Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.03.2016, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 04.03.2016, Qupperneq 4
flugmál „Það er ekki samkvæmt íslenskum lögum að það sé hægt að hlusta á upptökur á talstöðvarvið- skiptum á netinu,“ segir Steinþór Páll Ólafsson, fráfarandi formaður Öryggisnefndar Félags íslenskra atvinnuflugmanna, um endurvarp og upptökur á flugfjarskiptum hér- lendis á síðunni liveatc.net. Hægt var um skeið að hlusta á talstöðvarsamskipti flugmanna og flugumferðarstjórnar hérlendis á bandarísku vefsíðunni liveatc.net. Vefsíðan sérhæfir sig í að endur- varpa og gera upptökur af slíkum flugfjarskiptum víða um heim. Segir á síðunni að þetta sé gert til fróð- leiks og gamans. Starfsemin byggir á framlagi sjálfboðaliða sem nota einfalda skannera til að nema fjar- skiptin og veita þeim inn á netið. Í apríl í fyrra sneri Öryggisnefnd Félags íslenskra atvinnuflugmanna (ÖFÍA) sér til Póst- og fjarskipta- stofnunar og vakti athygli á starf- semi liveatc.net hér á landi. P&S vísaði málinu til Samgöngustofu í maí. ÖFÍA sendi Samgöngustofu ítrekunarbréf viku fyrir síðustu jól. „Leynd flugfjarskipta“ var yfir- skriftin. „Þrátt fyrir að um afar við- kvæmar upplýsingar sé að ræða er varða flugöryggi hérlendis hefur SGS [Samgöngustofa] ekki gripið til aðgerða til að koma í veg fyrir hlustun, upptöku, dreifingu og vistun umræddra gagna sem eru án nokkurra takmarkana og aðgengileg hverjum þeim er fletta upp fram- greindri vefsíðu,“ sagði í bréfinu sem undirritað var af Steinþóri, for- manni öryggisnefndarinnar. Aðspurður vill Steinþór ekki svara því hvernig endurvörpunin á liveatc.net varði flugöryggi. „Allir sem eitthvað vita um flug, þeir nátt- úrulega skilja þetta mjög vel. Það er ekkert eðlilegt að upptökur af Endurvarp fjarskipta stöðvað að kröfu atvinnuflugmanna Félag íslenskra atvinnuflugmanna fékk því framgengt að lokað var fyrir netsíðu þar sem flugfjarskiptum hérlendis var endurvarpað og þau vistuð. Stjórnendur síðunnar skora á íslensk yfirvöld að breyta lögunum. Þetta svar frá þeim um að þessi síða hafi eitthvert gildi fyrir flugmenn og flugumferðarstjóra stenst engan veginn. Steinþór Páll Ólafsson, fráfarandi formaður Öryggisnefndar Félags íslenskra atvinnuflugmanna Flugumferðarstjórar í flugturninum í Reykjavík eiga mikil samskipti við flugmenn á talstöðvartíðni sem hægt er að hlusta á með einföldum tækjum. FRéttablaðið/ERniR samtölum séu bara aðgengilegar á netinu,“ segir hann. Í janúar á þessu ári varð úr að Póst- og fjarskiptastofnun fékk málið aftur til meðferðar. Stofn- unin sendi liveatc.net bréf þann 26. janúar og benti á að fyrrgreind starfsemi síðunnar stangaðist á við íslensk lög líkt og eigi við um Bret- land. Talsmaður liveatc.net sagðist mundu hlíta því en sagði hins vegar ákvörðun P&S misráðna því efnið á vefsíðunni hefði fræðslugildi fyrir bæði flugmenn og flugumferðar- stjóra. Sagði hann enga hættu stafa af starfseminni. „Þetta svar frá þeim um að þessi síða hafi eitthvert gildi fyrir flug- menn og flugumferðarstjóra stenst engan veginn,“ svaraði Steinþór þegar P&S bar undir hann tilsvör talsmanns liveatc.net. Þótt liveatc.net sendi ekki lengur út flugfjarskipti hérlendis þá geta þeir sem eiga réttu tækin áfram hlustað á samskiptin. Livatc.net starfar í fjölmörgum öðrum löndum í öllum heimsálfum, meðal annars á öllum Norðurlöndunum, Rússlandi og