Fréttablaðið - 05.12.2015, Blaðsíða 4
Báðir þeir flokkar
sem nú mynda
ríkisstjórn gagnrýndu mjög
harkalega skattahækkanir
síðustu ríkisstjórnar gagn-
vart atvinnulífinu, en þrátt
fyrir að þetta séu þriðju
fjárlög sem þessi ríkisstjórn
er að afgreiða
hafa ekki verið
stigin nein
skref til
lækkunar.
Þorsteinn
Víglundsson
framkvæmdastjóri SA
70.000
hross eru til í landinu á
hverjum tíma.
af sorpi eru árlega fluttir með
Herjólfi frá Vestmannaeyjum.
6.000
bílar fara yfir Hellisheiði á
degi hverjum.
lögreglubílum
á höfuðborgar-
svæðinu verða búnir
skammbyssum.
4 til 4,5 milljarðar
voru ofgreiðslur
neytenda í eldsneyti
á árinu 2014, segir
Samkeppniseftirlitið.
55
.0
00
k
ró
nu
r
fá
a
tv
in
nu
le
ite
nd
ur
í
jó
la
up
pb
ót
.
fjölgun hefur orðið í hópi
zúista frá því í október.ko
ltv
ísý
rin
gs
lo
su
na
r
í h
ei
m
in
um
fa
lla
ti
l í
þ
ét
tb
ýl
i. 9,8 megavött
ætlar SSB Orka að fá
með virkjun í Svartá
í Bárðardal.
8.000 rúmmetrar
80%
6.620%
$
6 af 60
tölur Vikunar 30.11.2015 til 06.12.2015
Efnahagsmál Bjarni Benedikts-
son, fjármála- og efnahagsráðherra,
segir ekkert svigrúm til að lækka
tryggingargjaldið strax um ára-
mótin. Hann telur kröfu um lækkun
gjaldsins til marks um að laun hafi
hækkað of mikið í síðustu kjara-
samningum.
Í dag greiða atvinnurekendur
7,5% af launum hvers starfsmanns
í tryggingargjald. Framkvæmda-
stjóri Samtaka atvinnulífsins og for-
seti Alþýðusambands Íslands hafa
skorað á ríkisstjórnina að lækka
gjaldið á næsta ári til að koma til
móts við þær launahækkanir sem
fylgja nýjum kjarasamningum.
„Við myndum stefna ríkinu beint
í hallarekstur ef við tækjum 2,5%
af tryggingargjaldinu strax á næsta
ári eins og verið er að tala um,“
segir Bjarni. Hann segir þó koma til
greina að lækka tryggingargjaldið á
næstu árum.
Þorsteinn Víglundsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka atvinnu-
VElfErðarmál Átakið Karlar til
ábyrgðar hefur boðið upp á með-
ferð fyrir gerendur heimilisofbeldis
undanfarin ár. Fyrir tæpum tveim-
ur árum var byrjað að bjóða konum
upp á meðferð. Tvær konur höfðu
leitað sér meðferðar fyrir rúmu ári.
Í dag hafa níu konur leitað sér með-
ferðar.
Vegna fleiri kvenna sem leita
sér aðstoðar mun nafni meðferðar
vera breytt í Heimilisfrið á næstu
dögum. Aðstandendur meðferð-
arinnar segja nafnabreytinguna
endurspegla breytta umræðu í sam-
félaginu.
Samt sem áður eru mun fleiri
karlmenn sem leita aðstoðar og
þeim fjölgar ár frá ári. 42 prósent-
um fleiri karlmenn hafa sótt með-
ferð á fyrstu sex mánuðum þessa
árs en í fyrra og frá byrjun hafa 450
karlar leitað sér aðstoðar. Andrés
Ragnarsson, sálfræðingur hjá
Körlum til ábyrgðar, segir skömm
og litla umræðu um ofbeldi gegn
körlum valda því að það fái frekar
að þrífast í skjóli þagnar.
„Það er gott að karlmenn stígi
fram og segi frá sinni reynslu. Það
opnar umræðuna og brýtur niður
staðalmyndir. Aukin umræða um
konur sem beita ofbeldi skilar sér
vonandi í því að fleiri konur leita
sér hjálpar hjá okkur,“ segir hann.
Andrés segir ekki mikinn mun á
hvernig ofbeldisbeiting er hjá kynj-
unum en það sé munur á afleiðing-
um ofbeldisins.
„Almennt er það svo að afleiðing-
ar ofbeldis karla gegn konum eru
alvarlegri. Þá er ég ekki að gera lítið
úr afleiðingum ofbeldis sem konur
beita, en í krafti aflsmunar eru kon-
urnar almennt í meiri hættu.“
Ríflega þrisvar sinnum fleiri
ofbeldiskonur leita meðferðar
Níu konur sem eru gerendur heimilisofbeldis hafa leitað sér meðferðar hjá Körlum til ábyrgðar. Fyrir ári
voru þær tvær. Skömm, þöggun og ótti við að missa börnin kemur í veg fyrir að karlmenn fari úr aðstæðum.
