Öldrun - 01.10.2002, Blaðsíða 19
19ÖLDRUN – 20. ÁRG. 2. TBL. 2002
Vetrarstarfið á Fagbókasafni í öldrunarfræðum áLandakoti er nú hafið. Landslagið í notkun bóka-
safna, sérstaklega sérfræðisafna, hefur vissulega
breyst með tilkomu víðtæks aðgangs að rafrænum
gagnasöfnum og tímaritum, bæði innan spítalanna og
á landsvísu. Enn er þó þörf fyrir söfnin og þjónustufúst
starfslið til að liðsinna notendum í frumskógi þessa
nýja upplýsingaveruleika.
Vefurinn hvar.is er vefur Verkefnisstjórnar um
aðgang að gagnasöfnum. Þar er landsaðgangur að 31
gagnasafni og rúmlega 7.500 altexta tímaritum auk
alfræðisafna og orðabókar. Fólk er hvatt til að skoða
vefinn og kanna hvað hann hefur uppá að bjóða.
Að leita heimilda í Ageline, Ovid eða PubMed:
Ageline er gagnagrunnur AARP, sem eru samtök aldr-
aðra í Bandaríkjunum. Öll helstu tímarit á sviði öldrun-
arfræða eru skráð í Ageline. Mörg þeirra eru í áskrift
á Fagbókasafninu á Landakoti.
Aðgangur er að Ageline hjá Ovid, en Ageline er
einnig á heimasíðu AARP.
Slóðin:
http://research.aarp.org/ageline/home.html
OVID veitir aðgang að Medline og Ageline (PsychInfo
er aðeins aðgengilegt innan LSH). Hægt er að leita í
allt að 5 gagnasöfnum í einu. Það getur t.d. verið gagn-
legt fyrir þá, sem eru að leita að efni á sviði öldrunar-
fræða að leita í Medline og Ageline samtímis. Hægt er
að komast í fjölda altexta greina í Ovid, sömuleiðis
bækur.
Beinn aðgangur: www.hvar.is
PubMed er ókeypis aðgangur National Library of
Medicine í Bandaríkjunum (www.nlm.nih.gov) að
MEDLINE og fleiri gagnasöfnum. Nokkur tímarit gefa
kost á ókeypis altexta greinum. Aðgangur að öðrum
krefst áskriftar.
Slóðin: www.pubmed.gov
Enn ein leið að rafrænum tímaritum er t.d.slóðin
www.freemedicaljournals.com/
Nokkrar áhugaverðar vefsíður:
www.alz.org
www.alz.co.uk
www.alzheimer.ca
www.americangeriatrics.com
www.diabetes.org
www.hvar.is
www.medlineplus.gov
www.persona.is
Sjáið auk þess grein í
Age and Ageing 2002;31:70-74
Dedicated to elderly care:
geriatric medicine on the internet. Madan S et al.
Vakni spurningar varðandi það, sem hér hefur verið
minnst á er velkomið að hringja/koma/senda tölvu-
póst á Fagbókasafn í öldrunarfræðum á Landakoti.
Safnið er opið 8-16 alla virka daga.
Hervör Hólmjárn
Sími: 543 1441
yfirbókasafnsfræðingur
heh@landspitali.is
Frá Fagbókasafni
í öldrunarfræðum LSH Landakoti