Fréttablaðið - 04.03.2016, Page 2
Þarna er um að ræða
stóran samning til
tíu ára sem varðar eina af
okkar lykilatvinnugreinum.
Svandís Svavarsdóttir alþingismaður
Öryggi „Hversu miklu erum við
tilbúin að fórna af friðhelgi okkar
og fyrir hvað eða handa hverjum?“
spyr Helga Þórisdóttir, forstjóri
Persónuverndar. Fæstir notendur
internetsins átta sig á því umfangi
upplýsinga sem samfélagsmiðlar og
snjallsímaöpp safna um þá og selja
jafnvel til þriðja aðila.
Á þriðjudag greindi Fréttablaðið
frá því að hægt væri að fylgjast með
nákvæmri staðsetningu fólks með
einfaldri tækni. Sé fólk með kveikt á
staðsetningar-stillingum í símanum
sínum eru upplýsingarnar nánast
undantekningalaust aðgengilegar,
með einhverjum hætti. Helga segir
að vandinn sé umfangsmeiri en svo
að hægt sé að fylgjast með ferðum
fólks.
„Snjalltækin opna fyrir þann
möguleika að kortleggja fólk alveg
frá A til Ö. Margir hugsa sem svo að
þeir hafi ekkert að fela en þegar ein-
staklingar eru kortlagðir yfir langan
tíma þá verður til rýni um hvaða
einstaklingur þú ert. Ferðu til dæmis
alltaf að skokka á morgnana, eltirðu
hagstæð tilboð í netverslunum eða
endarðu kvöldið ósjaldan á barn-
um? Fólk er ekki meðvitað um að
þessar upplýsingar ganga kaupum
og sölum.“
Helga segir að þetta sé ekki ólög-
legt því notendur samþykki eftir-
litið sjálfir við upphaf notkunar.
„Þessi öpp biðja um samþykki fyrir
niðurhali, svo fylgir þessi langi texti
sem fólk kannski les ekki. Þar koma
fram allar þessar upplýsingar að þú
sért að leyfa þessum aðilum sem
framleiða öppin að fylgjast með ansi
mörgu sem þú gerir. Ef þú hakar í „I
agree“ þá er komin heimild sam-
kvæmt persónuverndarlögum.“
Hún segir að stundum sé beðið
um að geta staðsett símann við
notkun appsins, aðrir hafi aðgang
að internetsögu, sms-skilaboðum,
tengiliðaskrá og símtalaskrá. „Eitt
fyrirtæki kemst inn í símtöl og
nokkur inn í myndavél. Þetta á allt
að vera í þessu smáa letri.“
Vilji fólk ekkert eftirlit sé það
nærri nauðbeygt til að sleppa því
að nota snjalltæknina. „Segjum sem
svo að þú sért ánægð með að deila
upplýsingum með framleiðand-
anum, en oft á tíðum er neytandinn
alls ekki viljugur til að deila neinu
með þriðja aðila. Þriðji aðili getur
verið tryggingafélag eða annar
einkaaðili. Persónuupplýsingar eru
orðnar mikilvæg söluvara,“ segir
Helga.
Helga segir að von sé á nýjum
persónuverndarlögum í Evrópu
sem verði innleidd árið 2018. Vilji
sé til þess að taka lögin upp hér á
landi samtímis Evrópu. „Nýja lög-
gjöfin er að taka miklu betur á þessu
og tryggja rétt einstaklinga. Hér á
landi eru allir mjög meðvitaðir um
þetta. Það á að styrkja réttindi ein-
staklinga.“ snaeros@frettabladid.is
Persónuupplýsingar
seldar fyrirtækjum
Með snjalltækni geta fyrirtæki kortlagt hegðun fólks og rýnt í persónuleika. Ný
persónuverndarlög í Evrópu verði innleidd 2018 til að auka einstaklingsrétt.
