Fréttablaðið - 05.12.2015, Síða 92
Öll fjölskyldan getur stundað
skautaíþróttina saman, hvort sem
það er inni í skautahöllum eða á
útisvellum, auk þess sem hún er
frábær heilsurækt að sögn Mar
grétar Jamchi Ólafsdóttur, for
manns Skautasambands Íslands.
„Það er einfalt fyrir byrjendur á
öllum aldri að leigja skauta og
prófa áður en fjárfest er í dýrum
búnaði. Auk þess bjóða öll skauta
félögin upp á skautaskóla fyrir
byrjendur. Ég ráðlegg öllum ein
dregið að byrja á því að fara á nám
skeið til að læra grunnatriðin.“
Fyrstu heimildir um skipulagt
starf hjá skautafélagi hérlendis
eru frá árinu 1873 en þá stofnuðu
nemar í Latínuskólanum Skauta
félag Reykjavíkur og stunduðu þá
skautahlaup á Tjörninni í Reykja
vík. Óljóst er hvenær það hætti
starfsemi en það var endurvakið
árið 1893 og hefur verið meira og
minna starfandi síðan.
Vantar fleiri svell
Bylting varð síðan í iðkun skauta
íþróttarinnar með yfir byggingu
skautasvella hér á landi, fyrst
í Laugardalnum árið 1998
og á síðan á Akureyri árið
2000. „Í desember
2003 bættist svo við
þriðja yfirbyggða
svellið í Egils
höll en þá var
verulega farið
að þrengja
að iðkendum
í Laugardalnum
þar sem tvö félög deildu æfinga
tímanum. Björninn flutti í Egilshöll
ina og hefur dafnað vel í Grafar
voginum.“
Í dag er stundað listhlaup á
skautum og hokkí hjá Reykjavíkur
félögunum að sögn Margrétar og
fyrir norðan bætist krullan við. „Nú
er svo komið að aftur þrengir veru
lega að félögunum, sérstaklega í
Reykjavík, bæði vegna iðkenda
fjölda og einnig vegna fjölda al
mennings sem vill stunda skauta.
Tíminn í höllunum er nýttur til hins
ýtrasta og því brýn nauðsyn að fá
þriðja svellið á höfuðborgarsvæð
inu og vonum við hjá Skautasam
bandinu að tal um svell í Garða
bæ eða Kópavogi sem heyrst hefur
undanfarið bendi til framkvæmda
fyrir skautara á þessum svæðum.“
Miklar framfarir milli ára
Skautasamband Íslands, sem hélt
upp á 20 ára afmæli á þessu ári,
heldur utan um allt sem
lýtur að list
hlaupi á skaut
um og sam
hæfðum
skautadansi
á Íslandi og
einblín
ir fyrst og
fremst á
uppbygg
ingu skauta
íþrótt
arinn
ar hér á
landi. „Uppbygg
ingin felst að miklum hluta í því að
byggja upp íslenska þjálfara, dóm
ara og tæknifólk en þannig byggj
um við hraðar upp betri skautara.
Íslenskir skautarar hafa á síðustu
árum verið að bæta sig mjög í stig
um og stigamet eru slegin á næst
um því hverju móti. Það er mjög
hvetjandi og segir okkur að færni
og stöðugleiki er að aukast. Áber
andi er líka hvað margir ungir
skautarar eru að koma sterkir inn
og verður gaman að fylgjast með
þeim á næstu árum.“
Skautarar sem vilja ná árangri
og stefna á keppni þurfa að æfa
mikið. „Íþróttin er mjög tæknileg
og líkam lega krefjandi. Það er það
sem gerir hana aðlaðandi fyrir af
reksfólkið. Einnig er það félags
skapurinn, en vináttan þróast og
verður náin þegar skautarar æfa
svona mikið saman.“
Áður fyrr mátti finna útisvell
víða um land yfir veturinn, t.d. á
íþróttavöllum, en þau eru að týna
tölunni jafnt og þétt. „Útisvell eru
núna meira nýtt sem tilbreyting í
kringum jólahátíðina, eins og svell
ið sem er sett upp við Rockefell
er Center í New York yfir hátíð
arnar. Nú er tilraun með að setja
svona útisvell upp á Ingólfstorgi
í desember og verður gaman að
fylgjast með því hvernig það geng
ur. Ég hvet a.m.k sem flesta til að
stoppa við og prófa kringum jólin.
Einnig má benda á almenningstíma
í skautahöllunum sem allar eru
opnar yfir hátíðarnar.“
starri@365.is
Skautaíþróttin hæfir flestu fólki
Iðkendum skautaíþróttarinnar hefur fjölgað jafnt og þétt undanfarin ár enda íþrótt sem hentar flestu fólki. Fyrsta skautafélagið var stofnað
1873 en í dag eru þrjú skautafélög starfrækt hérlendis. Skautasamband Íslands hélt nýlega upp á 20 ára afmæli sitt.
Norðurljósin, lið Skautafélags Reykjavíkur í samhæfðum skautadansi, á síðasta
Íslandsmóti. MYND/HELGA HJALTADÓTTIR
Fjórar unglingsstúlkur á skautasvellinu á Melavelli í Vesturbæ Reykjavíkur í
desembermánuði árið 1976. MYND/SVEINN ÞORMÓÐSSON
Jólagjafir vélsleðamannsins
www.yamaha.is
Arctic Trucks | Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | Sími 540 4900
SR Viper M-TX árg. 2016
30% afsláttur af
öllum Rukka göllum
í desember
Nolan hjálmar
Lambhúshettur
Hanskar
Sleðaskór
Gleraugu
Verð frá
kr. 2.690.000,-
www.facebook.com/YamahaMotorIsland
ÚTIVIST OG SPORT Kynningarblað
5. desember 20154
1
1
-1
2
-2
0
1
5
0
9
:2
9
F
B
1
3
6
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
A
8
-2
A
B
4
1
7
A
8
-2
9
7
8
1
7
A
8
-2
8
3
C
1
7
A
8
-2
7
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
3
6
s
_
4
1
2
2
0
1
5
C
M
Y
K