Fréttablaðið - 05.12.2015, Blaðsíða 110
Efnt verður til málstefnu í Norræna húsinu um verk og feril rithöfundarins Eyvindar Péturs Eiríkssonar í tilefni af áttræðisafmæli hans. Í kvöld verður fagnað á Sólon, þar
sem fjöldi manns kemur fram. Eftir
Eyvind liggja fjölmörg verk; skáldsögur,
ljóðabækur, leikrit og fleira. Hann hefur
ferðast mikið vegna listarinnar og búið
víða. Hann hefur gengið í ýmis störf,
þótt hann hafi lengstum sinnt kennslu.
Hann er hörkutól og er á meðal þeirra
síðustu sem ólust upp á Ströndum og
Hornströndum.
Gaman að líta til baka
„Já, það er afskaplega gaman að líta
til baka og sjá þennan fjölda verka
sem liggur eftir mann. Allt í allt eru
þetta um fjörutíu einstök verk,“ segir
Eyvindur þegar blaðamaður innir
hann eftir hversu mörg verk liggi eftir
hann. Eyvindur er skarpur og á nóg
af sögum af viðburðaríkri ævi. Sögur
sem ekki rúmast í einni blaðagrein.
Sögur um ferðalög, hvort sem það eru
ferðir um Sovétríkin á sjöunda áratug
síðustu aldar eða heimsókn til frum-
byggjabyggða Kanada fyrir um þrjátíu
árum.
„Ætli ég megi ekki teljast svolítið
duglegur,“ segir hann og heldur áfram:
„Sérstaklega þar sem skrifin verða ekki
að mínu aðalstarfi fyrr en ég kem heim
frá Danmörku og Finnlandi í kringum
1990.“
Stoltur af börnunum
Eyvindur er ekki síst þekktur fyrir
afsprengi sín, sem hafa haft áhrif á íslenska
menningu, en hann á fjögur börn. „Ég er
ótrúlega stoltur af börnunum mínum.
Ég á dótturina Rósu sem er mikil dugn-
aðarkona. Síðan á ég þrjá syni, Eiríkur er
tölvunarfræðingur búsettur í Danmörku
og svo búa þeir Eyjólfur og Erpur hér á
landi.“ Þeir tveir síðastnefndu eru auð vitað
þekktir fyrir framlag sitt til íslenskrar rapp-
menningar.
„Eyjólfur er frumkvöðullinn í þessu. Það
verður bara að segjast eins og er að Erpur
lærði af honum, Eyjólfur dró hann inn í
þetta. En Erpur er „slagfærdig“ eins og sagt
er,“ útskýrir hann og hlær.
Málfræðingur af nýja skólanum
Eyvindur er stúdent frá Menntaskólanum
á Akureyri. Hann er með BA-gráðu frá
Háskóla Íslands í dönsku og ensku, ásamt
kennslufræði. Síðar nam hann íslensku
og finnsku og er cand.mag. í íslenskri
málfræði. Í ljósi menntunar sinnar segist
hann oft hafa fengið spurninguna um
slettur sona sinna í rappinu. „Ég er mál-
fræðingur af nýja skólanum. Ég tel að það
sé ekkert að því að við notum tökuorð yfir
hugtök sem voru kannski ekki áður til.
Mestu máli skiptir að grunnhugsunin sé á
íslensku. Móðurmálið stendur okkur svo
nærri og tungumálið er svo flókið kerfi,
svo samofið okkar grunni. Móðurtungan
er dýpst og sterkust í okkur. Þegar lítil mál
deyja, þá deyja menningarheimar. Þannig
að þegar menn hætta að hugsa á sínu
Nýmóðins málfræðingur
sem ferðast hefur víða
Rithöfundurinn Eyvindur Pétur Eiríksson er heiðraður í dag í tilefni af áttræðisafmæli
hans. Eftir hann liggja um fjörutíu einstök verk en skrifin urðu hans aðalstarf árið 1990.
Eyvindur P. Eiríksson hefur gengið í hin ýmsu störf en lengst af hefur hann sinnt kennslu.
Sonur minn,
Stefán Júlíus Arthúrsson
lést á líknardeild Landspítalans
23. nóvember síðastliðinn. Útför hans
hefur farið fram í kyrrþey.
Fyrir hönd systkina og annarra aðstandenda,
Arthúr Sveinsson
Vegna andláts og útfarar okkar
ástkæru móður, dóttur,
systur og frænku,
Arnheiðar Önnu Ólafsdóttur
sem lést 13. okt. sl., sendum við
hjartans þakkir öllum þeim fjölmörgu sem
minnst hafa hennar og stutt okkur með ást,
umhyggju og kærleika, á þessum erfiða tíma.
