Víkurfréttir


Víkurfréttir - 28.11.2013, Blaðsíða 14

Víkurfréttir - 28.11.2013, Blaðsíða 14
fimmtudagurinn 28. nóvember 2013 • VÍKURFRÉTTIR14 FRÁBÆRT ÚRVAL AF FLOTTRI GJAFAVÖRU FRÁ GEORG JENSEN, IITTALA OG ROSENDAHL Ásdís Ragna Einarsdóttir verður í eldhúsinu hjá okkur að þessu sinni. Hún á af- mæli viku fyrir jól og segist vera mikið jólabarn og alltaf sé mikil tilhlökkun á þessum árstíma. „Ég byrja nú yfirleitt að baka í byrjun desember og baka nú yfirleitt ekki margar tegundir af smákökum en alltaf eitthvað til að eiga fyrir heimilisfólkið og gesti og gang- andi. Piparkökur er alltaf vinsælt að baka hjá börnunum og höfum við reynt að halda í þann sið að baka sjálf og mála piparkökur”. Þá hittist einnig öll móðurfjöl- skylda hennar, fullorðnir og börn, og bakar hnetusmjörskökur hjá ömmu og afa hennar, enda séu þau bakarar með meiru. Þá segir Ádís sörurnar hennar mömmu sinnar líka ómissandi hluta af jól- unum og þær séu í miklu uppá- haldi hjá sér. Undanfarin jól hafi henni fundist spennandi að prófa sig áfram með nýjar tegundir af heilsusamlegu konfekti og hollari útgáfum af smákökum sem séu nú ekki síðri en þessar hefðbundnu. „Það er nefnilega tiltölulega ein- falt mál að skipta út hvítum sykri fyrir aðeins hollari sætu og eins að nota heilhveiti og grófara korn í sumum uppskriftum í staðinn fyrir hvíta hveitið.” Jólahefðir fjölskyldunnar séu sennilega eins og gengur á flestum heim- ilum en í fyrsta skipti í ár ætlar Ásdís og fjölskylda að prófa að kaupa lifandi jólatré. Hún leggur áherslu á að jólin hafi í för með sér fleiri samverustundir með fjölskyldu og vinum, góðan mat, hvíld og útiveru, spilakvöld með börnunum og svo margt fleira skemmtilegt. Ásdís lætur fylgja með uppskrift að jólakonfekti og hafra- og hnetusmjörsklöttum. Súkkulaði jólakonfekt 85% dökkt súkkulaði 1 pakki (t.d. Rapunzel) French vanilla stevia (t.d. Now) 5-10 dropar 60 gr íslenskt smjör 100 gr fínt hnetusmjör 5-7 steinalausar döðlur Smá möndlumjólk - í eldhúsinu pósturu olgabjort@vf.isjóla Hollt og ljúf- fengt fyrir jólin Aðferð: *Bræða súkkulaði og smjör saman og bæta steviu út í. *Setja hnetusmjör, döðlur og möndl- umjólk í matvinnsluvél þar til mjúkt eins og krem (meiri möndlumjólk ef þurfið að þynna). *Hellið smá af súkkulaðiblöndu (ca 1-2 tsk) í botninn á konfekt eða litlu muffinsformi og setjið í 5-10 mín inn í frystir eða kælir meðan stífnar. *Takið út og setjið 1 tsk af hnetufyll- ingunni ofan á og svo annað lag af brædda súkkulaðinu. *Hér er hægt að skreyta konfektið efst með goji berjum eða t.d. pekan- hnetum. Setja svo konfektform í frystir og tilbúið eftir 1-2 klst. Hafra og hnetusmjörsklattar 200 g smjör (kókosolía 2 dl) 140 g lífrænt hnetusmjör 160 g erythriol sykur 250 g haframjöl 200 g rúsínur 2 stór egg / 3 lítil 1 tsk vanilla 120 g fínt spelt 1 tsk matarsódi 1/2 tsk salt - hita ofn í 180°C, bökunartími 15 mín - bræða smjör, hnetusmsjör og sykur við lágan hita og taka svo af - hræra eggjum og vanillu út í með sleif - bæta rúsínum og haframjöli + öllum þurrefnum út í stóra skál og hræra - búa til hæfilega stóra klatta og inn í ofn á bökunarpappír Jólaljósin verða tendruð á vina-bæjarjólatrénu frá Kristians- and í Noregi á Tjarnargötutorgi í Reykjanesbæ á laugardaginn kl. 16:00. Jólasveinar eru væntan- legir í heimsókn og boðið verður upp á heitt kakó og piparkökur. Blásarasveit Tónlistarskóla Reykja- nesbæjar mun leika og þá syngur Kór Holtaskóla. Sendiherra Noregs á Ísland,i Dag Wernø Holter, afhendir jólatréð en um tendrun ljósana sér Agnes Her- mannsdóttir en hún er nemandi úr Háaleitisskóla á Ásbrú. Böðvar Jónsson, forseti bæjar- stjórnar, ávarpar gesti og jóla- hljómsveit Tónlistarskóla Reykja- nesbæjar flytur jólalög og stjórnar dansi í kringum jólatréð. Jóla- sveinar koma í heimsókn og bregða á leik með börnunum og þá verður boðið upp á heitt kakó og pipar- kökur eins og áður sagði. Vinabæjarjólatréð tendrað á laugardag

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.