Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2012, Page 48

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2012, Page 48
JólagJafalisti Opruh Winfrey 48 Lífsstíll 21.–27. desember 2012 Jólablað Þ að er ekki slæmt að vera Oprah Winfrey þegar jólin nálgast með öllum sínum gjafavalkvíða. Fjölmiðla- drottningin fær heimsent alls kyns dót, glingur, fatnað, tæki og tól frá vongóðum framleiðendum. Í ár valdi Oprah 68 gjafir á sinn gjafalista. Hér er brot af listanum fyrir þá sem eiga enn eftir að finna sniðuga og hentuga gjöf handa sínum nán- ustu. Það er ekki slæmt að gjöfinni fylgi meðmæli frá einni áhrifaríkustu manneskju í heimi. Líklega hefur enginn okkar fjárráð á borð við Opruh en sem betur fer eru á listanum gjafir á alls konar verði. n Uppáhaldshlutir sjónvarpsdrottningar Noel með Josh Groban „Jólin koma ekki fyrr en Josh Groban syngur Ave Maria,“ segir Oprah sem elskar þennan geisladisk svo mikið að hann komst á jólagjafalista hennar í fyrra líka. Spariskór Oprah elskar skólínuna frá Jessicu Simpson. „Fimm skór sem allar konur þurfa að eiga. Flott stígvél, þægilegir götuskór, hlébarðaskór, klassískir og rauðir hælaskór.“ Rafmagnshjól Oprah mælir með Jetson E- Bike, umhverfisvænni græju sem býður einnig upp á að pedalarnir séu notaðir. Krem Oprah heldur upp á Luxury-línuna frá Lancer. „Þessi krem gera kraftaverk fyrir húðina og fallegu krukkurnar lífga upp á baðherbergishilluna í leiðinni.“ Börnin föndra Það er tilvalið að leyfa yngstu fjölskyldumeðlimun- um að föndra skraut á jólatréð. Það eina sem þarf er stífur pappír í nokkrum litum, trélitir og tvinni. Svo er bara um að gera að gefa hugmyndaflugi lítilla kolla lausan tauminn. Útkoman getur ekki orðið annað en dásamleg. Falleg kerti Sjónvarpsdrottningin mælir með kertunum Joy to the World frá R. Nichols Candles. Kertin lykta á sjö mismunandi vegu á borð við jólatré og arineld. Sjónvarpstæki Oprah mælir með Bose VideoWaveII, 46 tommu háskerpu sjónvarps-, heimabíós- og tónlistargræju í einu tæki. Hjólahjálmur „Ekki einu sinni hugsa um að hjóla án þess að vera með góðan hjálm. Þessi þægilegi hjálmur frá Giro Sport er með níu loftgöt sem gerir hjólreiðarnar notalegri,“ segir Oprah. Sniðugar jóla- trésskreytingar Origami Japanskar origami-papp- írsskreyt-ingar geta verið mjög fallegar, en það er þó ekki allra að föndra slíkt. Origami á jólatréð er skemmtilegt fyrir þá sem vilja vera aðeins öðruvísi og blanda saman ólíkum menningarheimum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.