Víkurfréttir - 28.11.2013, Blaðsíða 24
fimmtudagurinn 28. nóvember 2013 • VÍKURFRÉTTIR24
Það hljóp aldeilis á snærið hjá Veiðarfæraþjónustunni ehf í Grindavík þegar asískt útgerðarfyrirtæki lagði
inn hjá þeim risapöntun á smokkfisktrolli. Fyrirtækið
hefur haldið öllum sínum starfsmönnum þrátt fyrir að
kreppt hafi að enda hugsa menn þar út fyrir boxið.
Viðskiptin undu upp á sig
„Þetta kom til vegna þess að aðilar frá Asíu voru að veiða við
strendur Norður-Afríku og fóru svo til Falklandseyja að veiða
smokkfisk. Þá vantaði veiðarfæri til þess og við komumst
saman niður á lausn og sendum þeim fyrsta trollið í septem-
ber,“ segir Hörður Jónsson, framkvæmdastjóri. Hann segir
trollið hafa reynst svo vel að hálfu ári síðar hefðu sömu
aðilar pantað helmingi stærra troll sem núna er í vinnslu
hjá fyrirtækinu. Hörður segir fleiri erlendar útgerðir hafa
pantað samskonar troll í kjölfarið sem nýtist vel fyrir fleiri
tegundir fiska. Þessi viðskipti hefði undið upp á sig og orðið
að meiru en búist var við. „Við höfum verið að eltast við að
ná einhverju svona í útflutning til
að styrkja stoðirnar hérna. Einnig
hafa Rússar verið að kaupa af okkur
nokkur troll til grálúðuveiða við
Grænland. Fyrir nokkrum árum
seldum við lítil troll til Maine í
Ameríku. Það týnist alltaf eitt-
hvað til,“ segir Hörður bjartsýnn
og bætir við að það þurfi að hugsa
út fyrir boxið til leita að boðlegum
samstarfsvettvangi. „Það verður að
fara út fyrir það sem maður þekkir og láta slag standa, þó
með ákveðið öryggi á bak við sig. Þýðir ekkert að hlaupa út í
eitthvað og sitja svo eftir með skuldir og ógreidda reikninga,“
segir hann kíminn.
Sömu starfsmenn frá upphafi
Veiðarfæraþjónustan hefur ekki verið laus við niðursveiflur
í kjölfar hrunsins en Hörður segir að þá hafi ekkert annað
verið í stöðunni en að leita út fyrir landsteinana að verk-
efnum. Samhliða því hafi verið reynt að spara eins og hægt
var. „Við vorum um tíma sterkir í sölu á dragnótum en í því
varð töluverður samdráttur. Þorbjörn og slík stórfyrirtæki
héldu þó sínum viðskiptum. Ég náði að halda öllum mínum
mannskap með því að hagræða og leita að verkefnum.“ Fyrir-
tækið var stofnað árið 2002 á eldri grunni sem var innan Þor-
bjarnar áður og flestir starfsmenn hans í dag, sjö manns, hafa
verið hjá honum síðan þá. „Starfsmannavelta er mjög lítil og
ég er ánægður með það því langan tíma tekur að þjálfa menn
í að geta tekið að sér fjölbreytt verkefni og ekki er hægt að
treysta hverjum sem er.“
„Það fellst margt í þessu starfi,
að vera í ritnefnd snýst nefnilega
ekki bara um það að skrifa greinar,
heldur þurfum við að skipuleggja
hvert einasta smáatriði fyrir heilt
blað og það er heilmikil vinna. Að
vera ritstjóri er nefnilega mun meiri
vinna en margir halda, en þetta
er án efa eitt það skemmtilegasta
sem ég hef gert,“ segir María sem
er afar ánægð með þá hjálp sem
ritnefndin hefur fengið frá Suður-
nesjamönnum við vinnslu blaðsins.
„Það var alls ekkert erfitt að finna
efni í blaðið því nóg er um að vera
á Suðurnesjum. Núna erum við til
dæmis með eiginlega of mikið efni,
sem er samt bara lúxusvandamál.
Okkur var alls staðar tekið mjög vel
sem kom mér skemmtilega á óvart.
