Öldrun - 01.10.2002, Blaðsíða 15

Öldrun - 01.10.2002, Blaðsíða 15
15ÖLDRUN – 20. ÁRG. 2. TBL. 2002 Vellíðan, samskipti og tengsl Samskipti hafa mikil áhrif á líðan okkar óháð því á hvaða aldursskeiði við erum og hvaða hlutverkum við gegnum. Samskipti eru álitin einn af áhrifaþáttum heil- brigðis. Löngum hefur verið sagt að maður sé manns gaman, en tækni og hraði nútímans breyta samskipta- háttum og breikka bilið á milli þeirra sem þurfa að hefta straum of mikilla samskipta og þeirra sem sitja hjá, einmana mitt í hringiðu annríkis og offramboðs. Í grein þessari verður fjallað um mikilvægi góðra sam- skipta við umönnun aldraðra og byggt á niðurstöðum tveggja nýrra rannsókna sem voru lokaverkefni til meistaragráðu við Hjúkrunarfræðideild Háskóla Ís- lands. Annars vegar er um að ræða rannsókn Ingi- bjargar Hjaltadóttur (2001) um lífsgæði á hjúkrunar- heimilum og hins vegar rannsókn Sigrúnar Gunnars- dóttur (2000) um líðan starfsmanna á sjúkrahúsum. Rannsóknirnar voru báðar eigindlegar og byggðu á viðtölum við þátttakendur auk þátttökuathugana. Líf á hjúkrunarheimilum einkennist af því að það er bæði heimili og vinnustaður. Við hugleiðum oft hvernig öldruðu heimilisfólki líður á hjúkrunarheimil- inu en hugsum ekki eins til þess hvernig starfsfólkinu líður. Líðan starfsfólksins hefur áhrif á samskipti þess við skjólstæðingana og þá umönnun sem það veitir. Þannig hefur líðan starfsfólks á hjúkrunarheimilum bein áhrif á líðan aldraðra sem dvelja þar. Áður en vikið verður að rannsókn Ingibjargar um lífsgæði á hjúkr- unarheimilum verður fjallað stuttlega um niðurstöður rannsóknarinnar um líðan starfsmanna á sjúkrahús- um. Samskipti á vinnustað og vellíðan skjólstæðinga Samskipti á vinnustað eru hugðarefni fræðimanna og rannsóknir eru margar á þessu sviði. Árið 2000 gerði Sigrún Gunnarsdóttir rannsókn á líðan starfs- manna á Landspítalanum. Rannsóknin náði til al- mennra starfsmanna í eldhúsi og þvottahúsi og upp- lýsingum var aflað með þátttökuathugunum og við- tölum. Niðurstöður rannsóknarinnar eru í takt við þekktar kenningar um starfsumhverfi þar sem sam- skipti og stjórnunarmáti gegna lykilhlutverkum. Ýmsar rannsóknir hafa sýnt að þeir starfsmenn sem njóta styrkingar á vinnustað þ.e. hafa umboð til athafna eru færari um að styrkja og hvetja skjólstæðinga sína og auka þannig vellíðan þeirra (Guldvog, 1997, Latter, 1998). Umboð til athafna eða styrking eru dæmi um þýðingu á enska hugtakinu ,,empowerment“. Þetta hug- tak hefur verið notað til að skýra það sem fram fer þegar skjólstæðingar njóta styrkingar og nýta sér umboð til athafna til að hafa áhrif á eigin líðan. Í þessu sambandi er t.d. bent á mun þess annars vegar að deila styrk eða umboði til athafna með skjólstæðingum sínum og hins vegar því að beita styrknum eða hafa yfirhöndina í samskiptum við skjólstæðingana (Nut- beam, 1998). Munurinn getur t.d. falist í umburðar- Starfsfólk og íbúar á hjúkrunarheimilum Ingibjörg Hjaltadóttir sviðsstjóri hjúkrunar- öldrunarsviðs Sigrún Gunnarsdóttir sviðsstjóri hjúkrunar- öldrunarsviðs

x

Öldrun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Öldrun
https://timarit.is/publication/1137

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.