Víkurfréttir


Víkurfréttir - 28.11.2013, Qupperneq 24

Víkurfréttir - 28.11.2013, Qupperneq 24
fimmtudagurinn 28. nóvember 2013 • VÍKURFRÉTTIR24 Það hljóp aldeilis á snærið hjá Veiðarfæraþjónustunni ehf í Grindavík þegar asískt útgerðarfyrirtæki lagði inn hjá þeim risapöntun á smokkfisktrolli. Fyrirtækið hefur haldið öllum sínum starfsmönnum þrátt fyrir að kreppt hafi að enda hugsa menn þar út fyrir boxið. Viðskiptin undu upp á sig „Þetta kom til vegna þess að aðilar frá Asíu voru að veiða við strendur Norður-Afríku og fóru svo til Falklandseyja að veiða smokkfisk. Þá vantaði veiðarfæri til þess og við komumst saman niður á lausn og sendum þeim fyrsta trollið í septem- ber,“ segir Hörður Jónsson, framkvæmdastjóri. Hann segir trollið hafa reynst svo vel að hálfu ári síðar hefðu sömu aðilar pantað helmingi stærra troll sem núna er í vinnslu hjá fyrirtækinu. Hörður segir fleiri erlendar útgerðir hafa pantað samskonar troll í kjölfarið sem nýtist vel fyrir fleiri tegundir fiska. Þessi viðskipti hefði undið upp á sig og orðið að meiru en búist var við. „Við höfum verið að eltast við að ná einhverju svona í útflutning til að styrkja stoðirnar hérna. Einnig hafa Rússar verið að kaupa af okkur nokkur troll til grálúðuveiða við Grænland. Fyrir nokkrum árum seldum við lítil troll til Maine í Ameríku. Það týnist alltaf eitt- hvað til,“ segir Hörður bjartsýnn og bætir við að það þurfi að hugsa út fyrir boxið til leita að boðlegum samstarfsvettvangi. „Það verður að fara út fyrir það sem maður þekkir og láta slag standa, þó með ákveðið öryggi á bak við sig. Þýðir ekkert að hlaupa út í eitthvað og sitja svo eftir með skuldir og ógreidda reikninga,“ segir hann kíminn. Sömu starfsmenn frá upphafi Veiðarfæraþjónustan hefur ekki verið laus við niðursveiflur í kjölfar hrunsins en Hörður segir að þá hafi ekkert annað verið í stöðunni en að leita út fyrir landsteinana að verk- efnum. Samhliða því hafi verið reynt að spara eins og hægt var. „Við vorum um tíma sterkir í sölu á dragnótum en í því varð töluverður samdráttur. Þorbjörn og slík stórfyrirtæki héldu þó sínum viðskiptum. Ég náði að halda öllum mínum mannskap með því að hagræða og leita að verkefnum.“ Fyrir- tækið var stofnað árið 2002 á eldri grunni sem var innan Þor- bjarnar áður og flestir starfsmenn hans í dag, sjö manns, hafa verið hjá honum síðan þá. „Starfsmannavelta er mjög lítil og ég er ánægður með það því langan tíma tekur að þjálfa menn í að geta tekið að sér fjölbreytt verkefni og ekki er hægt að treysta hverjum sem er.“ „Það fellst margt í þessu starfi, að vera í ritnefnd snýst nefnilega ekki bara um það að skrifa greinar, heldur þurfum við að skipuleggja hvert einasta smáatriði fyrir heilt blað og það er heilmikil vinna. Að vera ritstjóri er nefnilega mun meiri vinna en margir halda, en þetta er án efa eitt það skemmtilegasta sem ég hef gert,“ segir María sem er afar ánægð með þá hjálp sem ritnefndin hefur fengið frá Suður- nesjamönnum við vinnslu blaðsins. „Það var alls ekkert erfitt að finna efni í blaðið því nóg er um að vera á Suðurnesjum. Núna erum við til dæmis með eiginlega of mikið efni, sem er samt bara lúxusvandamál. Okkur var alls staðar tekið mjög vel sem kom mér skemmtilega á óvart. Það eru einhvern veginn allir til í að vera með í blaðinu eða hjálpa til og langflestir eru mjög almennilegir.