Guð blessi ykkur.
Guðlaug Erla Jónsdóttir Ólafur Baldvin Jónsson
Gulla, Hafþór og Bjargey
Magga og Linda
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Guðbjörg Kristrún
Guðmundsdóttir Roesel
sem andaðist á Landspítalanum í
Fossvogi 19. nóvember, verður jarðsungin
frá Háteigskirkju föstudaginn 11. desember kl. 13.00.
Roy Richard Roesel Jr.
Tamara Lísa Roesel Michele Trappella
Nanna B. Benediktz Guðmundur B. Stefánsson
Helgi Þór Guðmundsson Kirstín Dóra Árnadóttir
Birgir Hlynur Guðmundsson og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Sigurður Kristófer
Óskarsson
Dalbraut 16, Reykjavík,
sem lést sunnudaginn 29. nóvember
á Hrafnistu í Reykjavík, verður jarðsunginn
frá Háteigskirkju miðvikudaginn 9. desember kl. 13.00.
Sigríður F. Guðmundsdóttir
Hafdís Ósk Sigurðardóttir Brynjar Jakobsson
Linda Ósk Sigurðardóttir Helgi Gunnarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Með kærleik og virðingu
Útfarar- og lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Jón G. Bjarnason
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
eð k rleik og virðingu
Við önnumst alla þætti undir-
búnings og framkvæmd útfarar
ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu
og umhyggju að leiðarljósi
og af faglegum metnaði.
Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sí i 551 1266 | útför.is
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Hildigunnur Halldórsdóttir
Laugarnesvegi 89, áður til
heimilis að Hagamel 26,
sem lést á Landspítalanum í Fossvogi
laugardaginn 28. nóvember, verður
jarðsungin frá Áskirkju þriðjudaginn 8. desember kl. 13.00.
Hjördís Sigrún Pálsdóttir Björgúlfur Pétursson
Þorgerður Pálsdóttir Guðmundur K. Marinósson
Bentína Unnur Pálsdóttir Kristinn Á. Halldórsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Erpur Eyvindarson er sonur Eyvindar en auk
hans á hann Rósu, Eirík og Eyjólf.
móðurmáli, skapast hætta,“ segir Eyvindur.
Hann rifjar upp tíma þegar hann dvaldi á
meðal frumbyggja í Kanada. „Þar vorum
við með túlka sem skildu ekki tungu-
málið sem ömmur þeirra og afar töluðu.
Þetta voru krakkar sem höfðu lært ensku
og skildu nútímasamfélagið, en eldri kyn-
slóðirnar töluðu bjagaða ensku, en tjáðu
sig á sínu eigin tungumáli.“
Verðlaunaður
Eyvindur hefur unnið til nokkurra verð-
launa fyrir verk sín, meðal annars Laxness-
verðlaunin. Hann hefur einnig verið
tilnefndur til Íslensku bókmenntaverð-
launanna. Í kvöld verður hluti verkanna
fluttur af ýmsum listamönnum. Meðal
þeirra sem koma fram eru Vilborg Dag-
bjartsdóttir, Egill Ólafsson, Steindór And-
ersen og Dóri DNA, auk margra fleiri, þar
á meðal sonanna Erps og Eyjólfs. Ástráður
Eysteinsson prófessor heldur erindi um
verðlaunasöguna Landið handan fjarsk-
ans og Dagný Kristjánsdóttir prófessor
verður með erindi um eldri ljóð Eyvindar
í Norræna húsinu á málstefnunni. Njörður
P. Njarðvík prófessor, Jóhanna Harðardótt-
ir Kjalnesingagoði, Hrafn Andrés Harðar-
son skáld og fleiri varpa ljósi á ýmsa þætti
í ferli Eyvindar.
kjartanatli@frettabladid.is
Ég er
málfræðingur
af nýja skól-
anum. Ég tel
að það sé
ekkert að því
að við notum
tökuorð yfir
hugtök sem
voru kannski
ekki áður til.
5 . d e s e m b e r 2 0 1 5 L A U G A r d A G U r62 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð
tímamót
1
1
-1
2
-2
0
1
5
0
9
:2
9
F
B
1
3
6
s
_
P
1
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
A
7
-E
5
9
4
1
7
A
7
-E
4
5
8
1
7
A
7
-E
3
1
C
1
7
A
7
-E
1
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
1
3
6
s
_
4
1
2
2
0
1
5
C
M
Y
K