Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2012, Síða 50
Þ
að verða hvorki fleiri né færri
en 40 leikir á dagskrá ensku
úrvalsdeildarinnar á næstu
12 dögum. Fjórar umferðir
verða leiknar frá og með
laugardeginum til miðvikudagsins
2. janúar þegar jólavertíðinni í enska
boltanum lýkur. Mörg stig eru í
pottinum og ekki útilokað að stöðu
taflan verði talsvert öðruvísi í byrjun
nýs árs en hún er núna. Veislan hefst
á laugardag þegar átta leikir verða
á dagskrá en á Þorláksmessu, 23.
desember, verða tveir leikir á dag
skránni. DV fór í saumana á leikjum
helgarinnar og fékk meðal annars út
varpsmanninn Þórð Helga Þórðar
son, betur þekktan sem Dodda litla,
til að spá í spilin.
Gætu náð 3. sætinu
Fyrsti leikur helgarinnar verður í
hádeginu á laugardag þegar Wigan
tekur á móti Arsenal í leik sem gæti
orðið áhugaverður. Eftir ágæta byrj
un hefur Wigan sogast niður í fall
baráttu en liðið er sem stendur í
18. sæti deildarinnar með 15 stig.
Arsenal ætti að mæta fullt sjálfs
trausts í leikinn eftir magnaðan 5–2
sigur á Reading á mánudag þar sem
liðið lék geysivel. Fyrir leikinn er
Arsenal í 5. sæti með 27 stig en með
sigri og hagstæðum úrslitum í öðrum
leikjum gæti farið svo að liðið yrði í 3.
sæti deildarinnar þegar jólin ganga í
garð.
Manchester City tekur á móti
Reading í leik sem ætti að verða góð
skemmtun – fyrir stuðningsmenn
City að minnsta kosti. Ekkert lið hef
ur fengið fleiri mörk á sig en Reading
og ekkert lið hefur fengið færri stig
á útivelli. Á sama tíma er Cityliðið
sterkt á heimavelli og virðist flest
benda til þess að það landi stórsigri.
Sjálfstraust Villa
Tottenham, sem situr í fjórða sæti
deildarinnar, tekur á móti Stoke á
laugardag. Tottenham hefur unnið
þrjá leiki í röð en á sama tíma hefur
Stoke verið á mikilli siglingu og er
liðið taplaust í síðustu sex leikjum
sínum.
Liverpool fær annað tækifæri til
að landa sigri á Anfield eftir ófarirn
ar gegn Aston Villa um liðna helgi
þegar liðið tekur á móti Fulham.
Liverpool er fyrir leikinn í 12. sæti
með 22 stig en Fulham í 13. sæti með
20 stig. Liverpool hefur fengið 10 stig
í síðustu 6 leikjum sínum á meðan
Fulham hefur aðeins fengið 4 stig í
síðustu 6 leikjum.
Umferðinni lýkur svo á sunnudag
en þá heimsækir topplið deildar
innar, Manchester United, Swansea
í leik sem gæti orðið athyglisverður.
Swansea virðist á góðum degi geta
unnið hvaða lið sem er en liðið hefur
þó tapað síðustu tveimur leikjum
sínum í deildinni á meðan United
hefur unnið fimm leiki í röð. United
er með 42 stig á toppi deildarinnar
en Swansea er í 10. sæti með 23 stig.
Chelsea þarf nauðsynlega á sigri
að halda þegar liðið tekur á móti
Aston Villa síðdegis á Þorláksmessu.
