Víkurfréttir


Víkurfréttir - 06.12.2012, Qupperneq 8

Víkurfréttir - 06.12.2012, Qupperneq 8
fimmtudagurinn 6. desember 2012 • VÍKURFRÉTTIR8 Jólabakstur Á þessum tíma árs gef ég gjarnan jólauppskriftir til kúnnana minna og reyni að hvetja þau til að prófa upp- skriftir að smákökum sem eru í hollari kant- inum. Þannig náum við að njóta þess að fá okkur sætindi án þess að það taki mikinn toll af heilsunni og líkamanum. Mig langar því að deila með ykkur tveimur uppskriftum að smákökum sem ættu að falla í kramið hjá flestum og þykja mjög góðar. Þið getið notað gróft spelt t.d. á móti þessu fína og jafnvel heilhveiti ef þið viljið. Einnig er hægt að nota xylitol náttúrlega sætu í staðinn fyrir kó- kóspálmasykur og eru notuð sömu hlutföll og af venjulegum sykri ef þið viljið skipta út og breyta gömlum uppskriftum (1 b sykur = 1 b kókóspálmasykur eða xylitol, 1 b sykur = ½ - ¾ b agave síróp). Gangi ykkur vel og njótið! Hollari piparkökur 4 dl fínt speltmjöl 1 ½ dl kókóspálmasykur 2 tsk kanill 1 tsk negull 1 tsk engifer 1/8 tsk pipar 1 tsk vínsteinslyftiduft 90 g smjör ½ dl mjólk ½ dl agave síróp -blanda öllu saman og fletja út deig, skera út piparkökur -bakið við 200°C í 10-15 mín Hafra og Hnetusmjörs smákökur 2 dl kókósolía (eða 200 g smjör) 140 g lífrænt ‘crunchy’ hnetusmjör 160 g kókóspálmasykur 250 g haframjöl 200 g saxaðar döðlur og/eða rúsínur 2 stór egg eða 3 lítil 1 tsk vanilla 120 g fínt spelt 1 tsk vínsteinslyftiduft ¼ tsk salt -blanda olíu/smjöri, hnetusmjöri og kókós- pálmasykri saman við lágan hita og taka af hellu -hræra eggjum og vanilla út í með sleif -bæta döðlum og haframjöli + öllum þurr- efnum út í stóra skál og hræra -búa til hæfilega stóra klatta og inn í ofn á bökunarpappír -bakið við 180°C í 15 mín Heilsukveðja, Ásdís grasalæknir. www.facebook.com/grasalaeknir.is www.pinterest.com/grasalaeknir Ásdís grasalæknir skrifar HeIlsUHoRnIð Allir velkomnir! Nýtt símanúmer 421 4848 - Promoda, Nesvöllum - Reykjanesbæ ÓSK UM GLEÐIRÍKA JÓLAHÁTÍÐ OG FARSÆLD Á NÝJU ÁRI, ÞÖKKUM VIÐSKIPTIN MIKIÐ ÚRVAL AF FLOTTUM GJAFAPAKKNINGUM, T.D. Í JÓLAPAKKANN KYNNING Á KÉRASTASE FÖSTUDAGINN 7. DESEMBER 20% AFSLÁTTUR AF VÖRUM Jóhanna Svala Linda Marta Hársnyrtistofan Við þökkum fyrir frábærar viðtökur við sameiningu KJÖRSTJÓRN SUÐURKJÖRDÆMIS auglýsir eftir framboðum á framboðslista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 2013. Þeir flokksmenn sem hafa hug á því að taka sæti á framboðslista Fram- sóknarflokksins í kjördæminu fyrir alþingiskosningarnar 2013 skulu senda kjörstjórn skriflega kynningu fyrir kl. 12:00, þann 28. desember 2012, þar sem frambjóðendur kynna sig og gera grein fyrir helstu baráttumálum sínum auk þess að tilgreina hvaða sætum á lista þeir sækjast eftir. Kynningunni skal fylgja ljósmynd. Sjá reglur á vef Framsóknar: www.framsokn.is/Flokkurinn/Frambodsreglur/Reglur_um_tvofalt_ kjordaemisthing Jafnframt eru flokksmenn hvattir til að tilnefna frambjóðendur með því að senda tölvupóst á framsokn@framsokn.is. Skal þar tilgreina nafn frambjóðanda, rökstuðning fyrir tilnefningu, hvaða sæti á listanum kæmu til greina og aðrar þær upplýsingar er skipta máli. Tilnefningar skulu sendar í síðasta lagi föstudaginn 14. desember n.k. Selfossi, 29. nóvember 2012. KJÖRSTJÓRN SUÐURKJÖRDÆMIS Eldey, kór eldri borgara Karlakór Keflavíkur Kór Keflavíkurkirkju Kvennakór Suðurnesja Sönghópur Suðurnesja Söngsveitin Víkingarnir í Stapanum 6. desember 2012 kl. 20:00 Miðaverð 1000 kr Jólatónleikar til styrktar Velferðarsjóði Suðurnesja Fram koma: Stjórnarmenn Knattspyrnu-deildar Njarðvíkur færðu Vel- ferðarsjóði Suðurnesja fjárstyrk frá deildinni ásamt innrömm- uðum keppnisbúningi félagsins, en merki Velferðarsjóðsins er á öllum keppnisbúningum deildar- innar. Styrkur þessi er afrakstur hvata- kerfis sem sett var upp vegna sam- starfssamings við aðalstyrktaraðila deildarinnar, Landsbankann, en hann setti sér nýja stefnu í stuðn- ingi við íþróttafélög sem fékk heitið „Samfélag í nýjan búning“. Lands- bankinn færði Velferðarsjóðnum einnig veglegan styrk er samn- ingurinn við deildina var undir- ritaður á síðasta ári. Knattspyrnudeild Njarð- víkur og Landsbankinn styrkja Velferðarsjóðinn Stóra jólablaðið í næstu viku! f.v.: njarðvíkingarnir leifur xxxsson, arngrímur guð- mundsson og Ólafur Thordersen og Hjördís kristins- dóttir frá Velferðasjóði með njarðvíkurbúninginn.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.