Víkurfréttir


Víkurfréttir - 28.11.2013, Blaðsíða 29

Víkurfréttir - 28.11.2013, Blaðsíða 29
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 28. nóvember 2013 29 - jólaspurningar Ljóð eftir Dagrúnu Ragnars- dóttur, sigurvegara á yngsta stigi Betri væri heimurinn: Betri væri heimurinn ef enginn myndi berjast betri væri heimurinn ef enginn þyrfti að verjast betri væri heimurinn ef ekki yrðu stríð betri væri heimurinn ef tilveran væri blíð Ljóð eftir Stefaníu Lind Guð- mundsdóttur, sigurvegara á miðstigi Fallegur heimur: Ég vildi að það væri til betri heimur fyrir alla, bæði fyrir börn, konur og kalla. Grasið væri grænt, fuglarnir syngja, blómin spretta og sólin skín. Það er óskin mín. Ljóð eftir Þórdísi Önju Ragn- arsdóttur, sigurvegara á elsta stigi Betri heimur: Daglega ég á mér draum um dásamlegri heim glaðlega ég gef því gaum og geng á vegi þeim Batnandi heimur býr í mér betri með hverjum degi ber hann hlýju að hjarta þér og harmi frá þér beygi - grunnskólar pósturu vf@vf.is Sömdu ljóð um betri heim Í tilefni af degi íslenskrar tungu sem var núna 16. nóvemer sl. hélt Akurskóli í Reykjanesbæ ljóðasam- keppni sem kallast Ljóðaakur. Í henni taka krakkar í 2.-10. bekk þátt og í ár var þemað Betri heimur. Krakkarnir sömdu ljóð með það þema í huga Sigurvegararnir eru þessir: Dagrún Ragnarsdóttir í 4. bekk (yngsta stig) Stefanía Lind Guðmundsdóttir í 5. bekk (miðstig) Þórdís Anja Ragnarsdóttir í 10. bekk (elsta stig) Fyrstu jólaminningarnar? Við skreyttum alltaf jólatréð á Þor- láksmessu og borðuðum hangikjöt, grænar baunir, uppstúf, kartöflu- mús og laufabrauð á aðfangadag. Á jóladag fórum við alltaf í mat til ömmu og afa. Jólahefðir hjá þér? Okkar jólahefðir hafa verið svo- lítið breytilegar eftir því í hvaða landi við erum hverju sinni. Við höfum þó alltaf haldið í íslensku jólasveinana og hafa strákarnir okkar verið öfundsverðir af því að fá í skóinn 13 nætur í röð fyrir jól. Það hefur verið gaman að kynnast mismunandi menningu og að taka þátt í mismunandi jólahefðum. Við munum líklega skapa okkar eigin hefðir þegar við ákveðum að setjast að á einum stað til fram- búðar...hvenær sem það verður! Skatan má alveg missa sín á Þor- láksmessu og höfum við í staðinn eldað Gourmet plokkfisk úr mat- reiðslubók Gordons Ramsey, Eldað um veröld víða. Dásamlega góður plokkfiskur! Ertu dugleg í eldhúsinu yfir hátíðirnar? Ég er alin upp við smákökubakstur og laufabrauðsútskurð. Það er ómissandi að baka nokkrar sortir til að maula með heitu kakói við kertaljós og svo skreyta strákarnir mínir alltaf piparkökuhús. Það er alltaf gott fyrir þá að koma inn eftir leik í snjónum og fá sér heitt kakó og smákökur. Það skapar vissan jólaanda og lifir í minningunni um ókomin ár. Jólamyndin? Við eigum nokkrar jólamyndir á DVD sem við fjölskyldan horfum á saman í desember. Engin ein sem stendur upp úr. Jólatónlistin? Jólin eru komin þegar Frank Si- natra og fleiri snillingar í þeim dúr hljóma á Þorláksmessu. Þá getur maður slakað á og fengið jóla- andann yfir sig. Svo kemst maður ekki hjá því að heyra jólalög allt í kringum sig allan