Víkurfréttir


Víkurfréttir - 29.11.2012, Blaðsíða 32

Víkurfréttir - 29.11.2012, Blaðsíða 32
AÐVENTA • fimmtudagurinn 29. nóvember 2012 • VÍKURFRÉTTIR32 Jón Gunnar Kristinsson er einn fjöl-margra sem nýtt hefur sér starfsendur- hæfingu hjá Samvinnu í þeirri viðleitni að komast aftur út á vinnumarkaðinn. „Ég kom hingað inn vegna bak- og háls- vandamála sem ég hlaut í fimm bílslysum á sjö ára tímabili. Ég virtist einfaldlega draga að mér óheppna bílstjóra sem ítrekað óku á mig,“ segir Jón Gunnar um ástæður þess að hann leitaði til Samvinnu. „Mitt versta slys varð árið 1998 á Reykjanes- brautinni margfrægu en ekið var aftan á mig á 110 kílómetra hraða þar sem ég var stopp til að beygja inn á Vatnsleysuströnd á leið minni til vinnu. Við þetta slys snérist upp á bakið á mér frá mjóbaki og upp í háls og þar byrjuðu vandamálin mín. Hin slysin sem eftir komu gerðu svo illt verra þar sem þau ýfðu alltaf upp meiðslin eftir fyrsta slysið og líkami minn náði ekki að jafna sig aftur og verkirnir urðu krónískir“. Jón Gunnar segir að hann hafi alltaf verið verkamaður. Hann er með vinnuvélaréttindi og meirapróf en vegna meiðslanna þá hafi hann farið mikið á milli starfa þar sem að hann varð að finna sér atvinnu sem að bakið á sér réð við í hvert skipti. „Ég endaði á því að finna mér skrifstofu- starf hjá stóru fyrirtæki og taldi meiðsli mín ekki átt að hafa áhrif á getu í því starfi sem ég sinnti ötullega á fimmta ár. Þarna gerði ég stærstu mistökin á mínum vinnuferli,“ segir Jón Gunnar og bætir við: „Um leið og ég settist niður þá hætti ég að hreyfa mig eða reyna á þá vöðvahópa sem verst fóru í mínum slysum. Ég varð það slæmur á end- anum að ég gat ekki unnið, sofið, staðið, setið eða legið og framtíðarhorfur mínar voru ekki bjartar. Hann segist hafa orðið bitur, reiður, daufur og leiður. „Ég var niðurbrotinn með meiru en neitaði að gefast upp. Ég pantaði mér tíma hjá lækni til að byrja upp á nýtt við að koma bakinu á mér í stand. Þessi frábæri læknir benti mér á Samvinnu og þau úrræði sem þar eru í boði fyrir fólk í minni aðstöðu. Ég komst inn á vegum Virk starfsendur- hæfingarsjóðs og hóf mína endurhæfingu sem innihélt sjúkraþjálfun og hreyfingu í sjúkraþjálfuninni Átaki. Við fengum fjár- málanámskeið sem kom reglu á fjármálin. Ég fékk heilmikla sjálfsstyrkingu sem á ótrúlega stuttum tíma fyllti mig af sjálfstrausti, bjart- sýni og gleði,“ segir Jón Gunnar. Hann segist hafa lent í frábærum hópi fólks hjá Samvinnu, sem sýndi mikla samstöðu og rútína komst á lífið. „Það hafði lengi blundað í mér draumur að vinna við matvælaframleiðslu en ég hef aldrei treyst mér til að sækja þangað eða þar til að snillingarnir hjá Samvinnu redduðu mér starfsþjálfunarplássi í gróðrarstöðinni Glitbrá í Sandgerði. Hún Gunnhildur Ása í Glitbrá og hennar starfsmenn og fjölskylda tóku mér fagnandi og voru frábær í alla staði. Þar var rekið á eftir mér að slappa af og taka því rólega. Ása sagði mér að finna mín tak- mörk og vinna með meiðslunum. Ég byrjaði nú ekki vel, entist í þetta 2 til 3 tíma á dag og þá var deginum lokið hjá mér vegna verkja,“ segir Jón Gunnar. „Ég fékk að vera allt sumarið hjá Ásu og í lok sumars var ég farinn að standa í allt að 6 tíma á dag og var þetta einmitt það sem ég þurfti með minni sjúkraþjálfun til að styrkja mig enn meira. Þó svo