Víkurfréttir


Víkurfréttir - 06.12.2012, Síða 4

Víkurfréttir - 06.12.2012, Síða 4
fimmtudagurinn 6. desember 2012 • VÍKURFRÉTTIR4 PÁLL KETILSSONvf.is Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 Krossmóa 4, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is Jón Júlíus Karlsson, jjk@vf.is, GSM 849 0154 Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is Víkurfréttir ehf. Þórgunnur Sigurjónsdóttir, sími 421 0006, thorgunnur@vf.is Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006 Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0000, rut@vf.is og Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is Landsprent 9000 eintök. Íslandspóstur www.vf.is, m.vf.is og kylfingur.is Útgefandi: afgreiðsla og ritstjórn: ritstjóri og ábm.: fréttastjóri: blaðamenn: auglýsingadeild: umbrot og hönnun: auglýsingagerð: afgreiðsla: Prentvinnsla: uPPlag: dreifing: dagleg stafræn Útgáfa: RITSTJÓRN RITSTJÓRNARBRÉF Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkur-frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkur-frétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prent- aðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta. Hvar verslar þú fyrir þessi jól? Þetta er spurning sem við öll sem búum á Suðurnesjum þurfum að spyrja okkur. Hafi einhvern tíma verið mikilvægt að geta svarað þessari spurningu játandi er það nú. Hvort sem litið er til sérverslana í okkar næsta nágrenni eða matvöruversl- ana, þá er það nauðsynlegt að við lítum okkur nær þegar við ákveðum hvar við gerum jólainnkaupin. Rekstur verslana í okkar nærumhverfi á undir högg að sækja, sérstaklega í sérverslunum og smærri búðum. Ekki viljum við þurfa að sækja það sem við þurfum út fyrir svæðið þó svo að það sé vissulega nauðsynlegt í einhverjum tilfellum. Þróun í verslun á Suðurnesjum hefur því miður verið á þá leið að það hefur kvarnast út úr úrvalinu og þjónustunni. Vissa vöruflokka hrein- lega vantar. En vonandi tekst að hífa það upp. Gott dæmi um þetta er verslunargatan í Keflavík, Hafnargatan. Hún er götótt. Þar er pláss fyrir fleiri aðila. Þar eru þó fyrir góðir aðilar að berjast og því er það svo mikilvægt að við sýnum þeim lit, sem og öðrum við- skiptaaðilum á svæðinu. Sama má segja um matvöruna, en hér á Suðurnesjum er þriðja stærsta matvörukeðja landsins, Samkaup hf., sem hefur um árabil stutt við samfé- lagið í hinni margvíslegu mynd, auk þess að veita fjölmörgum atvinnu. Við hér á Víkurfréttum höfum verið í markaðsátaki, skafmiðahapp- drættinu Jólalukkunni, í mörg ár með verslunum og fyrirtækjum. Verkefnið er hugsað til að sameina krafta aðila á svæðinu, styrkja versl- unina og vera hvatning til bæjarbúa að gera jólainnkaupin heima. „Ég ætla að kaupa allar jólagjaf- irnar hér heima. Við verðum að standa saman,“ sagði góður maður við okkur hér á VF um daginn. Höfum þessi orð í huga. Það er betra fyrir okkur öll. Láttu drauminn rætast Ég man eftir þeirri stundu sem ég ákvað að verða flugmaður eins og hún hafi gerst í gær. Ég hef verið svona 6 ára gamall þegar ég fór í sumarfrí með fjölskyldunni minni til Hollands og flugstjórinn var afa- bróðir minn. Hann bauð mér að kíkja fram í og það er stund sem ég gleymi aldrei. Allir þessir takkar heilluðu mig og frá þeirri stundu var ekki aftur snúið. Ég var stað- ráðinn í að verða flugmaður. Atvinnuflugmannsnám hjá Keili Árið 2007 rættist svo draumurinn og ég útskrifaðist með einkaflug- mannsskírteini sem er fyrsta skrefið í átt að atvinnuflugmannsprófi. Ég hóf svo atvinnuflugmannsnám árið 2009 hjá nýjum flugskóla Keilis og var í hópi þeirra fyrstu sem út- skrifuðust úr bóklegu atvinnuflug- mannsnámi frá þeim árið 2010. Atvinnuflugmannsnám skiptist í bóklegan og verklegan hluta og er mjög krefjandi og krefst mikils aga og skipulagningar. Bóklegi hlut- inn fór fram í fjarnámi og var það í fyrsta