Víkurfréttir - 06.12.2012, Blaðsíða 17
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 6. desember 2012 17
Nærri öld er liðin síðan Kefla-víkurkirkja var vígð og því
vel við hæfi að taka hana í gegn
í tíma fyrir 100 ára afmælið árið
2015. Það er gaman að sjá virð-
inguna sem verki Rögnvaldar er
sýnd hér í þessu húsi í útfærslu
Páls V. Bjarnasonar arkitekts sem
hefur lagt sig fram um að varð-
veita hið vandaða verk Rögn-
valdar, en til samræmis við kröfur
nútímans.
Skóli er ekki hús. Skóli er fólk sagði
Ragnar H. Ragnar fyrrum skóla-
stjóri Tónlistarskólans á Ísafirði
og hið sama má segja um kirkj-
una. Kirkjan er ekki hús. Kirkjan
er fólk. Þessi bygging væri óþörf
ef ekki væri fólkið, sóknarbörnin
sem hingað leita á stundum gleði
og sorgar. Á helgum og hátíðum
til að lofa Guð og tilbiðja. Og eins
og þessi fallega kirkja hefur fengið
nýtt útlit, sem byggt er á þeim
grunni er lagður var í upphafi, er
starf safnaðarins byggt á gömlum
grunni kristinnar boðunar og
gilda. Orð Guðs er alltaf nýtt og á
við í öllum aðstæðum og á öllum
aldursskeiðum.
Hér í Keflavík hefur verið öflugt
safnaðarstarf sem tekið hefur
mið af þörfum safnaðarins hverju
sinni. Þegar atvinnuleysi ríkir og
afleiðingar þess setja svip á mann-
lífið gerir Kirkjan sér grein fyrir
því að hlutverk hennar er mikið í
samfélaginu. Hún lætur verkin tala
um leið og Orðið er boðað. Jakob
postuli talar um trúna og verkin
í bréfi sínu í Nýja-testamentinu.
Í lok kaflans segir hann: „Eins og
líkaminn er dauður án anda, eins
er og trúin dauð án verka“. Í Jesú
nafni, í krafti trúarinnar á Jesú Krist
vinnur Kirkja þessa heims. Hér í
Keflavík hefur Kirkjan verið í farar-
broddi bæði innan Þjóðkirkjunnar
og samfélagsins hér. Hér hefur fólk
verið kallað til starfa af honum er
sendir og gefur styrk. Af Kristi sem
segir: „Allt sem þér gerðuð einum
minna minnstu bræðra, það hafið
þér gert mér..“
Í dag er fyrsti desember, full-
veldisdagurinn. Í ár eru liðin 94
ár frá því að Ísland varð frjálst og
fullvalda ríki. Þann dag ríkti fögn-
uður yfir náðum áfanga þrátt fyrir
frostaveturinn mikla, Kötlugos og
spönsku veikina. Við höfum risið
upp eftir áföll og það munum við
Íslendingar gera enn og aftur. En
á meðan atvinnuleysi og allt er því
fylgir er til staðar er dýrmætt að
eiga trú og Kirkju sem fetar í fótspor
Jesú Krists, sem kom fram við fólk
af virðingu og kærleika. Kirkju sem
minnist ábyrgðar sinnar gagnvart
sóknarbörnunum og viðurkennir
samfélagslega ábyrgð sína.
Hvergi eru áhrif samdráttarins eftir
hið efnahagslega hrun skýrari en á
Suðurnesjum. Kirkjan hér hefur
lagt sig fram um að efla bræður og
systur í samfélaginu. Kirkjan hefur
verið farvegur fyrir þann kærleika
sem í hjörtunum býr og gert fólki
kleift að styðja systkini sín á erf-
iðum tímum. Það hefur verið horft
til barnanna og unglinganna sem
og fullorðins fólks og nú fá um 50
börn mat í hádeginu á hverjum
skóladegi, sem velferðarsjóður
kirkjunnar greiðir.
Aðventan gengur í garð á morgun.
