Víkurfréttir


Víkurfréttir - 06.12.2012, Blaðsíða 23

Víkurfréttir - 06.12.2012, Blaðsíða 23
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 6. desember 2012 23 Sérfræðingur frá verður í Lyfju Keflavík 6. desember frá kl. 14:00 - 18:00 Með splunkunýtt, hátækni „Skin Analizer“ húðgreiningartæki, þar sem viðskiptavinir geta fengið fría húðgreiningu. Tækið greinir mjög nákvæmlega ástand húðarinnar þ.e. raka- og fitustig, litabletti, viðkvæmni, stinnleika og línur. Komdu og láttu okkur greina húðina þína 20% kynningarafsláttur Lyfja KeflavíkKrossmóa 4 - 260 Reykjanesbæ - Sími:421 6565 Marta á ferð og flugi með bók Suðurnesjamenn og lesendur vf.is munu velja Ljóshús Reykjanesbæjar 2012 í sér- stakri vefkosningu. Þetta er breyting frá því sem gert hefur verið mörg undanfarin ár þegar sérstök dómnefnd hefur valið Ljósahús ársins. Fulltrúar frá Reykjanesbæ og Vík- urfréttum hafa undanfarin ár séð um að velja fallegustu ljósahús bæjarins. Nú verður breytingin þannig að nefndin mun í kjósa tíu hús í forvali og úr þeim hópi munu bæjarbúar velja Ljósahús Reykjanesbæjar 2012 í sérstakri vefkosningu á vef Víkurfrétta, vf.is, sem mun standa yfir frá 13. til 16. des. Niðurstaða kosninganna verður t i l k y n nt m ánu d a g i n n 1 7 . desember kl. 18.00 í Duushúsum og eru allir bæjarbúar velkomnir að vera viðstaddir. Húsið sem flest atkvæði fær verður Ljósahús Reykjanesbæjar og næstu tvö fá líka viðurkenningu. Verðlaunin koma eins og áður frá HS Orku/Veitu og eru inn- eign á rafmagnsreikning við- komandi: 1. verðlaun: 30.000, 2. verðlaun 20.000, 3. verðlaun 15.000. Einnig fá verðlaunahafar sérstök viðurkenningarskjöl frá Reykjanesbæ. Sama nefnd „jólanefndin“ velur jólaglugga Reykjanesbæjar og verða úrslitin tilkynnt við sama tækifæri. Grétar Ólason, eigandi Ljósahúss Reykjanesbæjar 2011 og oft áður er búinn að skreyta hús sitt og sagði hann í spjalli við Víkurfréttir að hann myndi líklega tendra ljósin á morgun, laugardaginn 1. des. „Þetta er mikil vinna en skemmtileg. Hingað hafa undan- farin ár komið fjöldi fólks, allt upp í tveggja hæða rútur. Í fyrra stóðu allt í einu sjötíu Kínverjar fyrir utan húsið. Eitt skiptið kom heil rúta með kvenfélagi og ég slapp við að gefa þeim kaffi en þær þurftu margar að koma inn og pissa. Það var skemmtileg heimsókn. En maður eldist og þetta tekur mikinn tíma. Ég hef nánast ekki gert neitt annað þessa vikuna og hefði líklega ekki klárað verkið fyrir helgina ef ég hefði ekki fengið hjálpa frá syni og tengda- syni. Ég hef sagt undanfarin ár að nú sé komið nóg en svo þegar kemur að þessu þá er bara eins og ég geti ekki hætt,“ sagði Grétar í léttum dúr við Víkurfréttir. Sigríður Klingenberg sagðist vilja koma til Noregs og trylla Norðmenn! Kvennahittingur með Mörtu á VOCAL sló öll aðsóknarmet. Á Bling og Gling jólamarkaði kitlaði Marta hláturtaugar gesta með upplestri sínum. Marta tók þátt í bókabardaga á RÁS 2. Í Grindavík var hlegið dátt að Mei mí beibísitt? Marta var beðin að kíkja við og lesa upp fyrir verðandi brúður, Berglindi Skúladóttur í gæsapartý. Á bókakonfekti í Duushúsum ásamt bæjarstjórahjónunum Árna og Bryndísi. Keflvíkingarnir Marta rithöfundur og Einar töframaður voru með sprell í Eymundsson. Kvenfélög og Kínverjar í heimsókn hjá Grétari Óla MENNING OG MANNLÍF Marta Eiríksdóttir rithöfundur hefur verið á ferð og flugi með nýju bókina sína, Mei mí beibísitt?, sem er söguleg skáldsaga og æskuminningar frá bítlabænum Keflavík. Myndirnar hér að ofan hafa verið teknar á ferðum Mörtu um Suðurnes. Ljósahús Reykjanesbæjar 2012 verður valið af lesendum vf.is Ljósahús Reykjanes- bæjar 2011, Týsvellir 1.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.