Són - 01.01.2013, Side 109
„einS og feiminn SkÓlAStrákur í fjÓrðA leikHlutA“ 107
» íslensku kylfingarnir sýndu batamerki (þ.e. gekk betur) á
öðrum degi
» þarna erum við ljónheppnir
» baráttuhundurinn Hrafn Jóhannesson átti einnig skínandi leik
» Björn Bergmann var iðinn við kolann
» Eiður Smári kom ekki sérstaklega vel undan jólunum
» Króatar mæta nokkuð vængbrotnir til leiks
Ýkjur – megineinkenni íþróttamálfars fjölmiðla
Lang tíðasta stílbragð íþrótta mál fars er ýkjur eða ýkt orðafar. Er þá ekki
talin með fyndni sem ræður nánast ríkjum í öllu dæma safninu. Í töflu
1 má sjá hversu út breiddar ýkjur eru í íþrótta málfari. Ýkjunum er hér
skipt í þrennt, í fyrsta lagi venju legar og ein faldar ýkjur, í öðru lagi ýkjur
sem koma fram í há stigs notkun, al hæfingu eða afdráttar leysi og í þriðja
lagi það sem kalla mætti við bættar ýkjur eða tvö faldar ýkjur (sjá síðar í
þessum kafla). Ýkt orða far er í rauninni helsta ein kenni íþrótta málfars-
ins í gögn unum og ýkjurnar eiga einnig stóran þátt í öðrum helstu ein-
kennum mál fars ins. Því er óhætt að segja að þær séu eitt aðal ein kenni
þessa málfars og geri það að sér stöku mál sniði, öllum öðrum mál sniðum
ólíkt.
Einfaldar, venju legar ýkjur eru lang algeng asta ein staka ein kenni
íþrótta mál farsins í heild og koma fram í nærri 44% dæm anna. Dæmi
um þær koma fram í fremsta dálk inum og eru fjöl mörg. Félög og íþótta-
menn standa sig allir frábær lega og flestir glæsi lega. Þeir gera sér lítið fyrir
og sigra, eru á góðri siglingu, sýna góða baráttu og eru sigur reifir og kampa-
kátir. Starfið er blóm legt og metnaður inn ríkir því að íþrótta mennirnir
eru stjörnur, snillingar, kempur og hetjur enda oft heims frægir og snjallir
á heims mæli kvarða í heims klassa liði. Þeir sem standa hetjunum ör lítið að
baki eru efni legir og sprækir. Sérhver leikur er æsi spennandi og þeim sem
tapa er rústað, þeir teknir af lífi, þeim troðið í svaðið og pakkað saman og
þeir niður lægðir enda voru gerðar til þeirra stjarn fræði legar vænt ingar. Ef
einhver getur ekki keppt vegna meiðsla mætir liðið væng brotið til leiks og
and stæðingarnir verða Íslands banar en íslenska lands liðið grætur glötuð
tæki færi og þjálfar inn fær að fjúka jafn vel þótt liðið hafi verið hárs breidd
frá sigri. Þetta verður því flug elda sýning í öllum regn bogans litum. Lendi
Ís land í riðli með jafn ingjum sínum eða betri liðum kallast það um svifa-
laust dauða riðill. Gangi liðinu illa spilar það eins og feiminn skóla strákur