Frakklandi. gar@frettabladid.is Liveatc.net í Evrópu Noregur, Svíþjóð, Danmörk, Belgía, Frakkland, Pólland, Hol­ land, Finnland, Rússland, Úkraína, Slóvakía, Makedónía, Moldóva, Tyrkland, Sviss, Rúmenía, Port­ úgal, Malta, Tékkland, Ungverja­ land, Grikkland, Búlgaría, Litháen, Lettland, Írland. Verðið vel Verið velkomin á bás B1 StjórnSýSla Mennta- og menn- ingarmálaráðherra hefur skipað Ingva Hrafn Óskarsson formann fjölmiðlanefndar í stað Karls Axels- sonar sem óskað hefur lausnar. Skipunartímabil er til ágústloka 2019. Ingvi Hrafn er starfandi héraðs- lögmaður. Hann sagði af sér sem stjórnarformaður RÚV í nóvember síðastliðnum. Fjölmiðlanefnd annast eftir- lit með íslenskum fjölmiðlum og meðal annars með öllum leyfis- og skráningarskyldum þeirra. – bá Ingvi Hrafn yfir fjölmiðlanefnd ViðSkipti Íbúðalánasjóður hefur samið við dótturfélag Seðlabankans, ESÍ ehf., um kaup á skuldabréfum fyrir 13 milljarða króna. Um er að ræða sértryggð skulda- bréf með veði í húsnæðislánum útgefin af Arion banka hf. Samn- ingurinn er gerður með fyrirvara um endanlegt samþykki stjórnar Íbúðalánasjóðs. Sjóðurinn keypti í lok síðasta árs sams konar skuldabréf fyrir 70 milljarða og því er alls um að ræða 83 milljarða króna viðskipti milli sjóðsins og ESÍ á nokkrum mán- uðum. – jhh Kaupa bréf fyrir 13 milljarða orkumál Fyrirhugaðar fjárfestingar Landsnets í flutningskerfinu nema hátt í 35 milljörðum króna næstu þrjú árin. Þarf að fara allt aftur til ársins 2007 til að finna sambæri- legar fjárfestingar í flutningskerfi félagsins. Alls eru um ellefu milljarðar króna áætlaðir í fjárfestingar í flutningskerfi Landsnets á þessu ári, tæpir fjórtán milljarðar áætlaðir á næsta ári og tæpir tíu milljarðar árið 2018. Verkefnið Krafla – Þeistareykir - Bakki felur í sér byggingu tveggja háspennulína, samtals rúmlega 61 kílómetri að lengd, og þriggja tengi- virkja til að tengja iðnaðarsvæðið á Bakka við Þeistareykjavirkjun og virkjunina við meginflutningskerfið. Áætlanir gera ráð fyrir að verkinu ljúki í september árið 2017. Á Norðausturlandi er lagning háspennulínu milli Kröflu og Fljóts- dals í undirbúningi. Línan verður 122 kílómetrar að lengd og er mat á umhverfisáhrifum hennar á lokastigi. Reiknað er með að framkvæmdum ljúki árin 2017-18. Undirbúningur framkvæmda er í gangi vegna Sandskeiðslínu 1, sem er 27 kílómetra löng loftlína frá Sand- skeiði að Hafnarfirði, sem þarf að reisa svo hægt sé að fjarlægja Hamra- neslínur 1 og 2 eins og samkomulag er um við Hafnarfjarðarbæ. Áætlað er að línan verði lögð árin 2017-2018. Á Reykjanesi er meðal annars vinna að hefjast við Suðurnesjalínu 2, 32 kílómetra langa háspennulínu frá Hafnarfirði að Rauðamel, en unnið er að undirbúningi Fitjalínu 3, níu kíló- metra langs jarðstrengs frá tengivirki á Fitjum að tengivirki Landsnets í Helguvík. – shá Fjárfestir fyrir 35 milljarða á þremur árum línurnar sem verða lagðar eru 484 kíló- metrar. FRéttablaðið/vilhElm Eignasafn Seðlabankans er dótturfélag bankans. FRéttablaðið/aRnþóR 4 . m a r S 2 0 1 6 f Ö S t u D a g u r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð 0 4 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :1 9 F B 0 5 6 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 A 9 -D 8 F 0 1 8 A 9 -D 7 B 4 1 8 A 9 -D 6 7 8 1 8 A 9 -D 5 3 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 5 6 s _ 3 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.