Víkurfréttir


Víkurfréttir - 06.12.2012, Blaðsíða 24

Víkurfréttir - 06.12.2012, Blaðsíða 24
fimmtudagurinn 6. desember 2012 • VÍKURFRÉTTIR24 n NÝTT JÓLALEIKRIT LEIKFÉLAGS KEFLAVÍKUR GERIR STORMANDI LUKKU: Eysteinn Eyjólfsson, gestur á frumsýningu: Jólaskapið byrJaði að geta vart við sig Við feðginin fórum á jólasýningu Leikfélags Keflavíkur - Jólin koma..eða hvað? – og höfðum gaman af eins og aðrir frumsýn- ingargestir sem voru á öllum aldri. Í sýningarlok var ekki laust við að jólaskapið hafi byrjað að gera vart við sig. Sýningin er skemmtilega skrifuð og leikstýrð af þeim Arnóri Sindra og Jóni Bjarna. Fjölmennur leikhópurinn skilar sínu vel - og rúmlega það - bæði í leik og söng á þrælfyndinni sýningu. Leikfélagið og við bæjarbúar búum vel að eiga svona kraftmikinn og efnilegan hóp. Hvet sem flesta til að slá tvær flugur á aðventunni. Skella sér í Frumleik- húsið á skemmtilega sýningu og styðja um leið við græðlinga leiklistar í heimabyggð. Árni Sigfússon, bæjarstjóri, gestur á frumsýningu: bráðskemmtileg blanda Saga Leikfélags Keflavíkur er mikilvægur þáttur í menningarsögu bæjarbúa í yfir 50 ár. Félagið hefur glímt við létt sem þung leik- verk í gegnum árin, upplifað ládeyður og hápunkta í starfi sínu eins og gengur. En alltaf hafa risið upp ofurhugar sem hafa leitt starfið áfram. Guðný Kristjánsdóttir er í hópi þessara ofurhuga sem hefur leitt starfið með góðum hópi undanfarin ár. Að öðrum ólöstuðum má ég til meða að hrósa henni. Hún hefur náð að laða að stóran hóp efnilegs ungs fólks, sem finnur sig frábærlega í leikhlutverkum og margvíslegum störfum í þágu leikfélagsins. Vinsælir þátttakendur allt frá grunnskóla og upp í Fjölbraut, hafa náð að gera félagið öflugt og eftirsótt. Það er mjög ánægjulegt að finna hvernig leikfélagið hefur gefið ungu fólki aukin tækfæri í uppfærslum eins og sannast á því skemmtilega jólaverki sem nú er verið að sýna í Frumleikhúsinu, Jólin koma… eða hvað? Okkur Bryndísi þótti þetta bráðskemmtileg blanda af leikriti og söngleik, með fjölda góðra ungra leikara, tónlistarmanna, söngvara og allra þeirra sem létu hlutina gerast á bak við tjöldin... ótrúlega fjölhæfur hópur! Það er aldrei dauður tími í verkinu- skemmtilegar skiptingar og stórvel valið í hlutverk fjölskyldunnar. Það verður fróðlegt að fylgjast frekar með leik- ritshöfundunum Jóni Bjarna og Arnóri Sindra, sem báðir eru félagar í Leikfélagi Keflavíkur. Við Bryndís fórum heim af leikritinu, staðráðin í að klára að setja upp jólaseríurnar. Við mælum með verkinu! Helga Jóhanna Oddsdóttir, gestur á 2. sýningu: börnin kunnu vel að meta glensið og hamaganginn Ég sá sýningu Leikfélags Keflavíkur á jólaleikritinu „Jólin koma- eða hvað?“ ásamt fjölskyldu sinni sl. sunnudag. Sýningin er stórvel heppnuð, mikið líf og fjör sem samtvinnast léttri jólatónlist og söng. Söguþráðurinn er léttur og rennur vel, mikið um skemmtileg atriði sem koma öllum til að hlægja dátt. Leikararnir skiluðu sínu óað- finnanlega, mest allt ungir og undantekningarlaust hæfileikaríkir krakkar sem eiga framtíðina fyrir sér í leik og söng. Sýningin höfðar til allrar fjölskyldunnar og ekki síst barna sem kunna vel að meta glensið og hamaganginn. Það verður enginn svikinn af þessari sýningu sem er þess svo sannarlega virði að njóta á aðventunni í