“ Að vanda er fjölbreytt efni í blað- inu og segir María að FS-ingar megi vænta þess að sjá margt nýtt og ferskt. „Í þessu Vizkustykki er ýmislegt sem FS-ingar hafa ekki séð áður, án þess að ég sé ekki að gefa of mikið upp. En þrátt fyrir ýmis- legt nýtt erum við líka með margt gamalt og gott, eins og kynningu á nefndum og stjórninni, ásamt myndum frá liðnum viðburðum á vegum NFS.“ Gætir þú hugsað þér að vinna við ritstörf í framtíðinni? „Já, ég get vel ímyndað mér það. Mér finnst margt svo ótrúlega heillandi við blaðamennsku, þann- ig að það kæmi mér alls ekki á óvart,“ segir María sem telur að blaðamennskan fari vel saman við aðal áhugamálið sem eru ferðalög. „Þetta er starf sem að þú gætir sinnt hvar sem er í heiminum, það skiptir mig mjög miklu máli vegna þess að ég hef mikinn áhuga á því að ferðast og sjá heiminn. Síðan er þetta bara svo ótrúlega skemmtilegt, ekki bara að skrifa greinar sem er reyndar mjög skemmtilegt, en líka að redda öllu sem þarf að redda og að reyna að gera blað sem höfðar til sem flesta. Líka það að gera blaðið eins áhugavert, frumlegt og skemmti- legt og hægt er. Þetta er mikil vinna en jafnframt ótrúlega gefandi.“ María hefur frá blautu barns- beini verið með pennann á lofti og skrifað mikið. Hún segir að ímynd- unaraflið þurfi að fá lausan taum- inn. „Ég held að ég eigi allavega þrjár „bækur“ sem ég skrifaði þegar ég var yngri, þar sem minn heitasti draumur var að vera rithöfundur. Í grunnskóla voru samnemendur mínir orðnir verulega þreyttir á mér vegna þess að alltaf þegar við áttum að skrifa sögu heima og lesa síðan upp fyrir bekkinn, var ég allt- af með fáránlega langar sögur, og misskemmtilegar að sjálfsögðu. Ég var líka með svakalegt ímyndunar- afl þannig að ég efast ekki um að margir hafi haldið að ég væri frá annarri plánetu,“ segir María og hlær. Eins og áður segir er verið að leggja lokahönd á Viskustykki en margir hafa lagt hönd á plóg við gerð blaðsins. „Við erum sjö í ritnefnd- inni sjálfri en við erum búin að fá nokkra aðila til þess að skrifa fyrir okkur. Síðan eru margir að sjá um blaðið sjálft. Það er sko alveg nóg að gera. Það er smá stress hjá mér en ég held að það sé alveg venjulegt á lokasprettinum, en það er allt að klárast og þá getum við öll andað léttar.“ -viðtal -viðskipti- og atvinnulíf n Veiðarfæraþjónustan laðar að sér erlenda viðskiptavini: Traust starfsfólk og víðsýni í viðskiptum Skólafélagarnir héldu mig vera frá annari plánetu - Segir ritstjóri Vizkustykkis sem hefur fengist við skriftir frá unga aldri Hin 17 ára María Rose Bustos er ritstjóri Vizkustykkis, skólablaðs Fjölbrautaskóla Suðurnesja en blaðið kemur á næstunni. Undirbúningur fyrir útgáfu hefur verið á fullu að undanförnu og við fengum hina ungu ritstýru í viðtal og forvitnuðumst um skyldur og störf ritstjórans, en þau eru af ýmsum toga. María segir von á fersku og fjölbreyttu blaði og einnig að Suðurnesjamenn hafi verið hjálpfúsir við vinnslu blaðsins. Ég held að ég eigi allavega þrjár „bækur“ sem ég skrifaði þegar ég var yngri, þar sem minn heitasti draumur var að vera rithöfundur. pósturu vf@vf.is pósturu vf@vf.is

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.