Öldrun - 01.05.2005, Blaðsíða 4
4 www.oldrun.net ÖLDRUN – 23. árg. 1. tbl. 2005
Orsakir aðgerða
Algengasta orsök þess að settur er gerviliður í
mjöðm er vegna slitgigtar, þó kemur fyrir að settur er
gerviliður vegna annarra sjúkdóma svo sem liðagigtar
eða vegna afleiðinga brota.
Mjaðmarslitgigt er algengur sjúkdómur á Íslandi
sem og í öðrum vestrænum löndum. Tíðni eykst með
aldri og er talið að tíundi hver Íslendingur sem er 70 ára
eða eldri hafi slitgigt. Orsakir þessa sjúkdóms eru
óþekktar en þó er vitað að erfðir eiga stóran þátt í þróun
sjúkdómsins, en atvinna og álag á liðinn svo og
umhverfisþættir skipta máli.
Þegar liðurinn slitnar, springur brjóskið sem klæðir
liðinn að innan og molnar. Við það eyðist brjóskið og lið-
urinn aflagast. Fyrstu einkennin sem fólk finnur fyrir
eru stirðleiki og verkur í nára sem oft leiðir fram lærið,
niður í hné eða aftur í rasskinn. Fólk verður vart við það
að það á erfitt með að klæða sig í skó og sokka. Eftir því
sem brjóskið eyðist stirðnar liðurinn og verkir aukast
og breytast. Í byrjun sjúkdómsins eru verkir oft verstir
fyrst á morgnana en lagast þegar fólk gengur nokkur
skref. Síðan aukast verkirnir við alla hreyfingu og loks
fær fólk mikil óþægindi í hvíld svo sem á nóttunni og
missir svefn vegna þessa. Í dag eru engin lyf þekkt sem
hafa áhrif á gang sjúkdómsins, en þau lyf sem gefin eru
slá á verki og óþægindi. Fyrsta meðferð við sjúk-
dómnum eru æfingar, verkjalyf og bólgueyðandi lyf.
Smám saman getur dregið úr hreyfifærni og þrátt fyrir
hjálpartæki á fólk erfitt með að bera sig um. Þegar lyfja-
meðferð dugar ekki lengur til að halda sjúkdómsein-
kennum niðri og sjúkdómurinn hefur orðið mikil áhrif á
lífsgæði fólks er yfirleitt valið að gera gerviliðsaðgerð.
Hvenær er gerviliðsaðgerðin gerð
Þegar sjúklingur og aðgerðarlæknir eru sammála
um ábendingu fyrir henni. Helst er það þegar verkir og
hreyfihindranir eru orðnar það miklar að sjúklingur
telur sig ekki geta lifað við óþægindin.
Gerviliðsaðgerðir
á mjöðm
Þorvaldur Ingvarsson
dr.med. – Bæklunarlæknir á O-deild FSA
Forsaga:
Gerviliðsaðgerðir á mjöðm hófust á
Íslandi árið 1967 og hér á Akureyri
við opnun bæklunardeildar FSA árið
1982 og hafa þær því verið
framkvæmdar hér í 20 ár.
Við þessi tímamót þykir við hæfi að
kanna hvernig til hefur tekist og
hvernig sjúklingum okkar hefur
farnast. Frá upphafi hefur gerviliður
frá Exeter verið notaður en hefur tekið
litlum breytingum í tímans rás og
gerir það rannsókn sem þessa
auðveldari.