Víkurfréttir - 06.12.2012, Blaðsíða 32
Gangan í Litla skólann á Skóla-veginum var ekki löng. Við
R a g n h e i ð u r
vorum samferða
f lesta morgna
frá gatnamótum
Klapparstígs og
Túngötu. Hálfa
leið upp Suður-
götuna. Oftar en
ekki töfðumst
við á leiðinni.
Níu ára krakkar eru oft annars
hugar. Einkunnabókin mín segir
þrisvar sinnum of seint. Stafsetn-
ing og lestur í góðu lagi. Fjórða
spjald undirritað af Sigurbjörgu
Halldórsdóttur. Reikningur slakur
og leikfimi í meðallagi. Sund-
tímarnir ekki á óskalistanum.
Þorði ekki fyrstu árin. Svakalega
vatnshræddur. Harkaði af mér um
sumarið á sundnámskeiði hjá Guð-
mundi Óskari. Í fylgd mömmu.
Sápustykkið afhent úr bogalöguðu
búri sundhallarinnar. Ilmaðaði
hreint út sagt vel. Ljósblátt.
Ökumaður bif reiðarinnar Ö-6840, gulur Fiat, hefur
í dag kl. 07.40 á Hraunsvegi við
hús númer 4, gerst brotlegur gegn
ákvæðum umferðarlaga, um stöðu
og stöðvun ökutækja. Lagt öfugt
miðað við akstursstefnu. Vegna
framangreinds brots ber að greiða
sekt að upphæð nýkr. 110.- í
ríkissjóð. Undir þetta ritar lög-
reglumaður annaðhvort nr. 6 eða
13, Jóhannes Jensson. Fyrsta um-
ferðarlagabrotið staðreynd. Nítján
ára námsmaður átti ekki þennan
pening. Ég hlýt að hafa verið
annars hugar að leggja svona. Ástin
óútreiknanleg. Þori ekki að segja
pabba frá þessari vitleysu. Sumar-
hýran rýrnar. Andskotinn!
Börnin nýorðin þrjú og ekki úr vegi fyrir fjölskylduna að
stækka heimilið. Í bígerð að kaupa
nýbyggt raðhús í Lágmóanum, í
hjarta Njarðvíkur. Bæjarfélagið
fagnar 50 ára afmæli og von er á
forsetanum í tilefni hátíðarhald-
anna. Eins og það væri ekki nóg.
Hjá ungum og hraustum manni á
tuttugasta og níunda ári kraumaði
krafturinn undir niðri. Vildi ólmur
breyta ímynd Verslunarmanna-
félagsins. Kjörin og félagsaðildin
ónóg. Bauð mig fram til formanns.
Jói Geirdal keppinauturinn. Taldi
að viss stöðnun hefði átt sér stað
og nýtt fólk yrði að koma til svo að
störf félagsins breyttust, þau yrðu
persónulegri. Lagði aðaláherslu á
að bæta samskiptamál félagsins.
Laut í lægra haldi.
Tími tilkominn að flytja aftur til Keflavíkur. Í Háaleitið. Sum-
arið eitt það erfiðasta í lífinu. Missti
bæði atvinnu og móður í sama
mánuði. Heimurinn hrundi í einni
svipan og sálarlífið stóð á brauð-
fótum. Á öllum sviðum. Þrjátíu
og níu ára og dapur. Ómetanleg
hjálp og samheldni í fjölskyldu
og vinum. Sá ljósið að nýju. Allt í
nýju ljósi. Ný verkefni komu upp
í hendurnar. Fullviss um að öllu
væri stýrt að handan. Umvafinn
kærleika og hlýju. Í Jesú nafni.
Fimmtudagurinn 6. desember. Fjörtíu og níu ára gamall í dag.
Auðmýkt efst í huga. Best að skrifa
eitthvað í dagbókina.
vf.is
Fimmtudagurinn 6. desember 2012 • 48. tölublað • 33. árgangur
auglýsingasími víkurfrétta er 421 0001
Opið alla miðvikudaga frá kl. 8:00 – 16:00
Tímapantanir í síma 426 8540
Opið virka daga frá kl. 8:00 – 17:00
Frjáls mæting
VALUR KETILSSON SKRIFAR
FIMMTUDAGSVALS
FRÉTTAVAKT VF Í SÍMA 898 222
Fagleg, traust og persónuleg þjónusta
Hringbraut 99 - 577 1150
VIÐ ÞÖKKUM SUÐURNESJAMÖNNUM FYRIR GÓÐA
MÓTTÖKUR VIÐ OPNUN APÓTEKS SUÐURNESJA
Við höfum ákveðið að láta
öll tilboð gilda til áramóta
20% afsláttur á Now vítamínum
15% afsláttur á Nikótínlyfjum
Lágt lyfjaverð og góð þjónusta
Félagar í FEB fá 12% afslátt af öllum vörum
og góð kjör á lyfseðilsskyldum lyfjum
Apótek Suðurnesja er opið:
Mánudaga-föstudaga. 9:00 - 19:00.
Laugardaga 14:00 - 18:00.
Erum mætt aftur!
Dagbók níunnar
Eldsneyti var stolið af sjúkra-bíl í Reykjanesbæ í síðustu
viku. Bifreiðin stóð á bílastæði
við slökkvistöðina í Reykjanesbæ
þegar óprúttnir aðilar í skjóli
nætur tóku nær allt eldsneytið af
bílnum.
Þegar eldsneyti er stolið af neyðar-
bílum getur það haft mjög alvar-
legar afleyðingar þegar til neyðar-
tilfella kemur og viðkomandi út-
kallstæki er nánast eldneytislaust.
Umræddur sjúkrabíll er notaður
sem varasjúkrabíll þegar aðrir bílar
BS eru í útkalli. Það gerist reglulega
að allir sjúkrabílar svæðisins eru
uppteknir og þá þarf að grípa til
varabílsins.
Á undanförnum vikum hefur borið
á því að eldsneyti sé stolið af bílum
og er skemmst að minnast elds-
voða við Iðavelli þegar verið var
að dæla eldsneyti af bíl með þeim
afleiðingum að eldur varð laus og
mikið tjón hlaust af.
„Þessir þjófnaðir virðast vera farir
að færast á annað stig, þegar svo
er komið að eldsneyti er stolið af
neyðarbílum slökkviliðsins. Ég
veit ekki hvort að þeir sem leggjast
svo lágt geri sér grein fyrir því að
útkallið gæti eins verið til þeirra,
eða þeirra ættingja sem og annara
bæjarbúa,“ segir Jón Guðlaugs-
son, slökkviliðsstjóri Brunavarna
Suðurnesja.
Jón vill að endingu hvetja þá sem
verða varir við eitthvað óeðlilegt at-
hæfi að hafa samband við lögreglu
þannig að hægt verði að stemma
stigu við þessum ófögnuði sem
þessir þjófnaðir eru.
Stálu eldSneyti
af Sjúkrabílnum