Víkurfréttir - 28.11.2013, Síða 2
fimmtudagurinn 28. nóvember 2013 • VÍKURFRÉTTIR2
LJÓSIN TENDRUÐ
Ljósin verða tendruð á vinabæjarjólatrénu frá
Kristiansand í Noregi á Tjarnargötutorgi
laugardaginn 30. nóvember kl. 16:00
Dagskrá:
Blásarasveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.
Kór Holtaskóla.
Sendiherra Noregs á Íslandi Dag Wernø Holter
aendir jólatréð.
Tendrun: Agnes Hermannsdóir
nemandi úr Háaleitisskóla.
Ávarp: Böðvar Jónsson, forseti bæjarstjórnar.
Jólahljómsveit TR flytur jólalög og stjórnar dansi í
kringum jólatréð.
Jólasveinar koma í heimsókn og bregða
á leik með börnunum.
Hei kakó og piparkökur.
HEIMIR STÍGSSON
Á BREIÐTJALDI
Um helgina verða 500 ljósmyndir úr safni Heimis
Stígssonar sýndar á breiðtjaldi í Bíósal Duushúsa.
Myndirnar eru hluti af yfirstandandi sýningu
Byggðasafns Reykjanesbæjar um Heimi Stígsson,
ljósmyndara.
Opið 13.00 – 17.00, aðgangur ókeypis.
Lítið við, tyllið ykkur og njótið.
SUÐURNESJAMÓT
Í BOCCIA
Suðurnesjamót í Boccia eldri borgara verður haldið
föstudaginn 13. desember kl. 09.00. Keppt verður í
liðakeppni, 3 saman í liði. Skráning er á
forvarnir@reykjanesbaer.is - ekkert þátökugjald.
Nánari upplýsingar eru veiar í síma 898-1394.
ÍT svið í samstarfi við Samsuð
-fréttir pósturu vf@vf.is
n Eldvarnaátak á landsvísu hófst í Reykjanesbæ:
Ráðherra slökkti elda
froða! Sigurður Ingi Jóhannsson ráðherra klæddist búningi slökkvi-liðsmanns og réðst gegn eldi á skólalóðinni.
Slökkviliðsmenn um allt land taka þátt í Eldvarna-átaki Landssambands slökkviliðs- og sjúkra-
flutningamanna (LSS) í aðdraganda hátíðanna. Þeir
hvetja almenning til að efla eldvarnir á heimilum en
kannanir hafa sýnt að eldvarnir eru ófullnægjandi
á mörgum heimilum og íbúarnir því berskjaldaðir
fyrir eldsvoðum. Ungt fólk og leigjendur eru þar í
mestri hættu samkvæmt könnunum sem Capacent
Gallup hefur gert fyrir LSS og Eldvarnabandalagið.
Allt of mörg heimili hafa engan eða of fáa reykskynj-
ara. Þau fengju því litla eða enga viðvörun ef eldur
yrði laus að næturlagi. Innan við helmingur heimila
er með eldvarnabúnað sem slökkviliðsmenn telja lág-
marksbúnað, það er reykskynjara, slökkvitæki og eld-
varnateppi. Nú fer í hönd tími þegar eldhætta eykst á
heimilum. Slökkviliðsmenn hvetja fólk því til að grípa
til viðeigandi varúðarráðstafana.
Lágmarkseldvarnir á heimilum eru:
- Reykskynjarar, tveir eða fleiri.
- Slökkvitæki við helstu flóttaleið.
- Eldvarnateppi á sýnilegum stað nálægt eldavél.
Mjög vantar á að þessi lágmarksbúnaður sé almennt
á heimilum landsmanna. LSS efnir því til átaks um að
fræða fólk um eldvarnir og mikilvægi þeirra dagana
21.-29. nóvember. Þá heimsækja slökkviliðsmenn um
allt land á fimmta þúsund átta ára börn í grunnskólum
til að fræða þau og fjölskyldur þeirra um eldvarnir. Þeir
birta einnig auglýsingar í fjölmiðlum til að minna fólk
á mikilvægi reykskynjara.
Átakið hófst í Myllubakkaskóla í Reykjanesbæ í síðutsu
viku. Þar fræddu starfsmenn Brunavarna Suðurnesja
börn um eldvarnir með aðstoð Sigurðar Inga Jóhanns-
sonar, umhverfis- og auðlindaráðherra. Í kjölfarið
fá allir grunnskólar í landinu heimsókn frá slökkvi-
liðinu sínu. Slökkviálfarnir Logi og Glóð aðstoða við
fræðsluna og fá öll börn í 3. bekk söguna af hetjulegri
baráttu þeirra systkina við Brennu-Varg að gjöf. Í
sögunni er eldvarnagetraun og eru vegleg verðlaun í
boði fyrir þá sem senda LSS réttar lausnir. Krakkarnir
fá einnig handbók Eldvarnabandalagsins um eldvarnir
heimila með sér heim.
Helstu styrktaraðilar Eldvarnaátaksins eru Mann-
virkjastofnun, 112, Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag
Íslands, TM og slökkviliðin í landinu.
Hafnargötu 29, 230 Reykjanesbær - Sími 421 8585
ÖLL HELSTU
SKÓMERKIN
ERU HJÁ OKKUR
Six mix - Ecco - Tamaris - Vagabond,
Skechers - Studio London ofl.