Víkurfréttir - 29.11.2012, Page 32
AÐVENTA • fimmtudagurinn 29. nóvember 2012 • VÍKURFRÉTTIR32
Jón Gunnar Kristinsson er einn fjöl-margra sem nýtt hefur sér starfsendur-
hæfingu hjá Samvinnu í þeirri viðleitni að
komast aftur út á vinnumarkaðinn.
„Ég kom hingað inn vegna bak- og háls-
vandamála sem ég hlaut í fimm bílslysum á
sjö ára tímabili. Ég virtist einfaldlega draga
að mér óheppna bílstjóra sem ítrekað óku á
mig,“ segir Jón Gunnar um ástæður þess að
hann leitaði til Samvinnu.
„Mitt versta slys varð árið 1998 á Reykjanes-
brautinni margfrægu en ekið var aftan á mig
á 110 kílómetra hraða þar sem ég var stopp
til að beygja inn á Vatnsleysuströnd á leið
minni til vinnu. Við þetta slys snérist upp
á bakið á mér frá mjóbaki og upp í háls og
þar byrjuðu vandamálin mín. Hin slysin sem
eftir komu gerðu svo illt verra þar sem þau
ýfðu alltaf upp meiðslin eftir fyrsta slysið og
líkami minn náði ekki að jafna sig aftur og
verkirnir urðu krónískir“.
Jón Gunnar segir að hann hafi alltaf verið
verkamaður. Hann er með vinnuvélaréttindi
og meirapróf en vegna meiðslanna þá hafi
hann farið mikið á milli starfa þar sem að
hann varð að finna sér atvinnu sem að bakið
á sér réð við í hvert skipti.
„Ég endaði á því að finna mér skrifstofu-
starf hjá stóru fyrirtæki og taldi meiðsli mín
ekki átt að hafa áhrif á getu í því starfi sem
ég sinnti ötullega á fimmta ár. Þarna gerði
ég stærstu mistökin á mínum vinnuferli,“
segir Jón Gunnar og bætir við: „Um leið og
ég settist niður þá hætti ég að hreyfa mig
eða reyna á þá vöðvahópa sem verst fóru í
mínum slysum. Ég varð það slæmur á end-
anum að ég gat ekki unnið, sofið, staðið, setið
eða legið og framtíðarhorfur mínar voru ekki
bjartar.
Hann segist hafa orðið bitur, reiður, daufur
og leiður. „Ég var niðurbrotinn með meiru
en neitaði að gefast upp. Ég pantaði mér tíma
hjá lækni til að byrja upp á nýtt við að koma
bakinu á mér í stand. Þessi frábæri læknir
benti mér á Samvinnu og þau úrræði sem
þar eru í boði fyrir fólk í minni aðstöðu.
Ég komst inn á vegum Virk starfsendur-
hæfingarsjóðs og hóf mína endurhæfingu
sem innihélt sjúkraþjálfun og hreyfingu í
sjúkraþjálfuninni Átaki. Við fengum fjár-
málanámskeið sem kom reglu á fjármálin. Ég
fékk heilmikla sjálfsstyrkingu sem á ótrúlega
stuttum tíma fyllti mig af sjálfstrausti, bjart-
sýni og gleði,“ segir Jón Gunnar.
Hann segist hafa lent í frábærum hópi fólks
hjá Samvinnu, sem sýndi mikla samstöðu og
rútína komst á lífið.
„Það hafði lengi blundað í mér draumur
að vinna við matvælaframleiðslu en ég hef
aldrei treyst mér til að sækja þangað eða þar
til að snillingarnir hjá Samvinnu redduðu
mér starfsþjálfunarplássi í gróðrarstöðinni
Glitbrá í Sandgerði. Hún Gunnhildur Ása í
Glitbrá og hennar starfsmenn og fjölskylda
tóku mér fagnandi og voru frábær í alla staði.
Þar var rekið á eftir mér að slappa af og taka
því rólega. Ása sagði mér að finna mín tak-
mörk og vinna með meiðslunum. Ég byrjaði
nú ekki vel, entist í þetta 2 til 3 tíma á dag og
þá var deginum lokið hjá mér vegna verkja,“
segir Jón Gunnar.