Það eru einhvern veginn allir til í að
vera með í blaðinu eða hjálpa til og
langflestir eru mjög almennilegir.“
Að vanda er fjölbreytt efni í blað-
inu og segir María að FS-ingar
megi vænta þess að sjá margt nýtt
og ferskt. „Í þessu Vizkustykki er
ýmislegt sem FS-ingar hafa ekki séð
áður, án þess að ég sé ekki að gefa
of mikið upp. En þrátt fyrir ýmis-
legt nýtt erum við líka með margt
gamalt og gott, eins og kynningu
á nefndum og stjórninni, ásamt
myndum frá liðnum viðburðum á
vegum NFS.“
Gætir þú hugsað þér að vinna
við ritstörf í framtíðinni?
„Já, ég get vel ímyndað mér það.
Mér finnst margt svo ótrúlega
heillandi við blaðamennsku, þann-
ig að það kæmi mér alls ekki á
óvart,“ segir María sem telur að
blaðamennskan fari vel saman við
aðal áhugamálið sem eru ferðalög.
„Þetta er starf sem að þú gætir sinnt
hvar sem er í heiminum, það skiptir
mig mjög miklu máli vegna þess að
ég hef mikinn áhuga á því að ferðast
og sjá heiminn. Síðan er þetta bara
svo ótrúlega skemmtilegt, ekki bara
að skrifa greinar sem er reyndar
mjög skemmtilegt, en líka að redda
öllu sem þarf að redda og að reyna
að gera blað sem höfðar til sem
flesta. Líka það að gera blaðið eins
áhugavert, frumlegt og skemmti-
legt og hægt er. Þetta er mikil vinna
en jafnframt ótrúlega gefandi.“
María hefur frá blautu barns-
beini verið með pennann á lofti og
skrifað mikið. Hún segir að ímynd-
unaraflið þurfi að fá lausan taum-
inn. „Ég held að ég eigi allavega
þrjár „bækur“ sem ég skrifaði þegar
ég var yngri, þar sem minn heitasti
draumur var að vera rithöfundur.
Í grunnskóla voru samnemendur
mínir orðnir verulega þreyttir á
mér vegna þess að alltaf þegar við
áttum að skrifa sögu heima og lesa
síðan upp fyrir bekkinn, var ég allt-
af með fáránlega langar sögur, og
misskemmtilegar að sjálfsögðu. Ég
var líka með svakalegt ímyndunar-
afl þannig að ég efast ekki um að
margir hafi haldið að ég væri frá
annarri plánetu,“ segir María og
hlær.
Eins og áður segir er verið að leggja
lokahönd á Viskustykki en margir
hafa lagt hönd á plóg við gerð
blaðsins. „Við erum sjö í ritnefnd-
inni sjálfri en við erum búin að fá
nokkra aðila til þess að skrifa fyrir
okkur. Síðan eru margir að sjá um
blaðið sjálft. Það er sko alveg nóg
að gera. Það er smá stress hjá mér
en ég held að það sé alveg venjulegt
á lokasprettinum, en það er allt að
klárast og þá getum við öll andað
léttar.“
-viðtal
-viðskipti- og atvinnulíf
n Veiðarfæraþjónustan laðar að sér erlenda viðskiptavini:
Traust starfsfólk og
víðsýni í viðskiptum
Skólafélagarnir héldu mig
vera frá annari plánetu
- Segir ritstjóri Vizkustykkis sem hefur fengist við skriftir frá unga aldri
Hin 17 ára María Rose Bustos er ritstjóri
Vizkustykkis, skólablaðs Fjölbrautaskóla
Suðurnesja en blaðið kemur á næstunni.
Undirbúningur fyrir útgáfu hefur verið á
fullu að undanförnu og við fengum hina
ungu ritstýru í viðtal og forvitnuðumst
um skyldur og störf ritstjórans, en þau
eru af ýmsum toga. María segir von á
fersku og fjölbreyttu blaði og einnig að
Suðurnesjamenn hafi verið hjálpfúsir
við vinnslu blaðsins.
Ég held að ég
eigi allavega
þrjár „bækur“
sem ég skrifaði þegar
ég var yngri, þar
sem minn heitasti
draumur var að vera
rithöfundur.
pósturu vf@vf.is
pósturu vf@vf.is