desember í versl- unum og útvarpinu. Hvar kaupirðu jólagjafirnar? Ég hef keypt þær erlendis þar sem ég hef búið hverju sinni. Einstaka sinnum hef ég keypt gjafir á Íslandi ef það er eitthvað séríslenskt sem við höfum ætlað að gefa. Gefurðu mikið af jólagjöfum? Ég á mjög stóra fjölskyldu þannig að já þær eru nú nokkuð margar. Það er gaman að gleðja sína nán- ustu með góðum gjöfum. Ertu vanaföst um jólin, eitthvað sem þú gerir alltaf? Ég er alltaf búin að versla allar jóla- gjafir tímanlega. Ég vil ekki lenda í stressi því ég vel allar jólagjafir gaumgæfilega. Ég er hreinlega of skipulögð til þess að þú fyndir mig ráfandi á milli verslana að reyna að kaupa síðustu jólagjöfina á Þorláks- messu eða aðfangadag. Besta jólagjöf sem þú hefur fengið? Það er alltaf gaman að fá góða bók til að lesa um jólin en eiginmaður minn hefur verið duglegur að gefa mér fallega hluti í gegnum árin, þar á meðal undurfallegan demants- hring. Hvað er í matinn á aðfangadag? Það á eftir að halda fjölskyldu- fund og ákveða jólamatseðilinn. En hann er breytilegur ár frá ári. Eftirminnilegustu jólin? Við ákváðum eitt árið að bregða út af vananum og fórum til Dubai yfir jól og áramót í stað þess að koma til Íslands. Það var mikil upplifun að geta farið á skíði inni í stórri verslanamiðstöð þegar maður var orðinn leiður á sólinni eða farið í safaríferð í eyðimörkinni. Án efa afslappaðasta jólafrí fyrr og síðar. Hvað langar þig í jólagjöf? Góða bók, einhverja góða saka- málasögu. Harpa Lind Harðardóttir: Alltaf tímanlega með jólagjafakaup Jólin hjá Hörpu Lind Harðardóttur eru misjöfn eftir því hvort hún hefur búið hérlendis eða í útlöndum. Það hefur aðallega farið eftir því með hvaða liðum eiginmaður hennar, knattspyrnumaðurinn Stefán Gíslason, hefur spilað. Í ár býr fjölskyldan í Garðabæ og verða íslenskar hefðir því kærkomnar og þau umvafin vinum og ættingjum. Húsnæði óskast Knattspyrnudeild Keflavíkur óskar eftir lítilli íbúð í Keflavík fyrir leikmann. Vinsamlega hafið samband á e-mail kef-fc@keflavik.is eða s. 8928058 Ship o Hoj sælkeraverzlun er byrjuð að bjóða upp á heitan bakkamat í hádeginu alla virka daga frá 11:30-14:00. Matreiðslumeistarinn Gylfi Inga- son hefur nýlega verið ráðinn til starfa en með Gylfa kemur ára- tuga reynsla. Hann hefur m.a. unnið í rúm 20 ár við matreiðslu í fínustu veiðihúsum landsins en eins og margir vita eru kröfur á þeim bænum miklar. Gylfi hefur einnig unnið við sölu og fram- leiðslu á kjöt- og fiskafurðum til fjölda ára. Í hádeginu verður boðið upp á humar- & fiskisúpu auk fisk- & kjötrétta. Gæðin verða í fyrir- rúmi ásamt viðráðanlegu verði. Hráefnið kemur ferskt í hús, því verður um góðan heimilismat að ræða, segir í tilkynningu frá Ship o Hoj. Auk þessa mun Ship o Hoj áfram bjóða upp glæsileg kjöt- og fisk- borð ásamt öðrum spennandi af- urðum, s.s. eðalsíld frá Fáskrúðs- firði, humar frá Vestmannaeyjum, harðfisk frá Sandgerði, signum fisk frá Garði, sjófrystar lúðus- teikur, góðar sósur og meðlæti og margt margt fleira. Heitur matur í hádeginu í Ship o Hoj

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.