„Ég fékk að vera allt sumarið hjá Ásu og í lok
sumars var ég farinn að standa í allt að 6 tíma
á dag og var þetta einmitt það sem ég þurfti
með minni sjúkraþjálfun til að styrkja mig
enn meira. Þó svo þetta hafi verið erfitt og ég
hafi farið heim og verkjað í bakið eftir hvern
vinnudag þá hafði áhuginn og ánægjan sigur
og ég hélt þetta út. Í kjölfarið á þessari reynslu
hef ég í dag skýra framtíðarsýn. Stefnan var
tekin á nám og byrjaði ég það núna í haust
hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum þar
sem ég fór í Grunnmenntaskólann á vegum
Virk og Samvinnu“.
Jón Gunnar segir að eftir útskrift þar sé
stefna tekin á Garðyrkjuskólann þar sem
hann langar að leggja fyrir sig ylrækt og á
endanum að opna sína eigin gróðrarstöð.
Þar sem hann getur eytt sínum tíma á sínum
hraða við eitthvað sem hann hefur gaman
að.
„Í mínum huga þá er engin spurning að ég
hefði ekki komist á þann stað þar sem ég er
í dag án þeirrar aðstoðar og styrks sem að
Samvinna veitir mér. Starfsfólkið og kenn-
arar hérna leggja sig öll fram við að gera þetta
að góðri upplifun og þau leggja ótrúlega
mikið á sig til að finna eitthvað sem hentar
þeim sem leita til þeirra. Ég ætla að halda
ótrauður áfram og mun ég ávallt muna þá
góðmennsku sem hérna býr og ekkert annað
en þakklæti kemst að þegar að ég hugsa til
baka þetta ár sem liðið er síðan að ég datt
hingað inn,“ segir Jón Gunnar Kristinsson
um veru sína hjá Samvinnu.
Samvinna, starfsendurhæfing á Suðurnesjum, bauð á dög-
unum samstarfsfyrirtækjum til
málþings í Reykjanesbæ. Mark-
miðið var að kynna starfsendur-
hæfingu á vinnustöðum og styrkja
samstarf Samvinnu við fyrirtækin
á Suðurnesjum. Þó nokkur fyrir-
tæki sem tekið hafa á móti starfs-
mönnum til starfsþjálfunar sendu
fulltrúa sína á málþingið. Þar var
kynning á Samvinnu, Virk starfs-
endurhæfingarsjóður var kynntur
fyrir málþingsgestum og þá
sögðu stjórnendur í fyrirtækjum
frá reynslu sinni af því að taka
fólk til starfsþjálfunar. Einnig
sagði þátttakandi Samvinnu frá
reynslu sinni af starfsþjálfun. Þá
var að endingu kynnt svokallað
„Mentora-námskeið“ þar sem
fyrirtækjum verður boðið að
þjálfa upp leiðbeinendur innan
fyrirtækja.
Rúmlega 50 fyrirtæki hafa verið í
samstarfi við Samvinnu með starfs-
endurhæfingu á vinnustöðum og
um 70 þátttakendur hafa farið í
starfsþjálfun á vinnustað.
„Samstarfið hefur gengið mjög vel
og er í stöðugri þróun. Þetta er
mjög mikilvægur þáttur í starfs-
endurhæfingunni og er vert að
n Jón Gunnar Kristinsson nýtti sér starfsendurhæfinGu samvinnu:
n málþinG um tenGsl atvinnulífs við starfsendurhæfinGu hJá samvinnu:
Úr alvarlegum meiðslum
í nám og atvinnu
51 fyrirtæki í sam-
starfi við samvinnu
þakka öllum þeim fjölmörgu fyrir-
tækjum sem tekið hafa þátt í þessu
verkefni með okkur. Við gætum
þetta ekki án þeirra,“ segir R. Helga
Guðbrandsdóttir ráðgjafi hjá Sam-
vinnu.
Markmiðin með starfsþjálfuninni
eru fjölmörg og geta verið breytileg
eftir hverjum þátttakanda. Helstu
markmiðin eru:
-Að þátttakandi fái tækifæri til að
prófa nýjan Starfsvettvang.
-Að stækka tengslanet þátttakanda
og opna leið inn á Vinnumarkað-
inn.
-Að reyna á starfshæfni þátttak-
anda á vinnustöðum.
-Að þátttakendur fái yfirsýn yfir
vinnumarkaðinn á Suðurnesjum.
Þátttakandi fær tækifæri til að
kynnast starfinu á vinnustaðnum
með því að vinna þar eins og hann
væri einn af starfsmönnunum.
Vinnutími þátttakanda er ein-
staklingsbundinn allt frá hálfum
r. helga Guðbrandsdóttir
ráðgjafi hjá samvinnu.