Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2012, Side 62

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2012, Side 62
62 Fólk 21.–27. desember 2012 Jólablað „Ég er skáldið í bandinu“ n Time Passing By með Monterey á heima á meðal betri platna V ið erum pínuleiðir yfir því að vera svona seint á ferðinni, segir Steindór Ingi Snorra­ son, aðalsprautan í hljóm­ sveitinni Monterey. Hljómsveitin gaf nýlega út sína fyrstu plötu, Time Passing By, sem rétt náði að skol­ ast inn á markaðinn með jóladiska­ flóðinu. „Við komum eftir að allir voru búnir að mynda sér skoðun á því hver yrði besta plata ársins og svoleiðis.“ Hann er þó sannfærður um ágæti plötunnar. „Þessi plata er svona „dark horse“ á árinu 2012 því við teljum að hún sé mjög góð og eigi heima einhvers staðar á meðal betri platna,“ segir Steindór og slær á létta strengi. Hann segir það hafa staðið til að gefa plötuna út fyrr á árinu en af ýmsum ástæðum hafi það ekki gengið eftir og útgáfan dróst fram í miðjan desember. Hann bendir á að í raun tilheyri þeir næstum því út­ gáfuárinu 2013. „Við ákváðum samt að láta plötuna vera í hillunum fyrir jólin og vera aðeins sýnilegir frekar en að koma með hana í janúar eða febrúar.“ Steindór segir vini og ætt­ ingja líka hafa beðið lengi eftir plöt­ unni svo það var ákveðin pressa á útgáfuna fyrir jólin. Time Passing By var hljóðrit­ uð hér og þar í Reykjavík á árunum 2011 og 2012 og gefa strákarnir í hljómsveitinni hana út sjálfir, en „mix og mastering“ var í höndum Ebergs. Steindór hafði lengi gengið með þann draum í maganum að gefa út plötu en elstu lögin og textarnir á plötunni eru frá árunum 2005 og 2006. „Ég er skáldið í bandinu,“ segir hann sposkur. Steindór er einnig söngvari Monterey og leikur á gítar, en með honum í hljómsveitinni eru þeir Andri Geir Árnason á tromm­ ur, Arnar Ingi Hreiðarsson á bassa og Baldur Sívertsen á gítar. Tónlist Monterey má lýsa sem hugljúfri og fallegri poppmúsík undir sterkum áhrifum frá síð­ bítlarokki sjöunda og áttunda ára­ tugar síðustu aldar. Meðlimir sveitar innar telja tónlistina þó sér­ sniðna að hugarheimi tuttugustu og fyrstu aldar mannsins. Ævintýri Tinna Þeir voru ansi sniðugir grallara­ spóarnir, Þorbjörn Þórðarson á Stöð 2, Kolbeinn Óttarsson Proppé á Fréttablaðinu og Tinni Sveins­ son á Vísi þegar þeir brugðu á leik og stilltu sér upp fyrir myndatöku í vikunni. Ef rýnt er í myndina má nefnilega sjá að þarna líkja þeir eftir þremenningunum úr ævin­ týrum Tinna; Kolbeini kafteini, hundinum Tobba og Tinna sjálf­ um. En hver og einn leikur nafna sinn. Að hinum tveimur ólöstuð­ um er óhætt er að segja að Þor­ björn, sem gjarnan er kallaður Tobbi, negli hlutverk sitt, liggjandi á fjórum fótum eins og hundur. Beðin um að afklæðast inni á þingi Katrín Jakobsdóttir segir frá því á Facebook­síðu sinni að hún hafi verið beðin um að afklæð­ ast lopapeysu sinni á Alþingi. „Var beðin að afklæðast lopa­ peysu minni hér áðan“ tilkynnti hún.°Lísa Kristjánsdóttir vinkona hennar spurði hana þá hvort hún hafi ekki þótt nógu þjóðleg og Katrín svaraði að bragði: „Þjóð­ legri en gervijólatréð mitt.