Öldrun - 01.05.2004, Blaðsíða 10

Öldrun - 01.05.2004, Blaðsíða 10
10 www.oldrun.net ÖLDRUN – 22. árg. 1. tbl. 2004 talsvert notaður (12). Íslensku þýðinguna á skalanum má finna á Netinu. Slóðin er: http://www.stanford.edu/~yesavage/GDS.html Ýmsir fleiri spurningalistar um þunglyndiseinkenni hafa verið þýddir á íslensku, en þeir eru ekki sér- staklega gerðir fyrir eldra fólk. Greining þunglyndis hjá öldruðum krefst tals- verðrar vinnu þar sem taka þarf tillit til margvíslegra þátta. Ekki er nóg að hafa eitt eða tvö einkenni á spurningalista til að hægt sé að setja greininguna þunglyndi. Huga verður að líkamlegum sjúkdómum, hugsanlegri heilabilun, félagslegum aðstæðum, lyfja- gjöf og ýmsum öðrum þáttum áður en greiningin er sett. Þegar greining liggur fyrir er hægt að hefja meðferð. Þunglyndi er stærsti einstaki áhættuþátturinn hvað varðar sjálfsvíg. Þess vegna er mat á sjálfsvígshættu mikilvægt við greiningu þunglyndis. Erlendar rann- sóknir sýna að um það bil þrír fjórðu hlutar eldra fólks sem sviptir sig lífi hafði leitað til heimilislæknis skömmu fyrir dauða (2). Meðferð þunglyndis Við meðferð verður m. a. að hafa eftirfarandi atriði í huga: 1. Að eyða öllum einkennum þunglyndis. Ef það tekst ekki og eitt eða fleiri einkenni eru enn til staðar þrátt fyrir meðhöndlun er hætta á langvinnu þunglyndi og að bata af líkamlegum sjúkdómum seinki (13) 2. Að minnka áhættu á sjálfsvígi eða líkur á því að sjúklingurinn verði sjálfum sér til skaða vegna sjúkdóms síns (2) 3. Stuðla að því að sjúklingurinn nái mestu mögulegu færni, bæði líkamlega og félagslega 4. Að bæta úr skorti á næringu, meðhöndlun á líkamlegum sjúkdómum 5. Að koma í veg fyrir að sjúkdómurinn komi aftur 6. Að fræða sjúklinginn og aðstandendur hans um eðli þunglyndis 7. Að meðhöndla líkamlega sjúkdóma sem koma samhliða þunglyndinu 8. Að bæta úr óþægilegri félagslegri einangrun 9. Að endurskoða lyf sjúklingsins einkum þau sem hugsanlega hafa þunglyndi sem aukaverkun Þessum markmiðum má ná með ýmsum hætti. Mörg meðferðarform hafa verið mikið rannsökuð og árangur vel þekktur. 1. Lyfjameðferð. Vitað er að lyfjameðferð með þung- lyndislyfjum er mjög árangursrík þegar sjúklingur- inn hefur greint þunglyndi (14). Ekki er jafn mikil vissa um áhrif þunglyndislyfja á eitt eða örfá einkenni þunglyndis, einkum þegar þau hafa ekki staðið lengi. Hins vegar eru vísbendingar um að þunglyndislyf geti haft áhrif á langvinn (margir mánuðir eða ár) þunglyndiseinkenni jafnvel þótt fjöldi þeirra sé ekki nægilega mikill til að hægt sé að setja sjúkdómsgreininguna þunglyndi (15). Þegar svo háttar er réttlætanlegt að reyna lyfjameðferð í fyrirfram ákveðinn tíma en hætta ef árangur er lítill eða enginn. Lyfjameðferð við þunglyndi hjá eldra fólki er oft flókin. Gæta verður að því að niðurbrot lyfja er öðru vísi hjá öldruðum en hjá yngra fólki og skammtar því aðrir. Einnig taka aldraðir oft mörg lyf samhliða og því verður að gæta vel að milliverk- unum lyfja. Verkun er mjög einstaklingsbundin, lyf sem verkar vel hjá einum sjúklingi getur verið gagnslaust hjá öðrum. Ef illa gengur verður einstaka sinnum að gefa tvö þunglyndislyf samhliða. Ef góð virkni fæst er rétt að halda meðferð áfram í a. m. k. eitt ár (2). 2. Raflækningar. Raflækningar þar sem krömpum er komið af stað hjá sjúklingnum með hjálp rafmagns er árangursríkasta aðferðin sem til er við alvarlegu þunglyndi hjá eldra fólki. Rannsóknir benda til að þessi meðferð sé árangursríkari hjá öldruðum en hjá sjúklingum á miðjum aldri (16, 17). Aðferðin hefur fáar og vægar aukaverkanir. Raflækningar fá venju- lega mjög neikvæða umfjöllun í fjölmiðlum eða kvik- myndum og er sjúklingurinn því oft tregur til að undirgangast þessa meðferð. 3. Sérhæfð viðtalsmeðferð. Sú skoðun hefur lengi verið uppi að viðtalsmeðferð sé gagnslítil hjá eldra fólki. Rannsóknir sýna að þetta er rangt. Árangur af sérhæfðri viðtalsmeðferð hjá eldra fólki er jafngóður og hjá hinum yngri (18). Nokkrar aðferðir eru til og hefur árangur sumra þeirra verið staðfestur með rannsóknum. Gangur þunglyndis Þegar leiðrétt er fyrir algengum sjúkdómum á efri árum svo sem heilabilun virðast horfur hjá öldruðum með þunglyndi vera svipaðar og hjá þeim sem yngri eru (19, 2). Horfurnar eru þannig allgóðar. Þó má búast við að milli 15% og 20% sjúklinga fái langvinn einkenni. Þunglyndi eitt og sér virðist leiða til aukinnar dánartíðni hjá öldruðum en ástæður þessa eru ókunnar. Reynt hefur verið að finna þætti sem hafa áhrif á gang þunglyndis. Rannsóknir hafa sýnt að sjúklingar með ranghugmyndir eða ofskynjanir samhliða þunglyndinu hafa verri horfur og sama má segja um sjúklinga, sem samhliða þunglyndinu hafa ákveðna tegund af heila- skemmdum sem fram koma í segulómun (20). Forvarnir Fyrsta stigs forvarnir miða að því að koma í veg fyrir sjúkdóminn og hvað þunglyndi varðar hefur mikið verið gert víða um lönd til að fræða almenning um þennan sjúkdóm og eðli hans. Stuðningur og fræðsla til aðstandenda flokkast einnig undir fyrsta stigs forvarnir.

x

Öldrun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Öldrun
https://timarit.is/publication/1137

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.