Öldrun - 01.10.2002, Blaðsíða 18
18 ÖLDRUN – 20. ÁRG. 2. TBL. 2002
En hvernig getum við þá eflt þjónustu við aldraða?Það er hægt að gera með margvíslegum aðferðum.
Uppbygging þekkingar á þessu sviði, öflug þekkingar-
miðlun er ein aðferðin og mikilvægt tæki okkar til að
efla þjónustuna. Bókasafn á vinnustað er þáttur í þekk-
ingaruppbyggingu og eigum við góðan vin frú Kazuko
Enomoto sem hefur einmitt styrkt Bókasafn Félags-
þjónustunnar í Reykjavík til að sinna betur íslenskri
öldrunarþjónustu.
Frú Kazuko Enomoto prófessor í félags- og öldrun-
arfræðum við Otemon Gakuin háskólann í Japan er
meðvituð um gildi öflugrar upplýsingamiðlunar í þjón-
ustu við aldraða. Hún stundar öldrunarrannsóknir af
krafti í Japan og hefur fengið mikinn áhuga á öldrunar-
málum á Íslandi. Frú Enomoto hefur ritað bækur á jap-
önsku um rannsóknir sínar sem m.a. hafa verið þýddar
á ensku. Nefna má bók hennar Houses and Welfare
Services for the Aged : Link Services of Welfare and Coll-
ective Housing for the Aged in Iceland and Japan sem
kom út árið 1996 sem er samanburðarrannsókn á þjón-
ustu við aldraða Íslendinga og Japana.
Allt frá árinu 1994 hefur Enomoto gefið reglulegar
peningagjafir til Félagsþjónustunnar í Reykjavík sem
nýttar hafa verið til bókakaupa og fræðslu fyrir starfs-
fólk. Hún hefur heimsótt okkur fjórum sinnum og nú
síðast í ágúst síðastliðnum. Af virðingu við framlag frú
Enomoto höfum við komið upp horni með safnefni
sem keypt er fyrir fé úr Enomoto sjóði. Frá því sjóður-
inn var stofnaður höfum við lagt áherslu á að velja
úrvalsefni um þjónustu við aldraða í „Enomoto
hornið“. Titlar í horninu eru nú á þriðja hundrað tals-
ins og safnið stækkar stöðugt. Sjá nánar Enomoto
hornið: bókaskrá 1994-2002.
Gríðarleg útgáfa er af þekkingu á ýmsum fræða-
sviðum og þurfa innkaupin því að vera markviss og
miðast við þarfir starfsfólksins. Kerfisbundin öflun,
skráning og miðlun safnefnis skiptir því máli í kröfu-
hörðum heimi. Nú höfum við frábærar leiðir við að
miðla upplýsingum til dæmis á vefsíðum og í rafrænum
gagnagrunnum eins og t.d. www.hvar.is. Bókasafn
Félagsþjónustunnar er safn með á annað þúsund titla
og er framlag frú Enomoto afar mikilvæg viðbót við
safnið okkar og ómetanlegt fyrir starfsmenn Félags-
þjónustunnar í Reykjavík sem og á sviði samanburðar-
rannsókna um öldrunarmál á Íslandi og í Japan.
Heimildir:
Alfa Kristjánsdóttir: Enomoto hornið: bókaskrá 1994-2002. Rv., 2002.
Enomoto, K: Houses and welfare services for the aged. Seizansha, 1996.
„Tíminn líður trúðu mér …“ segir í þjóð-
vísunni góðu. – Öldruðum fjölgar stöðugt
miðað við fólksfjölda og er þjónusta við aldr-
aða dæmi um vaxandi svið félagsþjónustu
sem er í stöðugri þróun. Alfa Kristjánsdóttir, bókasafnsfræðingur og frú Kazuko
Enomoto prófessor.
Alfa Kristjánsdóttir,
bókasafnsfræðingur
Enomoto
styður félagslega þjónustu
við aldraða