“ Við skriftir á olíuborpalli É g sagði bara: því stærri bor­ pallur og því erfiðari aðstæður, því betra,“ segir rithöfundurinn Yrsa Sigurðardóttir um það uppátæki sitt að skrifa á olíu­ borpalli úti á rúmsjó í mestu vetrar­ hörkunum í janúarmánuði. „Hugmyndin er að skrifa bók með Norðmanni á næsta ári sem gerist að hluta til á olíuborpalli og þá þarf annað okkar að skrifa þann hluta sem gerist á þar og hitt það sem á sér stað í landi,“ segir Yrsa og segir verk­ fræðinginn í sér hlakka til ferðarinn­ ar. „Ég þarf náttúrulega að hafa verið á einum slíkum ef ég ætla að skrifa raunsætt um efnið.“ Vön að vinna í teymi Yrsa getur ekki gefið upp að svo stöddu hver norski höfundurinn er en um er að ræða spennusögu og ætlar Yrsa að leggja drög að sögu­ þræði á milli jóla og nýárs. „Ég ætla á milli jóla og nýárs að setja upp drög að söguþræði, svo hitti ég meðhöf­ und minn í janúar. Ég vona bara að hann sé ennþá til í þetta þegar hann sér söguþráðinn,“ segir hún og hlær. Yrsu hugnast vel að fara í sam­ starf með öðrum rithöfundi. „Ég er búin að skrifa þrettán sögur og finnst ótrúlega spennandi að skrifa bara hálfa bók! Ég er vön verkefnavinnu og því að vinna í teymi sem felur í sér að taka tillit til annarra og finnast ekki bara það sem ég geri æðislegt.“ Safnar kröftum Fyrir utan að leggja drög að nýrri skáldsögu segist Yrsa ætla að nota tímann yfir hátíðarnar til að vera í næði með fjölskyldunni og safna kröftum. Hún segir lítið um fasta siði, en hún þyki með eindæmum ljósaglöð. Í fyrra skreytti hún jólatréð með 4.000 ljósum. Þegar blaðamað­ ur spjallaði við Yrsu var hún alls ekki bjartsýn á að það tækist að skreyta tréð fyrir jól. „Jólatréð verður komið upp á gamlárskvöld, ég er ekki enn búin að setja það upp,“ segir hún og hlær. kristjana@dv.is „ Jólatréð verð- ur komið upp á gamlárskvöld! „Spennt fyrir því að skrifa aðeins hálfa bók! n Yrsa Sigurðardóttir komin í samstarf við norskan rithöfund Hlakkar til Yrsa hlakkar til að halda í vettvangsferð á olíuborpall. Seinir Steindór segir hljóm- sveitarmeðlimi pínuleiða yfir því hvað þeir eru seint á ferðinni með plötuna. „Nú þarf ég að skrifa status!!“ Tónleikarnir Hátt í Höllinni voru haldnir í Laugardalshöll síðast­ liðinn miðvikudag, en þar kom fram rjóminn af tónlistarelítu Íslands; Kiriyama Family, Moses Hightower, Valdimar, Jónas Sig og Ritvélar framtíðarinnar, Ásgeir Trausti og Hjálmar. Var það umboðsmaður Íslands, Einar Bárðarson, sem stóð fyrir tónleikunum en þeir þóttu takast nokkuð vel. Það er þó aldrei hægt að gera öllum til geðs og í hópi þeirra sem voru ósáttir við ýmislegt var leikkonan og uppistandarinn Anna Svava Knútsdóttir. Hún gat ekki orða bundist og fann sig knúna til að skrifa um upplifun sína á Facebook. „Nú þarf ég að skrifa stat­ us!! Ég fór á tónleikana „Hátt í Höll­ inni“ áðan (fínir tónleikar) EN það sátu allir eða stóðu eins og klessur og það hreyfði sig enginn! OG allar konur sem ég sá voru klæddar ná­ kvæmlega eins OG það var engin kona á sviðinu í allt kvöld!!! Var massa pirruð yfir þessu. Takk fyrir og góða nótt.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.