Fréttablaðið - 04.03.2016, Side 8

Fréttablaðið - 04.03.2016, Side 8
Romney sakar Trump um hafa bandarísku þjóðina að fífli og segir hann vera svikahrapp og loddara. menning Borgarráð hefur falið skrifstofu eigna og atvinnuþróun- ar hjá Reykjavíkurborg að ganga til samninga við félagið Perlu norðurs- ins um leigu á Perlunni en fyrirtæk- ið hyggst setja upp veglega náttúru- sýningu. Eigendur Perlu norðursins eru félög sem hafa sterkan fjárhags- legan og faglegan bakgrunn í ferða- þjónustu og náttúrufræðum. Reykjavíkurborg óskaði í byrjun janúar eftir umsóknum áhuga- samra aðila um rekstur á sýningu í Perlunni sem fjalla skyldi á metn- aðarfullan hátt um náttúru Íslands. Gert er ráð fyrir því að náttúrusýn- ing skapi nýjan og áhugaverðan áfangastað í Öskjuhlíð sem dragi til sín fjölda innlendra og erlendra gesta. Perla norðursins var eini aðilinn sem skilaði inn tillögu. Félagið var stofnað í fyrra um verkefnið af þremur sjálfstæðum félögum sem öll höfðu á stefnuskrá sinni að leggja fram tillögu að sýn- ingu, en ákváðu að sameinast um tillöguna sem borgarráð fjallaði um í gær. Þau eru Landsbréf – Icelandic Tourism Fund I, framtakssjóður í eigu Landsbankans, Icelandair Group og íslenskir lífeyrissjóðir, sem hefur fjárfestingagetu upp á rúma fjóra milljarða, Perluvinir – 80 manna hópur sem hvatt hefur til uppbyggingar náttúrusýningar í Perlunni, og Salta ehf. & Lapp- land ehf. – fjárfestingafélög sem hafa það að markmiði að fjárfesta í ferðaþjónustu á sviði afþreyingar, hótela og safna. Helga Viðarsdóttir, stjórnarfor- maður Perlu norðursins, segir það hafa verið skynsamlegt að félögin ynnu öll saman að verkefninu og ráðið því að svo fór – sameinuð væru þau fjárhagslega sterkari og með faglegri og breiðari bak- grunn en annars hefði verið. Helga telur, vægast sagt, löngu tímabært að sýning sem þessi verði í boði hér á landi, enda litið til Íslands vegna náttúrunnar fyrst og síðast. Staðsetning landsins geri það að verkum að breytingar í náttúrunni eru ekki víða jafn greinilegar á byggðu bóli, sem gefur fjölþætta möguleika. „Við getum verið mið- stöð áhugafólks um náttúru og vísindi og sérfræðinga á þessum sviðum. Það er ekki síst það sem okkur langar til að gera. Þetta er spennandi fyrir alla landsmenn,“ segir Helga. Áætlað er að stofnkostnaður sýningarinnar verði rúmlega 1,5 milljarðar króna, en þá hefur ekki verið gert ráð fyrir virðisaukaskatti. Eigendur hafa skuldbundið sig til að leggja fram 900 milljónir króna í hlutafé og hefur lánsfjármögnun að upphæð 650 milljónir króna verið tryggð. Gangi allt að óskum munu framkvæmdir við uppbyggingu sýningarinnar skiptast í tvo áfanga sem mun báðum ljúka fyrir árslok 2017 en fyrstu sýningarrýmin verði opnuð á fyrri hluta sama árs. svavar@frettabladid.is Náttúrusýning loks sett upp í Perlunni Reykjavíkurborg gengur til samninga við félagið Perlu norðursins um náttúrusýningu í Perlunni, sem fyrirhugað er að opna á næsta ári. Félagið er faglega og fjárhagslega sterkt. Stofnkostnaður er áætlaður rúmlega 1,5 milljarðar og 650 milljóna lánsfjármögnun tryggð.  Sýningin mun beita nýjustu tækni í vísindamiðlun í bland við hefðbundna sýningartækni. mynd/Xibitz, bowen technovation og Lord cuLturaL reSourceS Setja upp íshelli og stjörnuver l Sýning Perlu norðursins mun leggja megináherslu á norðurljós, jarðvarma, eldvirkni, ferskvatn, hafið, jökla, loftslagsbreytingar og síðast en ekki síst lífríki Íslands. l Sýningin mun beita nýjustu tækni í vísindamiðlun í bland við hefðbundna sýningartækni. Gestum verður auðveldað að skilja flókin fyrirbæri á einfaldan hátt svo þeir uppgötvi nýja þekkingu. l Sýningin mun hafa mikið fræðslugildi og nýtast skólum vel til að fræða nemendur um íslenska náttúru. l Sýningin mun