Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2012, Qupperneq 58
dæmdur í tíu
ára fangelsi
58 Fólk 21.–27. desember 2012 Jólablað
L
ady Gaga hefur vakið reiði
PETA-samtakanna sem segja að
söngkonan sé væntanlega búin
að missa vitið. Ástæða þess er
sú að Lady Gaga keypti sér heilmikið
af loðfeldum í Helan Yarmak-versl-
uninni í Moskvu um síðustu helgi.
Þar á meðal var safalafeldur sem
metinn er á 27 milljónir króna og
silfurref metinn á 2,5 milljónir króna.
Samtökin benda á að á sama tíma
og hátíð friðar og manngæsku sé að
ganga í garð sé söngkonan upptekin
við að kaupa sér kápu sem búin er til
úr feldi að minnsta kosti 30 dýra sem
hefur verið slátrað.
Loðfeldir fyrir
tugi milljóna
Lady Gaga Ekki
vinsæl hjá PETA
Þ
að er ekki hægt að segja að
Rihanna sé á flæðiskeri stödd.
Fyrir skömmu keypti hin 24
ára gamla söngkona villu fyr-
ir 12 milljónir dala sem gera um 1,5
milljarða íslenskra króna. Höllin,
sem er rúmir 1.000 fermetrar stend-
ur á 3.116 fermetra lóð í Los Angeles.
Í húsinu eru sjö svefnherbergi, níu
baðherbergi og sundlaug í garðin-
um, svo eitthvað sé nefnt. Þetta eru
þó ekki einu fasteignaviðskipti söng-
konunnar því nýlega keypti hún hús
á Barbados handa móður sinni.
Keypti þúsund
fermetra villu
Höllin Það er ekkert smáræði
nýja húsið hennar Rihönnu.
Yfir 20 kíló farin
S
öngkonan Jessica Simpson
er á fullu þessa dagana við að
koma sér í sitt fyrra form eftir
barnsburð. Simpson, sem er
talsmaður The Weight Watchers,
eignaðist dótturina Maxwell Drew
fyrir sjö mánuðum og hefur þegar
misst tæp 23 kíló. „Ég held að öllum
konum finnist þær verða að gera eitt-
hvað í málunum eftir að þær hafa
fætt barn. Núna hef ég breytt algjör-
lega um lífsstíl því hingað til hef ég
verið eins og jójó,“ sagði Simpson,
sem er 32 ára, í viðtali við The People.
n Jessica Simpson hefur breytt um lífsstíl
Rokkar Söngkonan hefur rokkað mikið í þyngd.
T
ölvuhakkarinn sem braust
inn í síma Scarlett Johans-
son og fleiri kvenna og stal af
þeim nektarmyndum hefur
hlotið tíu ára fangelsisdóm
fyrir brot sín.
Umræddur hakkari, Christopher
Chaney, verður einnig að reiða fram
sem samsvarar tæpum tíu milljón-
um króna í skaðabætur til Scarlett,
Christinu Aquilera og leikkonunnar
Renee Olstead.
Scarlett bar vitni í myndbandi
þar sem hún lýsti líðan sinni. „Ég
var sannarlega niðurlægð og full
skammar,“ sagði hún. „Mér finnst
gerðir Christophers vera pervertískar
og með öllu óafsakanlegar.“
Hakkarinn braut gegn fleiri
konum og nokkrar þeirra þekkti
hann vel. Dómarinn tók fram að
glæpir mannsins gegn þeim konum
sem hann hefði verið í persónu legum
tengslum við væru margfalt verri
en glæpir hans gegn stjörnunum.
Chaney sendi til að mynda nektar-
myndir af fyrrverandi vinnufélaga
til fjölskyldu hennar og konan þjáð-
ist af alvarlegum kvíða og þunglyndi
vegna þess.
Braut á konum Christopher
Chaney hefur tíu ár til að
hugsa ráð sitt og er öðrum
netníðingum víti til varnaðar.
n Áreitti fjölda kvenna með því að stela af þeim myndum
Misstu fóstur
ítrekað
L
eikarinn Hugh Jackman sagði
nýlega frá því í viðtali að hann
og eiginkona hans Deborra-
Lee Furness hefðu upplifað
mikinn sársauka þegar þau
reyndu að eignast börn fyrir rúm-
um áratug. Þau fóru í fjölmargar
frjósemisaðgerðir og Deborra
missti ítrekað fóstur. „Þetta voru
mjög erfiðir tímar. Að missa ítrek-
að fóstur. Mér skilst að það gerist
við þriðju hverja þungun – en lítið
mjög lítið talað um það,“ sagði
Hugh.
Að lokum fór svo að þau ættleiddu
tvö börn. Hann sagði þó að það hafi
alls ekki verið lokaúrræði, þau hafi
alltaf langað til að ættleiða líka.
n Upplifðu
mikinn sársauka