Gerðir kirkjuþings - 1983, Síða 23
17
26. og 35. mál. Um nýja Biblíuþýðingu í tilefni af kristnitök-
unni árið 2000 og fjölbreyttri útgáfu Bibliutextans.
Tillögum þessum var visað til Hins íslenska Bibliufélags, eins
og þær gerðu ráð fyrir.
29. mál. Um kirkjueignir.
Eins og fyrrverandi kirkjumálaráðherra Friðjón Þórðarson gat um
við setningu siðasta kirkjuþings ákvað hann með bréfi dagsettu
8. nóvember 1982 að skipa samkvæmt ósk minni kirkjueignanefnd,
„sem falið verði aó gera könnun á þvi, hverjar kirkjueignir hafi
verið frá fyrri tíð og til þessa dags, hver staóa þeirra hafi
verið að lögum og hvernig háttað hafi verið ráðstöfun á þeim."
Nefndin var siðan skipuð þannig samkvæmt tilnefningu:
Dr. Sigurbjörn Einarsson biskup, tilnefndur af kirkjuþingi.
Séra Þórhallur Höskuldsson, tilnefndur af stjórn Prestafélags ísl
Benedikt Blöndal hæstaréttarlögmaður, tilnefndur af biskupi.
Allan V. Magnússon lögfræðingur og dr. Páll Sigurðsson dósent,
sem er formaður nefndarinnar, tilnefndir af kirkjumálaráðherra.
Greinargerö um störf nefndarinnar fram að þessu var send kirkju-
þingsmönnum. Það, sem nú ríður mest á, er að nefndin fái starfs-
mann um stutt timabil til þess að safna heimildum um einstakar
kirkjueignir og vinna rannsóknarstörf, sem nefndin þarf á að
halda, til þess aö geta unnið áfram að verkefni sinu. Unnið er
nú að þvi, að þessi starfsmaður fáist.
30. mál. Um sunnudagaskólaefni i sjónvarpi.
Tillagan var send útvarpsráði, sem fól lista- og skemmtideild sjón
varpsins að athuga það mál, Einnig var rætt persónulega viö formann
útvarpsráðs Vilhjálm Hjálmarsson. Enn hefur beiðni þessi ekki
borið sýnilegan árangur.
31. mál. Um nafngiftir manna, leiðbeiningar og fyrirmæli.
Leitað var til hinnar islensku málnefndar svo sem Kirkjuþing
lagði til og i bréfi frá nefndinni 12. janúar segir m.a.
„Islenska málnefndin hefur haft til athugunar og umræðu erindi
yðar dags. 26. nóv. 1982 ásamt ályktun siðasta kirkjuþings um
leiðbeiningar og fyrirmæli til handa prestum vegna nafngifta
manna. Nefndinni er vel ljóst, að slikra leióbeininga er þörf
og svo hefur lengi verið, en hæpið er að nefndin sé þess umkomin
að veita þær, þar sem i reglum um starfsemi íslensku málnefndar-
innar hafa aldrei verið ákvæði um, að nefndin skuli láfca mannanöfn