Víkurfréttir - 28.11.2013, Page 10
fimmtudagurinn 28. nóvember 2013 • VÍKURFRÉTTIR10
Hafnargötu 23 - 230 Reykjanesbæ s. 660 1757
facebook.com/krummaskud
Bollarnir með verkum eftir myndlistar-
konuna Sveinbjörgu fást hjá okkur
2 í pk á kr. 5.990,-
kr. 3.600,- stk.
Matseðill
Kalkúnn í smjöri
Hunangsgljáð skinka
Savory “stuffing”
Alvöru “Gravy”
Fullt af flottu meðlæti
fimmtudaginn
28. nóvember
11:00 - 14:00 - 2490kr
16:30 - 21:00 - 2790kr
börn 7-12 ára - 995kr
Ásbrú
Ættfræðispjall á
Bókasafni Reykjanesbæjar
Félagar á Suðurnesjum í Ættfræðifélagi Íslands ætla að hittast á Bókasafni Reykjanesbæjar þriðjudaginn 3. desember n.k. kl. 17-
19 og spjalla saman um ættfræði. Nánari upplýsingar veitir Kristján
Einarssson í síma 421-3233.
Jólabasar kvenfélagsins Gefnar í Garði
Hinn árlegi jólabasar kvenfélagisns Gefnar í Garði verður haldinn sunnudaginn 1. desember nk. kl. 15:00 í Kiwanishúsinu í Garði
að Heiðartúni 4. Margt góðra muna ásamt tertum, brauði, laufabrauði,
sultu, smákökum, handavinnu o.fl. verður til sölu. Allur ágóði rennur í
líknarsjóð félagsins. Einnig verður hægt að setjast niður og gæða sér á
kaffi og piparkökum gegn vægu gjaldi.
Basar á Nesvöllum
Félag eldri borgara á Suður-nesjum stendur fyrir basar á
Nesvöllum föstudaginn 29. nóv-
ember kl. 14:00. Á basarnum
verða í boði matur, kökur, föndur,
prjónavara og ýmislegt fleira.
Kaffisala og vöfflur fyrir 500 krónur.
Ágóði rennur til góðgerðarmála.
F.h. basarnefndar,
Erna Agnarsdóttir
Tölu verð f r u m s ý n i ng ar-stemning var meðal Grýlu,
Leppalúða og hinna félaganna
hjá Leikfélagi Keflavíkur þegar
blaðamaður Víkurfrétta kíkti á
æfingu hjá þeim á mánudags-
kvöld. Það styttist líka óðum
í frumsýningu jólaleikritsins
Hamagangur í Hellinum á föstu-
dagskvöld. Verkið er unnið upp
- leiklist
-félagsstarf
„Hamagangur í hellinum“
- Jólaleikrit Leikfélags Keflavíkur
úr öðru leikriti en stytt og stað-
fært á skemmtilegan hátt af leik-
hópnum sjálfum. Ýmsar kunnug-
legar og litríkar persónur munu
koma fram í verkinu sem gerist í
helli Grýlu og Leppalúða þar sem
jólasveinarnir undirbúa komu
jólanna ásamt foreldrum sínum
og gæludýrum. Þrír kettir taka
þátt í sýningunni; gamli jóla-
kötturinn, nýi jólakötturinn og
einn alvöruköttur.
Að sögn Höllu Karenar Guðjóns-
dóttur, sem leikur Grýlu, leiðir
sagan áhorfendur einnig inn
á hótel í Reykjanesbæ þar sem
skemmtilegir og óvæntir hlutir
gerast. Hamagangur í hellinum er
þriðja verkið sem fer á fjalir Frum-
leikhússins á þessu ári og það segir
allt um grósku leiklistarstarfs hér
á svæðinu. Enginn leikstjóri var
ráðinn að þessu sinni heldur tók
hópurinn að sér, í annað sinn frá
upphafi, að stýra í sameiningu.
Halla Karen segir það hafa gengið
mjög vel. Verkið verður sýnt um
helgar fram að jólum, sýningin
tekur eina klukkustund og er fyrir
alla fjölskylduna.
Miðaverði er stillt í hóf, aðeins 1000
krónur, til þess að sem flestir geti
nýtt sér það tækifæri að stíga örlítið
út úr jólaösinni og njóta þessarar
skemmtilegu sýningar.
Meðfylgjandi myndir tók Olga
Björt á æfingu nú í vikunni.
Skeggræða! Það verður Hamagangu í hellinum á föstudaginn.
jóla