur. mynd sigTryggur ari „Þetta verður svo rosalega tvöfalt og skrýtið líf og á meðan er sálin í manni einhvern veginn öll að visna.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.