Nesfréttir - 01.03.2015, Qupperneq 20

Nesfréttir - 01.03.2015, Qupperneq 20
20 Nes ­frétt ir U M H V E R F I S H O R N I Ð Verkin í garðinum eru fjölbreytt og óþrjótandi. Lífverur garðsins taka á sig ólíkar myndir eftir því hver árstíðin er og oftar en ekki þarf að nýta sumarið vel ef ætlunin er að ala áhugaverðar plöntur til augnayndis eða átu. Skipulagning er nauðsynleg ef vel á að takast til. Kíkjum því á árið í garðinum okkar og sjáum hvenær best er að standa að hinu og þessu. Janúar - mars Flestir myndu ætla að fátt væri hægt að gera í garðinum á þessum árstíma. Samt sem áður er ýmislegt sem hægt er að gera til undirbúnings komandi sumri. - Á þessu tímabili má sá flestum þeim sumarblómum sem hugurinn girnist. Það er mikil gleði sem felst af því að horfa á heimaaldar stjúpur, morgunfrúr og hvaðeina vaxa og dafna í garðinum. - Grúska í garðyrkjutímaritum, bókum og plöntulistum gróðrarstöðva og skipuleggja framkvæmdir vorsins og sumarsins. Tilvalið er að fá ráðleggingar landslagsarkitekta og garðhönnuða til að auka notagildi og ásýnd garðsins enn frekar. - Í febrúarlok fara vorlaukar að fást í garðyrkjuverslunum. Maríusóleyjar, begoníur og ýmsar framandi liljur eru meðal þess sem fæst á þessum tíma og úrvalið eykst sífellt. - Klippa og snyrta trjá- og runnagróður í garðinum. Það má í raun gera allt árið, en stórtækar aðgerðir eru heppilegar á þessum tímabili og allt fram á gróandann. - Njóta garðsins í vetrarbúningi og hugsa sér hverju megi bæta við til að fegra ásýnd hans þegar sumarið gengur í garð. Til dæmis lífga sígrænir runnar mikið upp á garðinn að vetrinum og má þá nefna himalajaeini, dvergfuru og lyngrósir. - Setja út ávexti, korn og brauð til að fæða fiðraða vini á köldum dögum. Reglubundnar fóðurgjafir lokka oft flækingsfugla frá nágrannalöndunum í garðinn. Fátt er skemmtilegra en að sjá gráþresti, hettusöngvara, glóbrystinga og silkitoppur innan um heimakæra þresti og stara. Apríl – maí Nú er verulega farið að halla að vori, sólin farin að verma grund og víða ber þess vitni í umhverfinu. Brum og blómknúppar á trjágróðri eru farið að þrútna og ýmsir fjölæringar eru farnir að gægjast upp úr moldinni. Vetrargosar, krókusar og ýmsar snemmbærar tegundir eru jafnvel búnar að blómstra á þessum árstíma. - Nú má hefja forræktun á grænmeti. Kálmeti í aprílbyrjun, salat í maí. - Raða kartöfluútsæði í kassa til spírunar í maíbyrjun og setja niður í maílok eða júníbyrjun. - Síðla í maí er víðast hvar orðið frostlaust í jörðu. Þá er tilvalið að hefja gróðursetningu á hverskyns gróðri. Plöntum úr gróðrarstöðvum sem eru pottaræktaðar eða rótskornar eftir kúnstarinnar reglum er hægt að planta allt sumarið og langt fram eftir hausti. - Flytja trjáplöntur og runna til ef þess þarf. Stór tré og runna ætti að undirbúa með rótarskerðingu ári áður. - Flytja og skipta fjölærum plöntum. Tegundir sem lifna og blómgast snemma ætti að skipta síðar að sumrinu þegar þær byrja að visna. - Huga að maðki í trjágróðri þegar vöxtur hefst. Úða, eða láta fagmann með tilskilin réttindi úða ef þörf þykir. Óþarfi er að úða allan gróður og síst skyldi hafa það sem árlega reglu að láta úða allan garðinn. - Hreinsa til í beðum og raka lauf úr grasflöt. Lauf frá fyrra ári er tilvalið að setja í safnkassa eða undir runnagróður þar sem að ánamaðkarnir og aðrir íbúar jarðvegarins koma því aftur í umferð. - Jarðvinna matjurtagarðinn, ýmist með stungugaffli eða jarðvegstætara sem hægt er að fá leigðan. Júní – ágúst Sumarið er gengið í garð með sólskini í heiði. Nú fer í hönd helsti annatími þess sem ræktar garðinn sinn. - Slá grasflötina. Það er jú nauðsynlegur fylgifiskur sumarsins. - Bera á grasflöt og annan gróður. Alhliða tilbúinn áburður eða lífrænn húsdýraáburður hentar vel. Sá lífræni