Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2012, Qupperneq 48
JólagJafalisti
Opruh Winfrey
48 Lífsstíll 21.–27. desember 2012 Jólablað
Þ
að er ekki slæmt að vera
Oprah Winfrey þegar jólin
nálgast með öllum sínum
gjafavalkvíða. Fjölmiðla-
drottningin fær heimsent alls
kyns dót, glingur, fatnað, tæki og tól frá
vongóðum framleiðendum.
Í ár valdi Oprah 68 gjafir á sinn
gjafalista. Hér er brot af listanum fyrir
þá sem eiga enn eftir að finna sniðuga
og hentuga gjöf handa sínum nán-
ustu. Það er ekki slæmt að gjöfinni
fylgi meðmæli frá einni áhrifaríkustu
manneskju í heimi.
Líklega hefur enginn okkar fjárráð
á borð við Opruh en sem betur fer eru
á listanum gjafir á alls konar verði.
n Uppáhaldshlutir sjónvarpsdrottningar
Noel með Josh Groban „Jólin koma
ekki fyrr en Josh Groban syngur Ave
Maria,“ segir Oprah sem elskar þennan
geisladisk svo mikið að hann komst á
jólagjafalista hennar í fyrra líka.
Spariskór Oprah elskar skólínuna frá
Jessicu Simpson. „Fimm skór sem allar
konur þurfa að eiga. Flott stígvél, þægilegir
götuskór, hlébarðaskór, klassískir og rauðir
hælaskór.“
Rafmagnshjól Oprah mælir með Jetson E-
Bike, umhverfisvænni græju sem býður einnig
upp á að pedalarnir séu notaðir.
Krem Oprah heldur upp á Luxury-línuna
frá Lancer. „Þessi krem gera kraftaverk fyrir
húðina og fallegu krukkurnar lífga upp á
baðherbergishilluna í leiðinni.“
Börnin föndra Það er tilvalið að
leyfa yngstu fjölskyldumeðlimun-
um að föndra skraut á jólatréð.
Það eina sem þarf er stífur pappír
í nokkrum litum, trélitir og tvinni.
Svo er bara um að gera að gefa
hugmyndaflugi lítilla kolla lausan
tauminn. Útkoman getur ekki orðið
annað en dásamleg.
Falleg kerti Sjónvarpsdrottningin mælir
með kertunum Joy to the World frá R. Nichols
Candles. Kertin lykta á sjö mismunandi vegu á
borð við jólatré og arineld.
Sjónvarpstæki Oprah mælir með Bose
VideoWaveII, 46 tommu háskerpu sjónvarps-,
heimabíós- og tónlistargræju í einu tæki.
Hjólahjálmur „Ekki einu sinni
hugsa um að hjóla án þess að vera
með góðan hjálm. Þessi þægilegi
hjálmur frá Giro Sport er með níu
loftgöt sem gerir hjólreiðarnar
notalegri,“ segir Oprah.
Sniðugar jóla-
trésskreytingar
Origami Japanskar origami-papp-
írsskreyt-ingar geta verið mjög
fallegar, en það er þó ekki allra að
föndra slíkt. Origami á jólatréð er
skemmtilegt fyrir þá sem vilja vera
aðeins öðruvísi og blanda saman
ólíkum menningarheimum.