Nesfréttir - 01.03.2015, Page 13

Nesfréttir - 01.03.2015, Page 13
Nes ­frétt ir 13 slóðir en það skilaði sér og maður sér að í dag eru að koma upp öflugar stelpur og strákar í hand- boltanum sem hafa farið í gegnum þjálfun hjá félaginu frá upphafi. Sem betur fer er haldið vel utan um þjálfunina núna og afraksturinn er að koma í ljós. Vandinn er hins vegar sá að allt of margir meiðast við íþróttaiðkun. Flest þessara meiðsla verða vegna of mikil álags á líkamann. Fólk er með keppnisskap en þekkir takmörkin ekki nægilega vel. Við getum minnkað þessi meiðsli með því að auka menntun þjálfara og bæta þjálfunina.“ Besta aðstaðan á Nesinu Gauti veltir fyrir sér aðstöðunni til uppeldis og íþróttaiðkana á Sel- tjarnarnesi. „Það sem Seltjarnarnes hefur fram yfir flest ef ekki öll önnur bæjarfélög er samfellan sem er á svæðinu. Leikskólinn, grunnskólinn, tónlistarskólinn, íþróttahúsið og sundlaugin eru öll á sama svæðinu. Krakkarnir geta farið beint í íþróttir- nar eða annað eftir skóla án þess að þurfa að fara um lengri leið. Þetta er mikill kostur fyrir íbúana að þurfa ekki að keyra krakkana út og suður eftir skólatíma ef þau stunda íþróttir, eru í tónlistarnámi eða sinna öðru menntunar- eða félagsstarfi. Bæjaryfirvöldum á Seltjarnarnesi hefur auðnast að byggja þessa samfelldu og góðu aðstöðu upp í gegnum tíðina. Ég hef farið víða í þeim tilgangi að skoða íþróttaaðstöðu og fá samanburð og ég held að ég geti sagt með sanni að hún er vandfundnari betri en hér á landi og þó víða væri skoðað erlendis. Vandinn hjá okkur er sá að við erum að leggja allt of mikla áherslu á aðstöðu og afreksíþróttir í stað þess að leggja áherslu á íþróttir fyrir alla. Það er alltof mikil áhersla lögð á afreksíþróttirnar miðað við að það fer aðeins lítið brot af krökkum í þá átt. Þess vegna verður að bjóða meiri þjálfun fyrir fjöldann. Það er verið að eyða miklum fjármunum í afreksþjálfun í stað þess að bæta starfið. Stundum er búið að eyða svo miklum fjármunum í að byggja upp glæsilega íþróttaaðstöðu. Ég er ekkert að lasta það en við verðum líka að geta haldið uppi starfi í þessum mannvirkjum sem snýr að öllum – ekki bara þeim sem leitast við að verða afreksmenn í íþróttum.“ Noregur og Sjúkraþjálfun Íslands Gauti fór til Noregs og þjálfaði norskt lið 1986 til 1988. Hann segir mjög svipað að þjálfa Norðmenn og mikill áhugi og metnaður hafi verið á meðal liðsmanna. „Eftir heimkomuna fór ég að vinna að því að koma þessari sjúkraþjálfunar- stöð Sjúkraþjálfun Reykjavíkur á fót og byggja hana upp. Hún átti 26 ára afmæli á liðnu vori. Hér fara nú í gegn um tvö þúsund manns á hverju ári og á síðasta ári fóru fram um 23 þúsund meðferðir.“ Gauti segir stöðina í miklu samstarfi við íþróttahreyfinguna og íþrót- tasamböndin varðandi mælingar og ráðgjöf. En það megi alltaf gera meira af slíku vegna þess að við erum búnir að festa kaup á góðum tækjum til þess að geta mælt getu. „Við höfum bæði verið með kraft- mælingar og fleiri mælingar til þess að skoða íþróttafólk og almenning til þess að koma í veg fyrir kvilla. Við höfum tekið að okkur að veita ráðgjöf í fyrirtækjum. Þá tökum við fyrir hvernig fólk beitir sér í vinnunni og framkvæmum einnig heilsufarsmælingar.