Víkurfréttir


Víkurfréttir - 29.11.2012, Blaðsíða 40

Víkurfréttir - 29.11.2012, Blaðsíða 40
vf.is Fimmtudagurinn 29. nóvember 2012 • 47. tölublað • 33. árgangur auglýsingasími víkurfrétta er 421 0001 Opið alla miðvikudaga frá kl. 8:00 – 16:00 Tímapantanir í síma 426 8540 Opið virka daga frá kl. 8:00 – 17:00 Frjáls mæting Dýrmæt gjöf Ýmsir hópar ryðja sér nú rúms á fésbókinni vinsælu og þar verður my nd- e f n i ð o f t æ ð i skraut legt svo ek k i s é meira sagt. Þar kennir ý m i s s a g r a s a . Árgangahópar, saumaklúbbar, starfsmannafélög og hvað eina, sem tengir fólk saman böndum. Einnig eru sérlega skemmtilegar gamlar myndir á síðunni Keflavík og Kefl- víkingar sem vekja upp margar ljúfar minningar. Maður hverfur mörg ár aftur í tímann og rifjar upp atburði, sem löngu voru geymdir en ekki sannarlega ekki gleymdir. Rakst á mynd af sjálfum mér á einni hópsíðunni. Á þrettánda ári á reiðhjóli. Gelgjusvipurinn leynir sér ekki. Klæddur í mittisúlpu með skinnkanti á hettu, nefið að stækka, axlarsítt hvítt hár og í minningunni voru stelpurnar allar rosalega sætar. Það snjóaði sem aldrei fyrr þessi jólin. Tilhlökkunin og eftir- væntingin um hvað leyndist í jóla- pakkanum kitlaði mallakútinn á Túngötunni. Dreymdi um ýmislegt en langaði samt mest í nýtt reiðhjól. Var þar af leiðandi reglulegur gestur á reiðhjólaverkstæði Hennings á Hafnargötunni. Gúmmíslöngu- og límlyktin angaði í anddyrinu um leið og maður gekk niður tröpp- urnar inn í ljósblátt og lágreist verk- stæðið. Nánast niðurgrafið í jörðina. Verkstæðisformaðurinn gekk um hokinn í baki í blágræna sloppnum sínum. Af ljúfmennsku sinni leyfði hann mér að strjúka gæðingunum sem stóðu þar í öllum regnbogans litum. Sá eflaust stjörnublikið í aug- unum á mér. Á Þorláksmessu gat ég ekki á mér setið. Kíkti upp á háaloft, þar sem gjafirnar voru jafnan geymdar, en sá ekkert sem hægt var að henda reiður á. Aðfangadag jóla arkaði ég venju samkvæmt út í snjóinn og bar út jólakortin til að stytta mér stundirnar og biðina. Við bræð- urnir fengum alltaf að opna einn pakka örlítið fyrr, sem Dúa frænka á Ásabrautinni kom með. Yfirleitt á slaginu þrjú. Fullan af nammi. Það voru margir litlir pakkar við litla jólatréð þegar klukkan sló sex. Pabbi var þó eitthvað að pukrast niðri í kjallara og kallaði á okkur. Það var lítil fyrirstaða í snar-bratta tréstiganum niður í kjall- ara enda spennan að ná hámarki. Við mér blasti fagurblátt reiðhjól, einn af gæðingunum sem Henning hafði leyft mér að strjúka í gerðinu sínu. Dýrmætari gjöf var ekki hægt að hugsa sér. Mér fannst ég hafa mátað það í draumum mínum. Ef- laust hægt að skransa á því og keppa við strákana um hver gæti prjónað lengst. Lásinn var silfurlitaður, eins og áföst skeifa neðan við hnakkinn. Fimm kórónulaga takkar. Mátti alls ekki gleyma læsingunni. Inn-út- inn-inn-út. FRÉTTAVAKT VF Í SÍMA 898 2222 vaktsími allan sÓlarHringinn VALUR KETILSSON SKRIFAR FIMMTUDAGSVALS Neytendur athugið! Múrbúðin selur al lar vörur s ínar á lágmarksverði fyr ir a l la , a l l taf . Gerið verð- og gæðasamanburð! Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is – Afslátt eða gott verð? Fuglavík 18, Reykjanesbæ sími 421 1090. Opið mán.–fös. kl. 8-18, Opið laugardagana 1.12 og 8.12 frá 10-14 Harðir jólapakkar eru okkar sérgrein! Flísjakki með hettu 6.450 Skv. staðli EN471 NOVA TWISTER 4,8V Skrúfvél og skrúfbitar 1.790 LED Bílavasaljós 1.490 NOVA 18V Rafhlöðuborvél 2 hraðar 4.990 LED Þríhyrningsljós 990 SHA-2625 Vinnuljóskastari Rone 28W m. innst. blár 5.995 Truper 1/4” Topp lyklasett (mikið úrval lyklasetta) 4.900 HDD1106 580W stingsög DIY 3.990 DASH skrúfvél Li-Ion rafhlaða 3,6V m/bitum verð 2.990,- Rafhlöðuborvél /skrúfvél HDD 3213 18V DIY 8.990 ZB2105 LED ljós með hleðslurafhlöðu 2.995 Drive toppasett 17 stk 1/4” 990 Tactix plastbox, verð frá 349 Snyrtispegill með stækkun 1.299 Tactix Stubby/toppa- og bitasett 40 stk 2.290 Proma Topp lyklasett 3/8” 10 toppar 2.490 Tactix bita/topp- lyklasett 55 stk. 3.790 Tactix smáhlutabox 31x27x6 cm 999 Tactix verkfærakista 40x23x20 cm margir litir 1.599 Proma topplyklasett 1/2” 32 stk. 4.390

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.