Chelsea fór sneypuför á HM félags
liða í Japan þar sem liðið hafnaði í
öðru sæti. Chelsea hefur einung
is fengið sex stig í síðustu sex leikj
um sínum en liðið er í 3. sæti með 29
stig. Villa er í 14. sæti með 18 stig og
er ósigrað í síðustu fjórum deildar
leikjum sínum og gæti vel strítt
Chelsea á Brúnni – sérstaklega eft
ir magnaðan sigur á Liverpool á An
field um liðna helgi. n
50 Sport 21.–27. desember 2012 Jólablað
Veislan hefst
um helgina
n Fjölmargir leikir á dagskránni í enska n Doddi litli spáir í spilin
„
Aguero
setur
fimm
og Tevez
fjögur
Laugardagur
Wigan – Arsenal
„Tvö skemmtileg lið. Ég segi að þetta endi
jafntefli, 2–2, í stórskemmtilegum leik. Ég
verð að gefa Wigan stig hérna.“
Manchester City – Reading
„Það er spurning hvort við sjáum fyrstu
tveggja stafa töluna í úrvalsdeildinni. Ég
segi 12–0 fyrir City. Reading voru skelfilegir
á móti Arsenal. Af tólf mörkum setur Agu-
ero fimm og Tevez fjögur.“
Newcastle – QPR
„Þessi er sexí. Ég held að vinur minn Harry Red-
knapp taki þrjú stig þarna og þetta fari 1–0 fyrir
QPR. Fabio kemur inn á á 73. mínútu og skorar.“
Southampton – Sunderland
„Southampton er eitt skemmtilegasta lið
deildarinnar og það vinnur þetta 3–0.“
Tottenham – Stoke
„Þetta fer 4–0 fyrir Tottenham ef Gylfi
spilar allan leikinn. Ef hann kemur ekkert
við sögu vinnur Stoke 1–0. Gylfi er yfir-
burðamaður í þessu liði og ef hann byrjar
verður þetta sannfærandi heimasigur.“
West Brom – Norwich
„Norwich er á næstmestri siglingu allra
liða í Evrópu á eftir Barcelona en West
Brom hefur líka heillað mig. Eigum við ekki
að segja að West Brom taki þetta 2–1.“
West Ham – Everton
„Fellaini verður í banni en ég held að
Everton taki þetta samt, 1–0. Þessi leikur
verður ekki mikið fyrir augað.“
Liverpool – Fulham
„Berbatov setur þrennu og Fulham vinnur
þetta 3–0. Mjög sannfærandi. Ég held að
Suarez verði rekinn út af fyrir dýfu og væl í
dómaranum.“
Sunnudagur
Swansea – Manchester United
„United marði sigur þarna í fyrra og
Swansea er óútreiknanlegt. Ég held að
United taki þetta 3–1. Persie skorar tvö
og Hernandez eitt. Michu skorar mark
Swansea.“
Chelsea – Aston Villa
„Ég gef Chelsea þetta 3–1. Ég held að
Hazard, Mata og Cahill skori fyrir Chelsea
en Benteke skori fyrir Villa.“
Tveggja stafa tala hjá City
DV fékk útvarpsmanninn Þórð Helga Þórðarson, Dodda litla, til að spá í spilin fyrir leiki
helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Doddi skefur sjaldnast utan af hlutunum og spáir því
að Manchester City slátri Reading. Þá segir hann að Gylfi Sigurðsson sé yfirburðamaður hjá
Tottenham og velgengni liðsins velti á því hvort hann spilar eða ekki.
n Doddi litli býst við markasúpu í leikjum helgarinnar n Gylfi yfirburðamaður
Vissir þú …
… að af 14 mörkum sem Manchester
United hefur fengið á sig á útivelli hafa 7
komið með skalla.
… að Robin van Persie
hefur nú komið við sögu
í 65 leikjum í röð í úrvals-
deildinni eftir meiðslahr-
inu þar á undan.
… að Arsenal skaut boltanum 13 sinnum
á markið hjá Reading á mánudag. Engu
liði hefur tekist að skjóta oftar á mark
andstæðingsins á tímabilinu.
… að Santi Cazorla er
þriðji Spánverjinn til
að skora þrennu í leik
í úrvalsdeildinni. Hinir
eru Jordi Gomez og
Fernando Torres.
… að Arsenal hefur 36 sinnum verið
með þriggja marka forskot eða meira í
hálfleik frá stofnun úrvalsdeildarinnar –
oftast allra liða.
… að Marouane
Fellaini hefur brotið
44 sinnum af sér á
tímabilinu, oftast allra
leikmanna.
… að 3,94 mörk hafa verið skoruð að
meðaltali í leikjum Manchester United á
tímabilinu.
… að 7 af 13 gulum
spjöldum sem Luis
Suarez hefur fengið í
úrvalsdeildinni hafa
verið fyrir kjafthátt.
… að færri mörk eru skoruð í sunnu-
dagsleikjum en laugardagsleikjum í
deildinni. Á sunnudögum eru skoruð
2,56 mörk að meðaltali en 2,95 í laugar-
dagsleikjum.
… að öll 9 mörk
Jermaine Defoe
fyrir Tottenham
hafa komið þegar
Emmanuel Adebayor
er ekki inni á vellinum.
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Skytturnar tvær Það er ekki
útilokað að Carlos Tevez og Sergio
Aguero verði á skotskónum gegn
Reading á laugardag. Mynd ReuteRS