Nesfréttir - 01.03.2015, Side 2

Nesfréttir - 01.03.2015, Side 2
Guðmundur Ásgeirsson sem gjarnan er kenndur við Nesskip segir að mikil hætta kunni að steðja að Gróttu. Lítið megi út af bera um verðurfar til þess að eiðið eða garðurinn sem tengir Gróttu við Seltjarnarnes hverfi með öllu. Hann sé að grafast niður í sandinn og engin fyrirstaða lengur af honum nema næst meginlandinu. Haföldur eigi því greiða leið á milli lands og eyjar. Guðmundur sem er gjör- kunnugur landslagi og sjólagi á og við Seltjarnarens kvaðst í samtali við Nesfréttir nýlega hafa farið út í Gróttu. Hann segir fjöruna í kringum eyjuna á mikilli hreyfingu. Nú sé farið að grafast undan neðstu röst stórgrýtisins og hleðslunnar í kringum Albertshús og landið sé að láta undan. Nú sé svo komið að stóru haföldurar sem koma úr suðvestri og einnig skörpu öldurnar að austan fari nú óhindrað í gegnum sundið á milli Gróttu og fasta landsins og hrifsi efni úr eynni hvort sem þær komi úr austri eða vestri. Guðmundur bendir á að þessar áttir hafi verið allsráðandi hér við land að unanförnu og nánast aldrei verið kyrrt veður. Hann segir sjóinn einnig hafa verið að skeina sandinn undan stein- bryggjunni einkum undan grjóth- leðslunni við efra horn hennar að vestan og einnig undan grjóthleðsl- unni á efstu metrunum sem ekki geta verið góð tíðindi. Ekki þurfi mikið til þess að steinar falli úr hleðslunni sem erfitt geti orðið að gera við. Guðmundur segir að fljótt verið að bregðast við ef ekki eigi illa að fara og í versta tilfelli gæti Grótta – tákn Seltjarness horfið í sjóinn í nokkrum illum eða aftaka verðrum. Minna þurfi til að valda þeim skaða en menn geri sér grein fyrir. Hann minir á áralanga baráttu Rotarymanna um að setja grjót í garðinn á milli lands og Gróttu en ekkert hafi enn verið gert í þá veru. Hann segir að grjóti úr Lýsis- lóðinni sem Seltjarnarnesbær hafi fengið ókeypis hafi verið staflað í bæjarlandinu ofan við Snoppu og berndir á að nýta megi þessar grjót- byrgðir til þess að styrkja garðinn og hugsanlega að bjarga Gróttu frá algerri eyðileggingu. Það verk ætti hvorki að taka langan tíma eða kosta mikla fjármuni. Aðeins þurfi að taka ákvörðun um að fara í verkið áður en það verði of seint. ÚT GEF ANDI:­Borgarblö›,­Eiðistorgi­13-15,­170­Seltjarnarnes,­Pósthólf­172.­S: 511 1188 • 552 1953 • 895 8298 RITSTJÓRI:­Krist­ján­Jó­hanns­son­•­ÁBYRG‹ AR MA‹ UR:­Krist­ján­Jó­hanns­son­•­BLAÐAMAÐUR: Þórður­Ingimarsson­ UM BROT:­Valur­Kristjánsson­•­NETFANG:­borgarblod@simnet.is­•­HEIMASÍ‹A:­borgarblod.is Nesfréttir koma út mána›arlega og er dreift frítt í hvert hús á Seltjarnarnesi 2 Nes ­frétt ir www.borgarblod.is Bjarga verður Gróttu Leið ari Verður þá enginn Gróttuviti á Nesinu? Nesbúinn Í síðasta tölublaði Nesfrétta var fjallað nokkuð um hið mikla landbrot sem á sér stað við strendur Seltjarnarness. Á loftmynd var sýnt hversu mikið af landi hefur tapast af völdum sjógangs á liðnum árum og áratugum. Í þessu tölublaði segir Guðmundur Ásgeirsson oftast kenndur við Nesskip berum orðum að fari svo sem horfir sé mikil hætta á að hafið nái að rjúfa grjótgarðinn frá fastalandinu út í Gróttu. Ef það gerist muni skapast hætta á að eyjan hverfi í hafið með tíð og tíma. Guðmundur verður síst manna vændur um þekkingarleysi á sjólagi og sjávarföllum við Setjarnarnes. Hann hefur fylgst með því lengi og lagt sig eftir að varðveita minjar sem tengjast sjó og sjómennsku á Nesinu. Má þar nefna leiðarmerkið á Suðurnesi og steinbryggjuna að norðanverðu. Guðmundur bendir sjálfur á ódýra lausn. Hún er að nota grjótið sem Seltjarnarbæ áskotnaðist við uppgröft úr Lýsislóðinni út á Granda og geymt er á túninu fyrir ofan Snoppu. Grjótið er mikils virði ef það verður notað til þess að styrkja sjóvarnir á Seltjarnarnesi sem engin vanþörf er á við Gróttu sem annarsstaðar. Hann segir að nota megi þetta grjót til þess að styrkja garðinn út í Gróttu og varna haföldunum að brjóta hann niður. Að undanförnu höfum við verið minnt hvað eftir annað á að Seltirnin- gar allir sem einn vilji vernda Gróttu – aðalsmerki og tákn Seltjarnarness fyrir þeim eyðingaröflum sem í hafinu búa. Því er skorað á bæjaryfirvöld að taka viðvaranir Guðmundar alvarlega og bregðast við í tíma. Íþróttir og útivist Meistaraflokkur Gróttukvenna í handbolta urðu bikarmeistarar í handbolta á dögunum. Þetta er fyrsti bikarmeistartitill Gróttu í í boltagrein í meistaraflokki og ber því að fagna. Kröftugt starf í hand- boltanum er að skila sér. En hvert sem litið er – hvort það er til fimleika, lyftinga, handbolta eða fótbolta hafa bæði öflugar liðsheildir og öflugir eins- taklingar verið að koma fram og í golfinu láta menn líka til sín taka. Og það eru ekki eingöngu keppnisíþróttirnar sem skara fram úr. Seltirn- ingar eru einnig duglegir við að taka þátt í almenningsíþróttum – hreyfingu og útiveru. Aðstæður til slíks eru um margt góðar þótt húsnæðisskortur sé tekin að há fimleikunum og vallarpláss golfíþróttinni. Hvort tveggja verða Seltirningar að taka til athugunar í framtíðinni auk þess að huga að aðstöðu fyrir heldri borgara til hreyfingar og útiveru. Þeir mega ekki glutra því orðspori sem bærinn þeirra hefur þegar íþróttir, útivera og almenn hreysti er annars vegar. Geri við allar tegundir startara, alternatora, beinar innspýtingar, rafmagn í bílum og bátum. Sævar Bíla- og bátarafmagn Sími 561-1466 - Kirkjubraut 13, Seltjarnarnesi ra fm ag n@ m i.i s Hætta á að Grótta hverfi

x

Nesfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.