Öldrun - 01.10.2002, Page 5
5ÖLDRUN – 20. ÁRG. 2. TBL. 2002
Ákvörðun um byggingu Droplaugarstaða var tekinhjá framkvæmdanefnd Reykjavíkurborgar vegna
stofnana í þágu aldraðra í byrjun janúar 1979. Upphaf-
lega var ráðgert að reisa dvalarheimili fyrir 66 vist-
menn en í febrúar 1981 var ákveðið að breyta þriðju
hæð hússins alfarið í hjúkrunardeild. Droplaugarstaðir
opnuðu 30. júní 1982 þegar 2. hæðin var opnuð sem
vistdeild fyrir 36 einstaklinga. Í september sama ár var
opnuð hjúkrunardeild fyrir 32 einstaklinga á 3. hæð.
Droplaugarstaðir áttu því 20 ára afmæli nú í sumar.
Fljótt kom í ljós að ummönnunarþarfir vistfólksins
fóru vaxandi. Þetta varð viðurkennt af heilbrigðis- og
tryggingarmálaráðuneytinu, sem gaf leyfi fyrir að hluti
vistrýmisins yrði notað fyrir hjúkrunarsjúklinga. Drop-
laugarstaðir breyttist alfarið í hjúkrunarheimili 1. jan-
úar 1996.
Í dag er fjöldi hjúkrunarrýma 68 og þar af eru tvö
pláss nýtt sem hvíldarpláss fyrir fólk búandi á heim-
ilum sínum úti í bæ. Herbergin skiptast í 13 tvíbýli og
42 einbýli. Framtíðarstefnan er að bjóða öllum einbýli
sem til stofnunarinnar koma, enda er það krafa nútím-
ans. Áætlanir um stækkun heimilisins er á vinnslustigi
og er þá miðað við að allir fái einbýli. Viðbótarpláss
verða þá 14.
Stöðugildi heimilisins eru alls 74,6 og þar af eru 15
stöðugildi hjúkrunarfræðinga en fjölmennastir eru
starfsmenn Eflingar og sjúkraliðar. Margir hjúkrunar-
og læknanemar hafa tekið að sér umönnunarstörf á
heimilinu samhliða námi sínu. Læknisþjónustan hefur
frá upphafi verið veitt af sérfræðingum í öldrunarlækn-
ingum frá sjúkrahúsunum, fyrst frá lyflækningadeild
Borgarspítalans í Fossvogi (B-álmu) og síðustu árin
eftir þjónustusamningi við öldrunarsvið Landspítala
Háskólasjúkrahúss. Á stofnuninni starfa tveir sjúkra-
þjálfarar og tveir iðjuþjálfar. Allir heimilismenn hafa
fótavist á hverjum degi og sjúkra- og iðjuþjálfun er beitt
til að viðhalda þeirri færni sem fyrir er og oft er hægt
að byggja upp meiri sjálfsbjargargetu hjá vistmönn-
unum.
DROPLAUGAR-
STAÐIR
Ingibjörg Bernhöft
forstöðumaður
Droplaugarstaða
Árið 2001 var gerður samningur um lyfjaskömmtun
frá Lyfjaveri. Klíniskar rannsóknir eru gerðar í sam-
vinnu við Landspítala Háskólasjúkrahús og fleiri aðila.
Þann 1. september s.l. voru 28 af 107 starfsmönn-
um af erlendum uppruna. Sérstakt átak hefur verið
gert til þess að bæta aðlögun þessa fólks og íslensku-
kennsla hefur verið boðin öllum starfsmönnum sem
þurfa. Margir þessara starfsmanna hafa starfsréttindi