“ Hrörnunin hefst upp úr þrítugu „Hrörnunin hefst upp úr þrítugu,“ segir Gauti Grétarsson sjúkraþjálfari þegar hann var ynntur eftir hvernig halda beri betri heilsu og lifa betra lífi þegar æviárum fjölgar. „Upp úr þrítugu fer að verða skerðing á jafnvægi og vöðvakrafti. Það gerist meðal annars vegna þess að þá fer framleiðsla á vaxtarhormónum að minnka. En við getum viðhaldið framleiðslu þeirra með því að hreyfa okkur. Við getum sagt að það verði til einn skammtur af vaxtar- hormónum þegar við framkvæmum hreyfingu sem síðan hefur áhrif á vöxt vöðva og eykur fitubrennslu. Þess vegna þarf að hvetja fólk til þess að hreyfa sig oftar. Það þarf ekki að hreyfa sig í langan tíma í einu heldur er betra að gera það jafnt og þétt yfir daginn – jafnvel í stuttan tíma í hvert skipti því það er vaxtarhormónin sem hafa þessi jákvæðu áhrif á alla skapaða hluti og með jákvæðri hreyfingu og æfingum aukum við vöðvakraftinn og bætum jafnvægið.“ Margir standa sig mjög vel Gauti segir að sú líkamsrækt sem margir stunda í dag byggist á of einhæfri þjálfun og miklu álagi. „Við vitum ekki nóg um hvort slík þjálfun skilar sér til baka í bættri heilsu vegna þess að fólk þróar með sér meiri álagseinkenni. Markmiðið með hreyfingu á að vera að bæta góðum árum við lífið en ekki bara árum. Því skiptir miklu máli þegar fólk er komið yfir fimmtugt og jafnvel sextugt að passa vel upp á gæðin. Með því að bæta gæði þjálfunar þá aukast líkur á því að fólki geti lifað lengur því sem kalla má eðlilegu daglegu lífi, sinnt sjálfu sér og fjölskyldu sinni og síðast en ekki síst búið lengur heima hjá sér þegar heldri árunum fjölgar í stað þess að þurfa að vera upp á aðra komin. Ég þekki fólk á öllum aldri alveg upp fyrir áttrætt og jafnvel um nírætt sem stendur sig mjög vel í þeirri baráttu að standa á eigin fótum. Ég held að mikilvægt sé að leggja þunga áherslu á þessa þætti þegar kemur að málefnum eldri borgara.“ Gera eitthvað sem er gaman Árið 2008 voru um 11% þjóðar-innar yfir 65 ára en eftir 15 ár eða árið 2030 er gert ráð fyrir að þetta hlutfall hafi nær tvöfaldast eða um 20% þjóðarin- nar hafi náð þeim aldri. Þetta þýðir að það verða um 65 til 70 þúsund einstakingar orðnir 65 ára og eldri. Talið berst að hjúk- runarheimilum sem mikið er rætt um þessa dagana. Kostnaði við rekstur þeirra og spurninguna um hvort og hvenær fólk eigi að fara inn á slíkar stofnanir. „Þörfin til þess að bregðast við þessu og vinna að úrræðum fyrir framtíðina eru orðin brýn. Stjórnvöld og ekki síður sveitarfélög þurfa að fara að sinna þessum þætti meira í ljósi þessara mannfjöldaupplýsinga. Vissulega munum við alltaf þurfa á hjúkrunarheimilum að halda fyrir fólk sem glatar heilsu sinni með einum eða öðrum hætti en ég er þess fullviss að með markvissri þjálfun og hreyfingu getur margt fólk dregið að fara á hjúkrunar- heimili og jafnvel losnað alveg við það. Þá skiptir miklu máli hvernig unnið er og að gera hlutina rétt. Í endurhæfingunni er ekki nóg að vera inni í lokaðri stöð heldur er ekki síður nauðsynlegt og jafnvel nauðsynlegra að hreyfa sig utan dyra. Hjúkrunarheimilin eru dýr í reksri. Hvert pláss kostar umtals- verða fjármuni og það er því ekki aðeins ávinningur fyrir einstakling- ana heldur fyrir samfélagið sem heild að gera fólki kleyft að halda heilsu sinni eins lengi og unnt er. Þetta getur haldist í hendur. Hvatning til fólks að huga að heilsu sinni með meiri hreyfingu og hvatinn til þess að geta búið lengur heima hjá sér. Heldra fólkið þarf að finna sér hreyfingu sem því finnst gaman að framkvæma. Gera eitthvað sem því finnst gaman. Það er mjög gott að synda og gera æfingar í vatni með vatnið sem mótstöðu. Á Nesinu er frábær golfvöllur þar sem gott er að ganga og slá golfkúlur og svo er það bara þessi almenna útivera – að ganga og hjóla og spóka sig.“ Gauti Grétarsson ásamt samstarfsfólki í Sjúkraþjálfun Reykjavíkur. Hlutfall heldri borgara af íbúafjölda og spá um fjölgun til ársins 2030.

x

Nesfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.