skipti sem boðið var upp á það á Íslandi. Fjarnámskerfið er mjög gott, kennararnir reynslu- miklir og alltaf tilbúnir til að hjálpa ef nemendur lentu í einhverjum vandræðum með námið. Eftir að ég lauk bóklega hlutanum tók við verklegt atvinnuflug- mannsnám og blindflugsréttindi á fjölhreyfla flugvél hjá Keili. Það sem heillaði mig við að taka þann hluta hjá Keili voru splunkunýjar hátækni Diamond flugvélar sem eru með fullkomnustu kennslu- vélum í heiminum í dag. Það voru í raun forréttindi að fá að læra á svo góð tæki því reynslan sem ég fékk er heldur betur að reynast mér vel í dag. Keilir gerir út frá Keflavíkur- flugvelli sem var önnur ástæða sem heillaði mig. Það var mjög góð reynsla að fljúga frá alþjóðaflugvelli þar sem er mikil þotuumferð og maður þarf að vera á tánum allan tímann. Aðstæður til flugnáms eru góðar Skemmtilegasti hlutinn af náminu fannst mér blindflugið. Þau rétt- indi gera manni kleift að fljúga í lélegu skyggni og inni í skýjum og er í raun mjög öguð leið til að fljúga flugvél. Blindflugsmælitækin í vélum Keilis eru mjög flott og fullkomin sem gerði námið enn skemmtilegra og ýtti enn meira undir áhugann að læra þá list sem blindflug er. Aðstæður á Íslandi til flugnáms eru mjög góðar og oft krefjandi, sérstaklega á veturna, en vélarnar eru vel búnar til þess að takast á við íslensk skilyrði. Partur af náminu er að takast á við erf- iðar aðstæður þar sem maður þarf að skipuleggja vel fram í tímann og hugsa um alla þá möguleika sem eru til staðar og vera við öllu viðbúinn. Kennararnir í verklegu deildinni voru frábærir og leið- beindu mjög vel við allar aðstæður. Aðstaða verklegu deildarinnar er til fyrirmyndar og viðhaldið á vél- unum er gott. Atvinnuflugmaður hjá stóru flugfélagi Í kjölfar námsferils míns hjá Keili var ég ráðinn sem þjálfunarstjóri í Flugakademíu Keilis. Þar sá ég um skipulagningu verklegu deildar- innar og tók að mér ýmis önnur verkefni innan flugakademíunnar. Sú reynsla sem ég fékk í því starfi á eftir að fylgja mér til æviloka. Það opnuðust fyrir mér ótal víddir. Ég starfaði hjá Keili í tvö ár og ég kynntist fullt af frábæru fólki þar. Í dag starfa ég sem atvinnuflug- maður hjá stóru flugfélagi í Evrópu og er að fljúga Boeing 737-800. Þessa stundina er ég staðsettur í Svíþjóð og þaðan flýg ég til áfanga- staða um nánast alla Evrópu. Það fylgir mikil ábyrgð að fljúga stórri þotu sem tekur um 200 farþega. Öll sú reynsla sem ég fékk í flugnáminu hjá Keili er sannarlega að skila sér núna. Ég hlaut góða þjálfun hjá Keili sem er að reynast mér afar vel í mínu starfi í dag. Ef ekki væri fyrir Keili og það frábæra fólk sem þar er þá væri ég ekki á þeim stað sem ég er á í dag. Ragnar Magnússon Flugakademía Keilis býður upp á nám í einkaflugi og atvinnu- flugi, auk flugtengdra greina svo sem flugumferðarstjórn og flugþjónustu. Tekið er við um- sóknum fyrir vorönn 2013 til 10. desember næstkomandi. Nánari upplýsingar á www.keilir.net/flug stu tta r Jólakaffi- húsakvöld í Eldey í kvöld Það verður jóla, jóla á kaffi-húsakvöldinu í Eldey, Grænásbraut 506 á Ásbrú, í kvöld, fimmtudagskvöldið 6. desember, frá kl. 20:00 - 22:00. Marta Eiríksdóttir mun kynna bókina sína: Becoming Goddess - Embracing Your Power en í henni fjallar Marta um þessa innri visku sem við eigum að- gang að í hjarta okkar. Bókin er ekta náttborðsbók, þú vilt eiga hana og fletta upp í henni þegar „lífsins skóli“ er þér um megn og þig vantar andlegan stuðning. Lifandi jólatónlist og ein alls- herjar jólastemmning í húsinu: jólasápur, jólasvuntur, jólasultur og jólatilboð. Boðið verður upp á kaffi og heimabakað gegn frjálsum fram- lögum og vinnustofur hönnuða verða opnar. Komdu þér í jólagírinn með okkur í Eldey! ÞARFTU Að AUglýsA? Hafðu samband í síma 421 0001 eða á fusi@vf.is

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.