þetta hafi verið erfitt og ég hafi farið heim og verkjað í bakið eftir hvern vinnudag þá hafði áhuginn og ánægjan sigur og ég hélt þetta út. Í kjölfarið á þessari reynslu hef ég í dag skýra framtíðarsýn. Stefnan var tekin á nám og byrjaði ég það núna í haust hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum þar sem ég fór í Grunnmenntaskólann á vegum Virk og Samvinnu“. Jón Gunnar segir að eftir útskrift þar sé stefna tekin á Garðyrkjuskólann þar sem hann langar að leggja fyrir sig ylrækt og á endanum að opna sína eigin gróðrarstöð. Þar sem hann getur eytt sínum tíma á sínum hraða við eitthvað sem hann hefur gaman að. „Í mínum huga þá er engin spurning að ég hefði ekki komist á þann stað þar sem ég er í dag án þeirrar aðstoðar og styrks sem að Samvinna veitir mér. Starfsfólkið og kenn- arar hérna leggja sig öll fram við að gera þetta að góðri upplifun og þau leggja ótrúlega mikið á sig til að finna eitthvað sem hentar þeim sem leita til þeirra. Ég ætla að halda ótrauður áfram og mun ég ávallt muna þá góðmennsku sem hérna býr og ekkert annað en þakklæti kemst að þegar að ég hugsa til baka þetta ár sem liðið er síðan að ég datt hingað inn,“ segir Jón Gunnar Kristinsson um veru sína hjá Samvinnu. Samvinna, starfsendurhæfing á Suðurnesjum, bauð á dög- unum samstarfsfyrirtækjum til málþings í Reykjanesbæ. Mark- miðið var að kynna starfsendur- hæfingu á vinnustöðum og styrkja samstarf Samvinnu við fyrirtækin á Suðurnesjum. Þó nokkur fyrir- tæki sem tekið hafa á móti starfs- mönnum til starfsþjálfunar sendu fulltrúa sína á málþingið. Þar var kynning á Samvinnu, Virk starfs- endurhæfingarsjóður var kynntur fyrir málþingsgestum og þá sögðu stjórnendur í fyrirtækjum frá reynslu sinni af því að taka fólk til starfsþjálfunar. Einnig sagði þátttakandi Samvinnu frá reynslu sinni af starfsþjálfun. Þá var að endingu kynnt svokallað „Mentora-námskeið“ þar sem fyrirtækjum verður boðið að þjálfa upp leiðbeinendur innan fyrirtækja. Rúmlega 50 fyrirtæki hafa verið í samstarfi við Samvinnu með starfs- endurhæfingu á vinnustöðum og um 70 þátttakendur hafa farið í starfsþjálfun á vinnustað. „Samstarfið hefur gengið mjög vel og er í stöðugri þróun. Þetta er mjög mikilvægur þáttur í starfs- endurhæfingunni og er vert að n Jón Gunnar Kristinsson nýtti sér starfsendurhæfinGu samvinnu: n málþinG um tenGsl atvinnulífs við starfsendurhæfinGu hJá samvinnu: Úr alvarlegum meiðslum í nám og atvinnu 51 fyrirtæki í sam- starfi við samvinnu þakka öllum þeim fjölmörgu fyrir- tækjum sem tekið hafa þátt í þessu verkefni með okkur. Við gætum þetta ekki án þeirra,“ segir R. Helga Guðbrandsdóttir ráðgjafi hjá Sam- vinnu. Markmiðin með starfsþjálfuninni eru fjölmörg og geta verið breytileg eftir hverjum þátttakanda. Helstu markmiðin eru: -Að þátttakandi fái tækifæri til að prófa nýjan Starfsvettvang. -Að stækka tengslanet þátttakanda og opna leið inn á Vinnumarkað- inn. -Að reyna á starfshæfni þátttak- anda á vinnustöðum. -Að þátttakendur fái yfirsýn yfir vinnumarkaðinn á Suðurnesjum. Þátttakandi fær tækifæri til að kynnast starfinu á vinnustaðnum með því að vinna þar eins og hann væri einn af starfsmönnunum. Vinnutími þátttakanda er ein- staklingsbundinn allt frá hálfum r. helga Guðbrandsdóttir ráðgjafi hjá samvinnu.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.