Öldrun - 01.05.2005, Page 4

Öldrun - 01.05.2005, Page 4
4 www.oldrun.net ÖLDRUN – 23. árg. 1. tbl. 2005 Orsakir aðgerða Algengasta orsök þess að settur er gerviliður í mjöðm er vegna slitgigtar, þó kemur fyrir að settur er gerviliður vegna annarra sjúkdóma svo sem liðagigtar eða vegna afleiðinga brota. Mjaðmarslitgigt er algengur sjúkdómur á Íslandi sem og í öðrum vestrænum löndum. Tíðni eykst með aldri og er talið að tíundi hver Íslendingur sem er 70 ára eða eldri hafi slitgigt. Orsakir þessa sjúkdóms eru óþekktar en þó er vitað að erfðir eiga stóran þátt í þróun sjúkdómsins, en atvinna og álag á liðinn svo og umhverfisþættir skipta máli. Þegar liðurinn slitnar, springur brjóskið sem klæðir liðinn að innan og molnar. Við það eyðist brjóskið og lið- urinn aflagast. Fyrstu einkennin sem fólk finnur fyrir eru stirðleiki og verkur í nára sem oft leiðir fram lærið, niður í hné eða aftur í rasskinn. Fólk verður vart við það að það á erfitt með að klæða sig í skó og sokka. Eftir því sem brjóskið eyðist stirðnar liðurinn og verkir aukast og breytast. Í byrjun sjúkdómsins eru verkir oft verstir fyrst á morgnana en lagast þegar fólk gengur nokkur skref. Síðan aukast verkirnir við alla hreyfingu og loks fær fólk mikil óþægindi í hvíld svo sem á nóttunni og missir svefn vegna þessa. Í dag eru engin lyf þekkt sem hafa áhrif á gang sjúkdómsins, en þau lyf sem gefin eru slá á verki og óþægindi. Fyrsta meðferð við sjúk- dómnum eru æfingar, verkjalyf og bólgueyðandi lyf. Smám saman getur dregið úr hreyfifærni og þrátt fyrir hjálpartæki á fólk erfitt með að bera sig um. Þegar lyfja- meðferð dugar ekki lengur til að halda sjúkdómsein- kennum niðri og sjúkdómurinn hefur orðið mikil áhrif á lífsgæði fólks er yfirleitt valið að gera gerviliðsaðgerð. Hvenær er gerviliðsaðgerðin gerð Þegar sjúklingur og aðgerðarlæknir eru sammála um ábendingu fyrir henni. Helst er það þegar verkir og hreyfihindranir eru orðnar það miklar að sjúklingur telur sig ekki geta lifað við óþægindin. Gerviliðsaðgerðir á mjöðm Þorvaldur Ingvarsson dr.med. – Bæklunarlæknir á O-deild FSA Forsaga: Gerviliðsaðgerðir á mjöðm hófust á Íslandi árið 1967 og hér á Akureyri við opnun bæklunardeildar FSA árið 1982 og hafa þær því verið framkvæmdar hér í 20 ár. Við þessi tímamót þykir við hæfi að kanna hvernig til hefur tekist og hvernig sjúklingum okkar hefur farnast. Frá upphafi hefur gerviliður frá Exeter verið notaður en hefur tekið litlum breytingum í tímans rás og gerir það rannsókn sem þessa auðveldari.

x

Öldrun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Öldrun
https://timarit.is/publication/1137

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.