Fréttablaðið - 05.12.2015, Page 84

Fréttablaðið - 05.12.2015, Page 84
FÓLK| HEIMILI Þegar þykkur snjómöttull liggur yfir landinu harðnar lífið hjá smáfuglunum enda erfitt að verða sér úti um æti. Því er um að gera fyrir fólk að huga að þessum litlu vinum og útvega þeim eitt- hvað í gogginn, enda bara skemmtilegt að fylgjast með fuglaflokkum flykkjast í garðinn sinn. Á vef Fuglaverndar, fugla- vernd.is, er að finna gagn- legar upplýsingar um hvern- ig fóðra skuli garðfugla. Skógarþrestir, svartþrestir og starar eru algengir vetrar fuglar í görðum. Á veturna eru þeir sérlega sólgnir í feitmeti eins og kjötsag og mör. Einnig þiggja þeir ávexti svo sem epli, perur og rúsínur. Brauðmeti, sérstaklega ef það er blandað með matarolíu eða öðru feitmeti, er einnig vel þegið. Best er að koma þessum kræs- ingum fyrir á fóðurpalli eða hengja upp í tré. Epli og perur er gott að skera í tvennt og stinga upp á greinarenda 1-2 metra frá jörðu. Smæstu fuglarnir, á borð við snjótittlinga, auðnutittlinga og finkur, eru fræætur sem best er að gefa á fóðurpöllum eða húsþökum. Með fræjum er átt við sólblómafræ og alls konar finkukorn. SLÆM TÍÐ FYRIR SMÁFUGLA SMÁFUGLAR Garðfuglar í fóðri. MYND/GVA EPLI Smáfuglar gæða sér á ýmsu sem fellur til á heimilum, til dæmis gömlu brauði eða eplum. MYND/GVA Þetta er það skemmtileg-asta sem ég geri,“ segir Hafsteinn Helgi Halldórs- son en hann smíðar húsgögn undir heitinu Happie Furniture. Happie Furniture er samvinnu- verkefni hans og sambýliskonu hans, Öglu Egilsdóttur, og hófst með því að mynd af borði sem Hafsteinn smíðaði á heimili þeirra fór á netið. „Fólk fór að spyrja hvort ég gæti smíðað borð fyrir það. Svo vatt þetta hratt upp á sig. Agla er í arkitektúrnámi við LHÍ og sjálfur hef ég mikið verið að hanna og unnið við garðasmíði, smíði matjurtakassa og fleira. Það er því sameiginlegt áhuga- mál okkar að búa til eittvað hlýlegt og fallegt fyrir heimilið, vinna með hugmyndir og skapa,“ segir hann. Smíðið þið þá allt inn á ykkar heimili? „Já, flest en oft gerist það nú samt að hlutirnir heima eru látnir sitja á hakanum, bara eins og hjá kokkunum sem panta alltaf pitsu í kvöldmatinn. En við erum með hillur og sófaborð og fleira heima hjá okkur sem við höfum smíðað. Nýjast er eldhús- borðið okkar sem við vorum að klára. Það voru áætlanir komnar í gang með fleiri verkefni en eftir að nýi „forstjórinn“ mætti voru þær settar í salt. Dóttir okkar kom sem sagt í heiminn fjórum og hálfri viku fyrir tímann og þar með hliðraðist dagskráin aðeins. Hún er forstjórinn sem öllu ræð- ur,“ segir Hafsteinn hlæjandi. Hafsteinn segist smíða allt út frá hjartanu og vill „finna“ fyrir hlutunum í kringum sig. Hand- gerðum hlutum fylgi ákveðin jarðtenging sem sé öllum holl. „Í heimi hlutanna er ekkert nær hjarta manns en heimilið. Við lítum á það sem ákveðið lærdómsferli að smíða borð fyrir einhvern, og í samvinnu við hann. Sjá hvað manneskjuna virkilega langar í því þetta eru hlutir sem fara inn á heimili, það er ekki bara verið að skipta um einhverja síu í bíl. Þetta er hand- gert og umhverfisvænt en viður- inn er ræktaður til þess að fella hann til nytja. Náttúrlegar línur njóta sín í viðnum og fólk virki- lega „finnur“ fyrir borðinu. Það held ég að sé hollt. Ef við stöldr- um aldrei við endum við bara öll undir einhverri steypu þegar fram líða stundir og missum alla tengingu við okkur sjálf. Maður á að gera það sem gott er fyrir hjartað. Þetta er líka stöðug leit að hinu „fullkomna borði“ og svo er svo gefandi að að hjálpa fólki að koma hugmyndum í fram- kvæmd.“ n heida@365.is LEITIN AÐ HINU FULLKOMNA BORÐI SMÍÐAR MEÐ HJARTANU Hafsteinn Helgi Halldórsson smíðar húsgögn undir heitinu Happie Furniture. Hann segir alla hafa gott af þeirri jarðtengingu sem fylgi handunnum hlutum sem unnir séu með hjartanu. NÝI FORSTJÓRINN Dóttir Hafsteins og Öglu kom fjórum vikum fyrir tímann í heiminn og er titluð sem „forstjóri“, enda setti koma hennar dagskrá Happie Furniture eilítið úr skorðum. Nánar má forvitnast um Happie Furniture á Facebook. MYND/ANTON BRINK 18Konur 4p Digipak 11.171.indd 1 25/11/15 15:28 18Konur 4p Di gipak 11.171.in dd 1 25/11/15 15:2 8 Með nýjum vef og appi getur þú streymt þinni uppáhaldstónlist hvar og hvenær sem er. NÝTT APP SEM HLJÓMAR VEL Áskrifendur 365 fá tveggja mánaða áskrift að Tónlist.is og nýútkomna plötu Bubba Morthens, 18 konur. Tilboðið gildir til 31. des. 2015 fyrir áskrifendur að völdum tilboðspökkum 365. 1 1 -1 2 -2 0 1 5 0 9 :2 9 F B 1 3 6 s _ P 0 9 3 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 8 4 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 A 8 -1 B E 4 1 7 A 8 -1 A A 8 1 7 A 8 -1 9 6 C 1 7 A 8 -1 8 3 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 1 3 6 s _ 4 1 2 2 0 1 5 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.