verða mikið aðdráttarafl fyrir erlenda ferðamenn. l Perla norðursins mun nýta tækni sem ekki hefur sést á Íslandi – hægt verður að skoða himinhvolfið í sérstöku stjörnuveri (Planetarium) og settur verður upp íshellir þar sem gestir geta kynnst því hvernig er að vera á jökli. Þetta er spennandi fyrir alla lands- menn. Helga Viðarsdóttir, stjórnarformaður Perlu norðursins óperan sem þú mátt ekki missa af! Sýningar kl. 19 í Hörpu 5. mars, 11. mars og 13. mars Miðasala á harpa.is og tix.is #islenskaoperan W.A. Mozart „Afrek“ … „Sterk heildræn uppfærsla“ – HJ Kastljós Tilkynning frá True Westfjords Bolungarvík 3. mars 2016 True Westfjords ehf hefur, í samráði við Matvælastofnun, ákveðið að stöðva dreifingu og innkalla eina tiltekna framleiðslulotu af Dropa þorskalýsi í fljótandi formi, í 220 ml flöskum. Þessi lota er merkt BF090117. Ástæða innköllunar er að í ljós hefur komið að eitt gildi af þremur fyrir þrávirk efni, samanlagt magn díoxín, fúran og díoxínlíkra PCB efna mældist yfir leyfilegu hámarksgildi. Með öryggi neytenda í forgangi er því ákveðið að innkalla lotuna. Upplýsingar um vöruna; Vöruheiti: Dropi – Pure Icelandic cod liver oil Strikamerki: 5694110051608 Nettómagn: 220 ml Best fyrir: 090117 Neytendum sem keypt hafa vöruna með þessum lotunúmeri er bent á að þeir geta skilað vörunni í þá verslun þar sem hún var keypt. True Westfjords ehf biður neytendur velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta hefur getað valdið. Nánari upplýsingar veitir gæðastjóri True Westfjords ehf í netfangið anna@truewest.is Bandaríkin Fyrrverandi for- setaframbjóðandi Repúblikan- aflokksins, Mitt Romney, hefur hvatt flokksbræður sína til að hafna framboði Donalds Trump. Eins og er alkunna er Trump í bar- áttu um að verða forsetaefni Repú- blikanaflokksins og miklar líkur eru á því að hann tryggi sér tilnefningu flokksins, ef fram heldur sem horfir. Romney sakar Trump um hafa bandarísku þjóðina að fífli og segir hann vera svikahrapp og loddara. Þetta kom fram í ræðu Romney á fundi í Utah-ríki í gær. Í ræðu sinni hvetur Romney samlanda sína til að taka réttar ákvarðanir og styðja ekki við bakið á Trump. Trump hefur svarað Romney á samfélagsmiðlinum Twitter og sagði meðal annars að Romney ætti ekki að veita öðrum ráðleggingar varð- andi forsetaframboð í ljósi þess að hann hafi tapað kosningunum árið 2012 fyrir Barack Obama. Trump brást einnig við orðum Romneys í ræðu sem hann hélt í Maine. „Ég studdi Mitt Romney,“ sagði Trump í ræðunni. „Nú sjáið þið hversu trygglyndur hann er. Hann var að grátbiðja um stuðning minn.“ Romney telur að ef Trump hljóti tilnefningu flokksins muni það greiða veginn að forsetaembættinu fyrir Hillary Clinton. Þá segir hann einnig að Trump hafi hvorki rétta skapgerð né dómgreind til að gegna embætti forseta Bandaríkjanna. M i k i l l u g g u r e r i n n a n Repúblikanaflokksins vegna fram- gangs Trumps í forvali flokksins og hafa leiðtogar hans keppst við að reyna að hægja á Trump auk þess sem fjölmargir flokksfélagar hafa talað gegn stefnu Trumps að undan- förnu. Trump varð hlutskarpastur repú- blikana á Ofurþriðjudeginum svo- kallaða en þar hafði hann sigur í sjö ríkjum Bandaríkjanna í forvali flokksins. – þv Romney segir Trump vera loddara mitt romney hvetur félaga í repú­ blikanaflokknum til að hafna framboði donalds trump. nordicphotoS/aFp 4 . m a r s 2 0 1 6 F Ö s T U d a g U r8 F r é T T i r ∙ F r é T T a B L a ð i ð 0 4 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :1 9 F B 0 5 6 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 A A -0 0 7 0 1 8 A 9 -F F 3 4 1 8 A 9 -F D F 8 1 8 A 9 -F C B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 5 6 s _ 3 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.