Fréttablaðið - 05.12.2015, Page 30

Fréttablaðið - 05.12.2015, Page 30
Fyrsti samlesturinn á Hver er hræddur við Virginíu Woolf? var 16. nóvem-ber og það er nýjung hjá Borgarleikhúsinu að hafa fyrstu samlestra opna, þannig að fólk úr leikhúsinu fylgist með og allir eru í raun vel- komnir. En ég var nýkomin heim til landsins og varla búin að setja mig í stellingar, akkúrat að byrja að nota lesgleraugu og sjónin mín einhvers staðar mitt á milli eins og eins og hálfs þannig að engin gler- augu pössuðu alveg. Svo var þetta á degi íslenskrar tungu í þokkabók og ég var alveg dauðhrædd um að mis- mæla mig og klúðra – en það slapp.“ Þessu lýsir Margrét Vilhjálmsdóttir skellihlæjandi meðan við erum að koma okkur fyrir við ný borð í and- dyri Borgarleikhússins til að spjalla saman. Hún er sem sé komin frá Berlín, þar sem hún er búsett núna, til að takast á við burðarhlutverk í leik- ritinu Hver er hræddur við Virginíu Woolf? eftir bandaríska leikskáldið Edward Albee. Þetta er hlutverk Mörtu sem Elizabeth Taylor gerði ódauðlegt í kvikmynd árið 1966 og hlaut Óskarsverðlaun fyrir. Hilmir Snær leikur á móti Margréti eigin- manninn Georg, sem Richard Bur- ton gerði skil í myndinni. „Hver er hræddur við Virginíu Woolf? er rosalega magnað verk um líf hjónanna Mörtu og Georgs og þeirra aðstæður,“ segir Margrét og heldur áfram: „Marta býður ungu pari heim til þeirra hjónanna um miðja nótt í eftir-eftirpartí, áður eru þau búin að vera í partíi hjá föður hennar. Það er mikil grimmd í verkinu og sendingar milli hjónanna eru eitraðar, ást þeirra hefur með tímanum snúist upp í biturð því vonbrigði lífsins hafa leikið þau grátt.“ Barnleysi er eiginlega þunga- miðja verksins, að sögn Margrétar, Margrét Vilhjálmsdóttir, sem fer með aðalkvenhlutverkið í Hver er hræddur við Virginíu Woolf? í uppsetningu Borgar- leikhússins, skilur vel angist söguhetjunnar sem hún leikur vegna eigin reynslu en varast að nota leikhúsið sem sjálfs- hjálpartæki. Hún býr úti í Berlín með fjölskyldunni og finnst dýrmætasta verkefnið að sinna henni vel. því Mörtu og Georg hefur ekki orðið barna auðið og ungu hjónin sem eru gestir þeirra geta heldur ekki eignast börn. Þau yngri eru að uppgötva það ástand en eldri hjónin eru lengi búin að kljást við það. „En þetta er marglaga verk með vísanir í allar áttir,“ tekur Mar- grét fram. „Þarna er feðraveldið því Marta var alin upp undir hæl föður síns, háskólaprófessorsins. Nöfnin eru sótt til fyrstu forsetahjóna Bandaríkjanna og efnið má jafn- vel heimfæra upp á fyrstu hjónin, Adam og Evu, og hina eilífu vinnu við að láta sambandið endast, um valdabaráttuna á heimilinu, um stöðu konunnar, um börnin eða, eins og í þessu tilfelli, sársaukann vegna barnleysis. Spennan er raf- mögnuð og hver sena full af átökum því þau hjón draga hvort annað inn í hvern leikinn á fætur öðrum.“ Gefandi fyrir sambandið Það er Egill Heiðar Anton Pálsson, eiginmaður Margrétar, sem leik- stýrir þessari uppfærslu og vinnur þar með nýja þýðingu Sölku Guð- mundsdóttur. „Það er stórkostlegt að vera með nýjan texta sem rímar algerlega við okkar tíma, án þess að hallað sé á eldri þýðingar,“ segir Margrét. En óttast hún ekkert að talsmátinn og togstreitan í verkinu smitist yfir í hjónaband þeirra Egils Heiðars? „Nei,“ svarar hún brosandi. „Ég held að hin sterka hjónabandspæl- ing sé bara gefandi fyrir sambandið okkar, ætli verkið varpi ekki bara fallegu ljósi á það? Kannski fer maður að vanda sig meira og haga sér betur heima hjá sér! Eflaust reynir alltaf á hjón að vera að vinna saman, þó að það virki vel að ýmsu leyti, annað er ekki að bíða eftir hinu í mat eða eitthvað slíkt og mér finnst við ótrúleg heppin að geta fylgst að núna til Íslands til að vinna.“ Margrét segir efni leikritsins Hver er hræddur við Virginíu Woolf? sígilt, allir þurfi að glíma við erfiða hluti einhvern tíma á lífs- leiðinni eða þekki til vandamála ↣ Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.isStórt hlutverk & sterkar tilfinningar „Eflaust reynir alltaf á hjón að vera að vinna saman, þó það virki vel að ýmsu leyti, annað er ekki að bíða eftir hinu í mat eða eitthvað slíkt,“ segir Margrét. Fréttablaðið/VilhElM 5 . d e s e m b e r 2 0 1 5 L A U G A r d A G U r30 h e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð 1 1 -1 2 -2 0 1 5 0 9 :2 9 F B 1 3 6 s _ P 1 0 7 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 1 0 6 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 A 7 -F E 4 4 1 7 A 7 -F D 0 8 1 7 A 7 -F B C C 1 7 A 7 -F A 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 1 3 6 s _ 4 1 2 2 0 1 5 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.