Skömm, ótti við að missa börnin og mögulega staðalímyndir um karlmennsku
koma í veg fyrir að karlmenn segi frá ofbeldi. Fréttablaðið/GVa
Karlar óttast
að missa börnin
Drekaslóð býður öllum fórnar-
lömbum ofbeldis ráðgjöf. Þangað
leita meðal annars karlar sem
verða fyrir heimilisofbeldi. „Karl-
menn tala mikið um andlegt
ofbeldi en það er sannarlega líka
líkamlegt ofbeldi. Konur beita til
að mynda frekar áhöldum,“ segir
Thelma Ásdísardóttir ráðgjafi.
Thelma segir tvennt koma til
sem veldur því að færri karlar leiti
sér aðstoðar. Konur eigi til að beita
börnunum fyrir sig og hóta því að
ef þeir fara þá fái þeir ekki að hitta
börnin. „Og það er nú þannig að
réttur kvenna í forræðismálum er
mjög sterkur.“ Í öðru lagi sé eins
og karlar geri sér síður grein fyrir
að þeir séu beittir ofbeldi. „Það er
eðlilegt út af skorti á umræðu og
skömmin getur verið mikil. Margir
menn hringja hingað til þess að fá
staðfestingu á að það sé verið að
beita þá ofbeldi og fá svo ráðgjöf í
kjölfarið.“
Tryggingargjaldið verður ekki lækkað
Eygló Ósk gústafsdóttir varð
fyrst íslenskra
kvenna til að
vinna til verð-
launa á stórmóti
í sundi. Eygló
Ósk hlaut
bronsverðlaun
í 100 metra
baksundi á Evrópumeistaramótinu
sem haldið er þessa dagana í Ísrael
og hún hlaut einnig bronsverðlaun
í 200 metra baksundi.
Vigdís hauksdóttir, formaður
fjárlaganefndar alþingis, sagði að
nefndin léti ekki
andlegt ofbeldi
ná til sín. Verið
væri að leggja
gríðarlega
pressu á nefnd-
ina og kenna
forystunni um
að Landspítalinn fengi ekki nægi-
lega mikið fé. Þetta sagði Vigdís
í kjölfar ummæla Páls Matthías-
sonar um viðbrögð forystu
nefndarinnar við beiðni um meira
fjármagn. Í kjölfarið ályktuðu
lækna- og hjúkrunarráð spítalans
um málið og bentu á að Íslend-
ingar væru eftirbátar OECD-landa í
framlögum til heilbrigðismála.
Ólöf nordal innanríkisráðherra
sagði í viðtali
við Fréttablaðið
að svara þyrfti
kalli ríkislög-
reglustjóra um
fleiri lögreglu-
þjóna. Nú dygðu
hins vegar
ekki fjármunir til þess. Hún sagði
skipan samráðshóps sem fara á
ítarlega yfir meðferð nauðgunar-
mála í réttarvörslukerfinu vera í
takt við það sem væri að gerast í
nágrannalöndum og þróun lög-
gjafar.
Þrír í fréttum
Sunddrottning,
spítali og
lögregluskortur
lífsins, segir að ekki verði hægt að
ganga frá samkomulagi um þær
viðbótar kostnaðarhækkanir sem
SALEK samkomulagið feli í sér án
nauðsynlegra mótvægisaðgerða.
„Fjármálaráðherra bendir réttilega
á að launahækkanir séu orðnar allt
of miklar. Þess vegna höfum við
gert þessa kröfu um mótvægisað-
gerðir til að lágmarka skaðleg áhrif
af allt of miklum kostnaðarhækk-
unum." Þorsteinn segir að ýmsar
mótvægisaðgerðir séu í boði. „Við
höfum þó bent á að lækkun trygg-
ingargjalds sé skilvirkasta aðferðin
þar.“
Þorsteinn segir SA vera mjög
ósátt við þá ákvörðun stjórnvalda
að hafa í tvígang hækkað almenna
tryggingargjaldið samtímis því að
svigrúm hafi skapast til lækkunar
á atvinnutryggingagjaldinu. „Við
krefjumst þess að það verði tekið til
baka af því að við teljum að launa-
tengdir skattar sem þessir komi
fyrirtækjum mjög illa.“ – sg
Karlmenn tala
mikið um andlegt
ofbeldi en það er sannar-
lega líka líkamlegt ofbeldi.
Konur beita til að mynda
frekar áhöld-
um.
Thelma Ásdísar-
dóttir, ráðgjafi á
Drekaslóð
Andrés segir ofbeldið geta verið
stjórntæki en það sé ekki síður
vanmáttur. „Þá kunna þau ekki að
bregðast við ögrandi aðstæðum –
eru fátæk á því sviði. Það koma upp
ögrandi aðstæður, þeim finnst þeim
ógnað og kunna jafnvel aðeins að
bregðast við á einn hátt – eða eins
og haft var fyrir þeim sem börnum.
Hlutverk okkar er að kenna öðru-
vísi viðbrögð.“
erlabjorg@frettabladid.is
Það er gott að
karlmenn stígi fram
og segi frá sinni reynslu. Það
opnar umræðuna og brýtur
niður staðal-
myndir.
Andrés Ragnars-
son sálfræðingur
5 . d E s E m b E r 2 0 1 5 l a u g a r d a g u r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
1
1
-1
2
-2
0
1
5
0
9
:2
9
F
B
1
3
6
s
_
P
1
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
1
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
A
7
-B
9
2
4
1
7
A
7
-B
7
E
8
1
7
A
7
-B
6
A
C
1
7
A
7
-B
5
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
3
6
s
_
4
1
2
2
0
1
5
C
M
Y
K