Fréttablaðið - 05.12.2015, Qupperneq 56
FÓLK| HELGIN
Leikarinn og rithöfundurinn Ævar Þór Benediktsson segist vera meiri rithöfundur en leikari þessa dagana, enda
kom hans sjötta bók út á dögunum. Líf hans
núna snýst því að miklu leyti um að fylgja
bókinni eftir og kynna hana. „Þetta hefur svo
lítið tekið yfir líf mitt þessa stundina. Hlut
verk leikara og rithöfunda eru keimlík að
mörgu leyti en um leið mjög ólík. Í báðum til
vikum er aðalmarkmiðið að segja sögur, það
er eitthvað við það sem mér finnst spennandi
og skemmtilegt og þessa dagana brýst það
út þannig að ég sest niður og skrifa,“ segir
Ævar og heldur áfram: „Á meðan leikhúsið
er mikið samvinnubatterí þar sem allir eru
að vinna saman að því stóra markmiði að
sýningin gangi upp þá situr rithöfundurinn
einn með kaffibollann og reynir að fara ekki
á Facebook þegar hann á að vera að skrifa.
Ég finn mig í báðum hlutverkum, finnst gott
að skrifa þegar ég vil vera einn en svo þegar
ég sakna hópsins finnst mér gott að vera á
meðal fólks.“
TILHEYRIR NÖRDAHÓPNUM STOLTUR
Ævar er vel þekktur sem Ævar vísindamaður
en hann kom fyrst til sögunnar í útvarps
þættinum Leynifélaginu á Rás 1 fyrir um átta
árum. Hann fór svo að vera með innslög í
Stundinni okkar og í janúar fer þriðja þátta
röðin um vísindamanninn í loftið. Þannig
að ævintýrið hefur aldeilis undið upp á sig.
Ævar segir aðspurður að karakterinn Ævar
vísindamaður sé vissulega byggður á honum
sjálfum. „Ég hef alla tíð verið nörd og var auk
þess mikill grúskari þegar ég var yngri, for
vitinn og mikill lestrarhestur. Þetta er hópur
sem ég tilheyri stoltur. Vísindamaðurinn er
að mörgu leyti byggður á sjálfum mér og
þannig nýtist allt mitt grúsk í gegnum árin
mér auðvitað einstaklega vel við gerð þátt
anna. Ég er nú ekki frumlegri en það að þetta
eru gömlu gleraugun mín sem hann notar og
föt sem ég á. Ég vinn svo út frá því sem mér
finnst spennandi og vona að áhuginn smiti út
frá sér,“ segir Ævar rithöfundur og leikari.
SEXTÍU ÞÚSUND BÆKUR LESNAR
Ævar undirbýr nú annað lestrarátak Ævars
vísindamanns sem hefst þann fyrsta janúar
næstkomandi en fyrsta lestrarátakið var
síðastliðinn vetur og gekk það framar vonum.
„Þetta er einkaframtak sem byrjaði út frá því
að ég var kynnir á ráðstefnu um læsi barna.
Það var alveg sama hver kom í pontu, það
voru allir að tala um það vandamál að áhugi
barna á lestri fari sífellt minnkandi og þá sér
staklega hjá strákum. Sem gamall bókaormur
langaði mig að finna einhverja sniðuga leið til
að hafa áhrif á þetta. Það hjálpaði til að þau
vita hver ég er út frá sjónvarpinu og þannig
hafði ég ákveðið forskot sem mig langaði að
nýta í eitthvað sem skiptir máli. Átakið gekk
það vel að þegar búið var að telja allar bækur
sem voru lesnar, voru það sextíu þúsund
bækur og þetta eru krakkarnir sem allir segja
að nenni ekki að lesa. Mér fannst það svo
ótrúlega töff að ég ákvað að endurtaka leik
inn. Verðlaunin í bæði skiptin voru og eru þau
að það eru fimm krakkar sem verða gerðir að
persónum í bókunum mínum. Í fyrra skiptið
var það bókin Risaeðlur í Reykjavík sem kom
út í vor og svo er það ný bók næsta vor sem
er framhald af þeirri bók. Ritstörfin halda því
áfram og ég er byrjaður á næstu bók.“
FIMMTÍU ÓLÍK ENDALOK
Nýjasta bók Ævars heitir Þín eigin goðsaga
og segir Ævar hana virka eins og tölvuleik.