okkar góða bæ. Mikil aukning hefur verið í sjúkraflutningum á yfir- standandi ári og stefnir í met- fjölda útkalla. Mesti fjöldi útkalla hingað til var árið 2008 en þá voru þau 2066, eftir hrun fjár- málamarkaða og kreppu sem fylgdi í kjölfarið drógust sjúkra- flutningar nokkuð saman og voru fæstir árið 2010 eða 1816, síðan þá hefur útköllum fjölgað og stefnir í að í ár verði metið frá 2008 slegið. Þegar tölfræðin er skoðuð vekur það athygli hversu mikil aukning hefur verið á sjúkra- flutningum frá Suðurnesjum til Reykja- víkur. Árið 2007 voru um 37% allra útkalla til Reykjavíkur en í ár stefnir í að 47% allra sjúkraflutninga séu út fyrir heil- brigðisumdæmi HSS. Ekki verður séð að nokkuð í umhverfinu hafi breyst á þessum tíma annað en að HSS hefur orðið fyrir verulegum niðurskurði sem síðan leiðir af sér aukið álag á Brunavarnir Suður- nesja. Í þessu samhengi ber að hafa í huga að sjúkraflutningur til Reykjavíkur tekur fjórum sinnum lengri tíma en sjúkraflutningur innanbæjar. Sú fjölgun og breyting á eðli útkalla gerir að verkun að eðlileg krafa um hækkun á núverandi samningi milli Sjúkratrygginga Íslands og Brunavarna Suðurnesja verði tekin gild. Það getur ekki talist góð eða eðlileg stjórn- sýsla að dregið sé úr útgjöldum á einum stað, vitandi að það muni leiða til aukinna útgjalda hjá öðrum án þess að koma til móts við eðlilegar kröfur um aukin fjárframlög til þess að mæta auknum kostnaði og álagi. Það er einsdæmi meðal þeirra sem eru með samning við Sjúkratryggingar Íslands um sjúkraflutninga að svo hátt hlutfall útkalla sé flutt í annað heilbrigðisumdæmi. Þrátt fyrir að reynt hafi verið að fá viðsemjendur til þess að taka tillit til þessarar staðreyndar hefur ekki tekist að ná fram þeirri hækkun sem við teljum nauðsynlega og sanngjarna. Núgildandi samningur við Sjúkratrygg- ingar Íslands rennur út um áramót og eru viðræður í gangi milli samningsaðila. Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2012 er gert ráð fyrir 1,2% hækkun milli ára, sú hækkun er ekki að fylgja kjara eða verðlagsþróun, hvað þá að tekið sé tillit til verulegs aukins álags vegna fjölgunar á útköllum og ekki síst miklum fjölda sjúkraflutninga út fyrir heil- brigðisumdæmi HSS. Það er von mín að þeir stjórnmálamenn sem fara með fjárveitingarvaldið sjái þá sann- girni sem felst í þeim hógværu kröfum sem við höfum sett fram, en þær eru settar fram til þess að Brunavarnir Suðurnesja geti til framtíðar veitt Suðurnesjamönnum framúrskarandi neyðarþjónustu með vel menntuðum og öflugum starfsmönnum. Með góðum kveðjum Jón Guðlaugsson Slökkviliðsstjóri Metár í sjúkraflutningum á Suðurnesjum Leikfélag Keflavíkur frumsýndi um helgina nýtt frumsamið jólaleikrit eftir þá Jón Bjarna og Arnór Sindra, sem báðir eru félagar í Leikfélagi Keflavíkur. Jólaleikritið heitir Jólin koma… eða hvað? Verkið fjallar að sjálfsögðu um jólin og ýmislegt í kringum þau með óvæntum uppákomum og fjöri auk þess sem vinsæl og þekkt jólalög óma inni á milli atriða í flutningi frábærra söngvara sem félagið er svo heppið að hafa innanborðs. Það er óhætt að segja að verkið hafi fallið vel í kramið hjá áhorfendum. Sýningin er sprenghlægileg og kút- veltist salurinn um að hlátri. Sprenghlægilegt jólaleikrit

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.