Undirbúningstími jólanna. Þá
minnist Kirkjan sérstaklega
þeirra sem búa við kröpp kjör eða
skort. Í ár er yfirskrift söfnunar
Hjálparstarfs kirkjunnar „hreint
vatn gerir kraftaverk.“ Vatn er lífs-
nauðsynlegt og af því höfum við
Íslendingar nóg. Við getum fengið
hreint vatn nánast hvenær sem er
og hvar sem er. Það á ekki við alls
staðar. Jesús talaði við samverska
konu um vatnið og sagði: „...en
hvern sem drekkur af vatninu er
ég gef honum mun aldrei þyrsta að
eilífu.“ Kirkjan flytur þann boðskap
er varir að eilífu. Boðskap sem
er traustur grunnur til að byggja
líf sitt á. Keflavíkurkirkja er líka
N1 AÐALSTÖÐIN REYKJANESBÆ
SÍMI: 421 4800
eða
SAMLOKA
Skinka, ostur, grænmeti, sósa,
franskar kartöflur og ½ l. Coke
eða Coke light í plasti
995 kr.
MOZZARELLASTANGIR
og ½ l. Coke eða Coke light í plasti
795 kr.
eða
=
=
=
FJÖLSKYLDUTILBOÐ
4 ostborgarar, franskar kartöflur
og hraunbitakassi
2.995 kr.
+
+
+
FRÁBÆR OG FREISTANDI
VEITINGATILBOÐ
Fallegar gjafavörur
í jólapakkann
Fjóla Gullsmiður - Hafnargötu 21
Sími: 421 1011
KirKja er fólK
Við opnun kirkjunnar var sjálf-
boðaliðum og fagmönnum þakkað
fyrir framúrskarandi störf sín við
endurbæturnar. Það voru eftirtalin:
Páll Bjarnason arkitekt
Albert Hinriksson verkstjóri
Albert Hjálmarsson byggingar-
stjóri
Sveinn Valdimarsson verkfræð-
ingur sá um verkfræðihönnun
Brynja Eiríksdóttir ljósmyndari tók
myndir meðan á verkinu stóð
Róbert Guðbjörnsson og hans
menn sáu um raflögn
Helgi Grétar Kristinsson sá um
oðrun á predikunarstól, altari og
ramma um altaristöfluna
Lagnaþjónusta Suðurnesja sá um
pípulögn
Tónabúðin sá um hljóðkerfið
Trésmiðja Ella Jóns smíðaði bekk-
ina, lagfærði predikunarstólinn,
altarið og fleira
Ingvi Þór Sigríðarson vann að
endurgerð predikunarstólsins,
smíði á tröppum og frágang á
rammanum um altaristöfluna og
sálmatöflu og gaf þá vinnu í minn-
ingu bróður síns Árna og mágkonu
Rutar , Gunnars Jóns Sigtryggs-
sonar og hjónanna Þuríðar Hall-
dórsdóttur og Árna Bjargmundar
Árnasonar
Stefán Stefánsson sá um dúklögn
Ævar og Magnús sáu um steinlögn
Trésmíði Guðjóns og hans menn
sáu um smíðavinnu við gólf, veggi
o.fl.
JRJ verktakar sáu um málningar-
vinnuna
Anna Pála Sigurðardóttir fægði alt-
arismunina
Einnig ber að færa þakkir til Sigur-
jónsbakarís, sem hefur gefið okkur
brauð í ómældu magni mörg
undanfarin ár.
Þá tóku sóknarnefnd, messuþjónar
og súpuþjónar við kirkjuna virkan
þátt í vinnunni og verður því fólki
seint fullþakkað fyrir störf sín.
byggð á traustum grunni. Grunni
sem lagður var fyrir margt löngu og
byggt var á þetta fallega Guðshús.
En þar var ekki látið staðar numið.
Í gegnum tíðina hafa endurbætur
átt sér stað til að aðstaðan til að lofa
Guð og ákalla væri sem best. Þar
sem Orð Guðs er boðað, grunnur
þess að að sýna trú sína í verki. Í
þeim anda er starfið hér í söfnuð-
inum unnið. Þið eruð farvegurinn
fyrir þau kærleiksver sem Kristur
kallar okkur til þess að vinna, því
kirkjan er ekki hús, hún er fólk. Til
hamingju með endurbæturnar á
kirkjunni ykkar. Guð blessi ykkur
og allt það góða starf sem hér er
unnið í hans nafni.
KeflaVÍKUrKirKja
feNGU ÞaKKir
F.v. Prestarnir Erla Guðmunds-
dóttir og Sigfús B. Ingvason,
Gunnar Kristjánsson prófastur
Kjalarnessprófastsdæmis,
Agnes Sigurðardóttir biskup
og Skúli S. Ólafsson sóknar-
prestur í Keflavíkurkirkju.
VF-mynd/Páll Orri Pálsson.