„Þessi bók og Þín eigin þjóðsaga sem ég skrif
aði í fyrra eru í sama bókaflokki. Þær virka
eins og tölvuleikur af því þú ræður hvað ger
ist í bókinni og þú stjórnar ferðinni. Bókin er
skrifuð um lesandann og er skrifuð í annarri
persónu. Hún byrjar á hefðbundinn hátt en
svo stoppar hún þegar eitthvað mikið er að
gerast og spyr þig hvað þú vilt gera næst og
þá ræður þú hvað gerist. Til dæmis ertu með
Þór í bát og Miðgarðsormurinn er að koma
og þá getur þú ákveðið hvort þú vilt hjálpa
Þór eða synda í land. Þannig klofnar bókin í
misjafna búta eftir því hvað þú velur að gera
sem þýðir að hún endar oftar en fimmtíu
sinnum. Það er því hægt að lesa hana aftur
og aftur og þetta er aldrei sama bókin,“ út
skýrir Ævar og nefnir að þetta form sé þekkt
erlendis en hafi ekki mikið verið notað hér
heima. „Ég las svona bækur þegar ég var
lítill. Þær eru venjulega stuttar en þegar ég
byrjaði á Þjóðsögunni þá langaði mig að gera
lengri bók sem væri þannig að það væri alveg
sama hvað þú veldir, þú fengir alltaf almenni
legt ævintýri út úr henni. Þannig að bækurn
ar tvær eru ansi vígalegar, ég veit um krakka
sem eru enn að lesa Þjóðsöguna frá því fyrir
síðustu jól og eru enn að finna ný ævintýri,“
segir Ævar sem mun lesa upp úr bókinni
klukkan tvö í dag við varðeld, ef veður lofar,
á Jólamarkaðnum Elliðavatni.
n liljabjork@365.is
GOTT AÐ VERA NÖRD
HÆFILEIKARÍKUR Ævari Þór Benediktssyni finnst gaman að segja sögur, bæði sem rithöfundur og leik-
ari. Hann segir það hjálpa sér að vera nörd og að hafa grúskað og lesið mikið.
SÖGUMAÐUR Ævar Þór Benediktsson, leikari og rithöfundur, finnur sig í hlutverki sagnamannsins. MYND/STEFÁN
Árlegur jólamarkaður PopUp Verzlunar verður haldinn í dag, laugardag, í porti
Hafnarhússins í Reykjavík milli
kl. 11 og 17. Jólamarkaðurinn í ár
verður með öðru sniði en áður en
auk hönnunar verður boðið upp á
myndlist, mat og tónlist.
Á markaðnum verða bæði
þekktir og óþekktir hönnuðir og
listamenn sem eru að koma fram
á sjónarsviðið. Nýjar vörur eru í
boði, ýmis jólaglaðningur og alls
kyns tilboð verða í boði milliliða
laust beint til neytenda að venju.
Heimsókn á jólamarkaðinn er því
frábært tækifæri fyrir fagurkera
á öllum aldri að kynna sér og
kaupa íslenska hönnun og list á
sérkjörum.
Jólalegar veitingar verða í
boði í sérstöku PopUp eldhúsi
þar sem upprennandi kokkar
verða með jólalegar kræsingar á
boðstólum. Gestakokkar eldhúss
ins í dag verða Linnea Hellström
og Krummi Björgvins.
Tónlistarfólk mun spila, kynna
og selja tónlist sína á jólamark
aðnum. Kór mun m.a. syngja
seinni part dags og sérstakt
útgáfuhóf verður haldið vegna
bókarinnar og söngleiksins Björt
í Sumarhúsi. Rithöfundar mæta
auk þess í hús og árita bækur.
PopUp Verzlun var stofnuð
2009 af fjórum fatahönnuðum.
Nánari upplýsingar má finna
á Facebook undir PopUp Verzlun.
POPUP JÓLA
MARKAÐUR
BÆJARLIND 16 - KÓPAVOGUR - SÍMI 553 7100 - WWW.LINAN.IS - OPIÐ MÁN TIL FÖS 11 - 18 LAUGARDAGA 11 - 16
FINN GLERSKÁPUR
kr. 172.600
GINA STÓLL
kr. 19.700
FLY LJÓS
kr. 9.980
BOWL LJÓS
kr. 34.900
FINN SKENKUR 160 cm kr. 138.700 / FINN BORĐSTOFUBORĐ 90X150/190 kr. 115.700 / FINN STÓLL kr. 17.900
HÚSGÖGN &
FYLGIHLUTIR
FYRIR
HEIMILIĐ
1
1
-1
2
-2
0
1
5
0
9
:2
9
F
B
1
3
6
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
A
8
-1
2
0
4
1
7
A
8
-1
0
C
8
1
7
A
8
-0
F
8
C
1
7
A
8
-0
E
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
3
6
s
_
4
1
2
2
0
1
5
C
M
Y
K