Elísabet Jökulsdóttir og Guðbergur Bergsson eru tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Tilnefningarnar voru kynntar opinberlega
í gær. Elísabet er tilnefnd fyrir bókina Ástin er ein taugahrúga. Enginn dans við Ufsaklett, en Guðbergur Bergsson er tilnefndur fyrir skáldsöguna
Þrír sneru aftur. Fréttablaðið/Ernir
Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar, segir von á nýjum lögum varðandi pers-
ónuvernd í Evrópu. réttur einstaklinga verði betur tryggður. Fréttablaðið/VilHElm
Burt með
bólurnar!
Náttúrulegar
húðvörur
Fæst í apótekum og heilsubúðum
TILBOÐ
FY
RI
R2 1
Vestlæg átt, 3-8 og víða él í dag, en
bjartviðri á Norðausturlandi. Hiti kringum
frostmark suðvestanlands, en annars
fremur kalt. sjá síðu 24
Veður
Hvaða upplýsingar
geymir Facebook
l Allt sem þú deilir á síðunni
l Hvaða fólki þú tengist
l Upplýsingar um tölvuna
og símann sem þú notar
l Upplýsingar frá þriðja aðila,
svo sem auglýsendum
l Kaupsögu þína í gegnum
Facebook-síður
Tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs
Alþingi Svandís Svavarsdóttir þing-
maður hefur lagt fram fyrirspurn á
Alþingi til landbúnaðarráðherra
um hvort nýir búvörusamningar
samræmist loftslagsmarkmiðum
Parísarsamkomulagsins frá 2015.
Hún vill vita í hverju umhverfis-
áhrif samninganna felast. Svandís
segist ekki hafa ástæðu til að ætla
að samningarnir standist ekki sam-
komulagið. „Þarna er um að ræða
stóran samning til tíu ára sem
varðar eina af okkar lykilatvinnu-
greinum. Það skiptir máli að þar
liggi fyrir hvernig plönin ríma við
loftslagsmarkmiðin.“
Svandís var umhverfisráðherra
á síðasta kjörtímabili en segist
ekki geta svarað því í fljótu bragði
hversu mikið eða lítið íslenskur
landbúnaður er umhverfisvænn.
Hún segir sóknarfæri í landbúnaði
þegar kemur að því að draga úr
losun gróðurhúsalofttegunda. „Það
er mjög áhugavert að sjá hver staðan
er akkúrat núna. Eigum við ekki að
leyfa núverandi umhverfisráðherra
að svara því?“ – snæ
Spyr um áhrif
samninganna
Svandís Svavarsdóttir þingmaður vill
vita hvaða gögn liggja til grundvallar
um sjálfbæra landnýtingu.
Fréttablaðið/Ernir
ByggðAmál Borgarráð samþykkti
samhljóða á fundi í gærdag að aug-
lýsa í forvali eftir aðilum til að koma
á fót og reka hjólaleigu í Reykja-
vík. Slíkar hjólaleigur hafa fest sig
í sessi víða um heim, meðal annars
á Norðurlöndunum, og er tilgangur
þeirra að veita fólki aðgang að hjóli
fyrir ferðir innan borgarmarkanna.
Mögulegar staðsetningar, sem
nefndar hafa verið, fyrir slíkar
hjólaleigur eru til dæmis í Kvosinni,
við Háskóla Íslands, Háskólann í
Reykjavík og við Hlemm.
Í september 2014 var skipaður
starfshópur um hjólaleigu í Reykja-
vík og var í minnisblaði hópsins
lagt til að aðkoma borgaryfirvalda
yrði fyrst og fremst fólgin í að skapa
aðstöðu fyrir slíkar leigur, en að
aðrir aðilar sjái um uppsetningu
og rekstur leiganna. Í forvalinu þarf
meðal annars að kanna fjölda hjóla
og leigustöðva, tæknilegar lausnir
og staðsetningu. – þv
Hjólaleigur í
Reykjavík
4 . m A r s 2 0 1 6 F Ö s T u D A g u r2 F r é T T i r ∙ F r é T T A B l A ð i ð
0
4
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:1
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
A
9
-C
5
3
0
1
8
A
9
-C
3
F
4
1
8
A
9
-C
2
B
8
1
8
A
9
-C
1
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
5
6
s
_
3
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K