stuðlar að auknu örverulífi í jarðvegi sem er gagnlegt og eykur lífrænt innihald hans. - Vinna má á mosa með mosatætingu, hressilegum rakstri eða mosaeyði. Í kjölfarið má kalka með skeljasandi eða áburðarkalki og gefa áburðarskammt. Hæfilegur átroðningur og reglubundin áburðargjöf heldur mosanum að nokkru í skefjum. Hafa skal í huga að mosinn er ávallt áberandi að vorlagi þó svo að nóg sé af grasrót undir honum. - Prýða með sumarblómum. Stjúpur geta farið niður snemma sumars, jafnvel síðla maí enda þola þær ýmislegt misjafnt. Sumarblóm fást orðið lengi sumars. Tilvalið er að breyta til upp úr miðju sumri og planta einhverju sem stendur fram á vetur, s.s. skrautkáli, silfurkambi og sígrænum runnum. Sýprus, lífviður og einir setja virðulegan svip á beð, ker og potta. - Í gróðrarstöðvum fást forræktaðar matjurtir af ýmsum tegundum. Aðallega kálmeti og salat. Setja niður fyrripart sumars til að njóta góðrar uppskeru. - Síðsumars er hægt að uppskera það sem til var sáð. Af blaðsalati má reyndar tína blöð án þess að taka alla plöntuna. Hvítkál má uppskera upp úr miðjum júlí hafi það farið snemma niður og aðrar káltegundir aðeins síðar. September – desember Sumri hallar og vetur gengur í garð. Haustið er tíminn til að njóta ávaxta sumarsins og litadýrðar gróðurríkisins í haustlitum. - Í septemberbyrjun er kominn uppskerutími fyrir kartöflur. - Huga skal að gróðri sem prýðir fram á vetur. Sígrænn gróður í kerjum setur mikinn svip á aðkomu húsa og sumar tegundir sumarblóma geta enst ótrúlega lengi. - Við lauffall ætti að raka sem mestu laufi af grasflötum og út í beð. Þar nýtist það sem vetrarskjól fyrir fjölærar jurtir sem dorma í jarðvegsyfirborðinu. - Huga að vetrarskýlingu ef þess þarf. Sumar sígrænar tegundir getur þurft að skýla, einkum á veðrasamari stöðum og sér í lagi fyrstu eitt til tvö árin. - Haustlaukar eru “loforð um litríkt vor” eins og þar stendur. Þeir fást frá því í september og fram eftir hausti og vetrarbyrjun. Vissara er að koma þeim niður áður en jörð er klakabundin. Heimildir: Jóhannes Baldvin Jónsson. F.h. umhverfisnefndar Margrét Pálsdóttir, formaður. Almanak garðyrkjumannsins - grænt dagatal Passíusálmar lesnir í Seltjarnarnes- kirkju á Föstudaginn langa 3. apríl Allir PASSÍUSÁLMAR séra Hallgríms Péturssonar verða lesnir upp í Seltjarnarneskirkju á Föstudaginn langa, 3. apríl 2015 síðdegis, eins og venja er orðin. Lesturinn hefst kl. 13 og stendur fram undir kl. 18. Fögur tónlist verður flutt í hléum á milli lestra. Seltirningar og aðrir eru velkomnir í kirkjuna til að hlýða á lesturinn - og njóta hans og tónlistarinnar á þessum merka degi kirkjuársins. Getur fólk staldrað stutt við eða haft lengri viðstöðu, eftir því sem hverjum hentar. Boðið verður upp á kaffiveitingar í safnaðarheimili kirkjunnar. Þess var víða minnst í fyrra að þá voru liðin 400 ár frá fæðingu hins stórmerka prests og mikla skálds sr. Hallgríms Péturssonar (1614-1674). Passíusálmarnir, öndvegisverk hans, eru einstætt snilldarverk, kveðskapur sem rekur píslargöngu Jesú og hugleiðir hana. Hafa sálmarnir öldum saman átt sér stað við hjartarætur þjóðarinnar og margar kynslóðir kunnað suma þeirra utanbókar. Passíusálmarnir voru fyrst gefnir út árið 1666 á Hólum, þannig að á næsta ári verða 350 ár frá frumútgáfunni. Ekkert rit hefur verið prentað jafnoft á íslensku og segir það sína óyggjandi sögu um hve dáður kveðskapur Hallgríms hefur verið í gegnum tíðina. Fyrir síðustu aldamót voru prentanirnar orðnar 80, auk þýðinga og útgáfa á fjölda annarra tungumála. Um tveir tugir Seltirninga á ýmsum aldri munu lesa alla 50 Passíusálmana. Sóknarnefnd og Listvinafélag Seltjarnarneskirkju standa fyrir þessum flutningi Passíusálmanna.

x

Nesfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.