Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.03.2016, Qupperneq 11

Fréttablaðið - 04.03.2016, Qupperneq 11
Sölusýning á morgun frá kl. 10 til 16. Á morgun, laugardag, efnum við til sölusýningar í báðum verslunum okkar, í Nóatúni 4 og í Hlíðasmára 3. Þar gefst tækifæri til að skoða allt það nýjasta sem við bjóðum. Meðal annars þvottavélar, sem skammta þvottaefni sjálfkrafa (i-DOS), uppþvottavélar sem fengu hæstu einkunn hjá danska neytendablaðinu, nýjustu ofnana frá Siemens og Bosch með byltingakenndum nýjungum, þar á meðal 4D heitum blæstri og fleira og fleira. Fjöldi tilboða í tilefni dagsins. Veittur verður afsláttur af öllum vörum sem ekki eru á Tækifærisverði. Látið sjá ykkur og njótið dagsins með okkur! Hlíðasmára 3 . Sími 520 3090 www.bosch.is Sölusýning s ý n i n g Sölu ↣ Gerist ekki allt á minni skrif- stofu Halldór Halldórsson, oddviti sjálf- stæðismanna í borginni, hefur sagt að mikið hafi fjölgað í yfirstjórn og nefndum hjá borginni eftir að núverandi meirihluti tók við. Er það þá ekki rétt? „Nei, hann hefur aðallega verið að tala um að það hafi fjölgað mikið starfsfólki á skóla- og frístunda- sviði. Það tengist á hverjum tíma nem enda þróuninni. Ég hef sagt við hann að mér finnist sjálfsagt að skoða alla þróun og sjálfsagt að spyrja gagnrýninna spurninga. Mér finnst að ekkert í fjárhag borgarinn- ar eigi að vera leyndarmál. Þetta á bara að vera skýrt, gott og gegnsætt. Við eigum að treysta okkur til að svara hverju sem er. Ef það er eitt- hvað sem við verðum sammála um að megi þróast betur þá breytum við því.“ Hver er sársaukafyllsta ákvörð- unin í þessum niðurskurði? „Ég held að öll starfsemi borgarinnar eða mjög mikið af henni sé viðkvæm. Okkur finnst minnst viðkvæmt að spara í ráðhúsinu, í yfirstjórninni. Þegar kemur að skólamálunum erum við að reyna að hlífa skóla- stofunni og spara í hinu. Betri inn- kaup, betri nýting húsnæðis o.s.frv. Þetta er stóra verkefnið og það skiptir máli að virkja þekkingu og reynslu starfsfólksins. Þetta gerist ekki í borgarstjórnarsalnum eða á minni skrifstofu.“ Ekkert miðað við eftir hrun Þannig að það er of mikið af fólki í yfirstjórn borgarinnar? „Nei, við höfum bara ekki efni á að hafa svona mikið af fólki. Alltaf þegar einhver hættir reynum við að endurskipuleggja þannig að ekki þurfi að ráða í staðinn. Við höfum sagt að við viljum sem mest af þessu í gegnum starfsmannaveltu þann- ig að uppsagnir heyri til undan- tekninga og verði fyrst og fremst í tengslum við skipulagsbreytingar. Við megum ekki vera of dramatísk með þetta eins og umræðan vill verða. Þetta er heldur ekki nándar nærri eins og þegar við vorum að ná endum saman eftir hrun. Þegar við tókum við með Besta flokknum þá þurftum við að loka 5 milljarða gati. Þetta eru 1,8 milljarðar.“ 101 borgarstjórn? Stundum hefur núverandi meiri- hluti borgarstjórnar verið gagn- rýndur fyrir að einbeita sér bara að miðbænum og minna að öðrum hverfum borgarinnar. „Ég er úr Árbænum, þannig að kannski er verið að ruglast á einu núlli. Ég er úr 110 og er stoltur af því. Umræðan um 101 og önnur hverfi á sér miklu lengri rætur, held ég. Ég held að það hafi verið tilfinn- ing okkar sem ólumst upp í úthverf- um að þau hverfi sætu eftir. Það tók 30-35 ár að fá almennilegt íþrótta- hús í hverfið. Ég tók þátt í því ásamt öðrum unglingum að sækja fyrsta sementspokann í íþróttahúsið upp á Akranes og hlaupa með hann í bæinn til þess að reyna að skapa þrýsting á borgarstjórn að hugsa um Árbæjarhverfið. Breiðholtið var vanrækt alveg gríðarlega lengi, eiginlega bara skilið eftir þegar það hafði byggst upp. Það gleymdist að gera ráð fyrir sundlaug í Grafarvogi þegar það var skipulagt og byggt. Ég held að ef betur er að gáð, því ég veit að þetta er umræðan oft, þá hafi verið meiri athygli á þessum hverfum heldur en oftast áður í sögu borgarstjórnar. Fyrir utan kannski þann tíma þegar þessi hverfi voru að byggjast upp,“ segir hann og nefnir Breiðholtið sem dæmi. „Eitt stærsta verkefni sem mér finnst við standa frammi fyrir er að búa til umhverfi fyrir næstu kyn- slóðir. Búa til borgarumhverfi sem getur keppt við aðrar borgir sem soga til sín unga fólkið. Ef við eigum ekki borg sem er skemmtileg, áhuga- verð, með húsnæði á viðráðanlegu verði, áhugaverð atvinnutækifæri, og er í þróun sem borg þá held ég að við töpum í þessari samkeppni.“ Grafarvog Við erum með stórt verkefni í pípunum – erum að semja við RVK Studios að gera kvikmyndaver í Grafarvogi. Nánar tiltekið í Gufunesi þar sem gamla áburðarverksmiðjan er. Sumir höfðu talið rétt að fara með kúluna á þessi stóru og gömlu hús en okkur finnst þetta rosalega sjarmerandi. Ég get vel séð fyrir mér að í Gufunesinu, í kringum þetta kvikmyndaver, verði nokkurs konar nýtt þorp skapandi greina. Breiðholt Ég hef kallað Breiðholtið stærsta listasafn landsins eftir að við feng- um myndlistarmenn til að skreyta gafla á húsunum þar. Ég vil halda þessu áfram. Og huga að kjörnunum í þessum hverfum. Hvar eru hverfis- kjarnar sem eru bókstaflega að grotna niður? Einn var í Eddufellinu, en við endurlífguðum hann. Það eru fleiri kjarnar sem hugsanlega mætti endurnýja á svipaðan hátt með því að leyfa uppbyggingu og endur- hugsa svæðið. Granda Sum svæði eiga hvorki að vera íbúðir né hótel. Grandinn er fyrir hafnsækna starfsemi og eitthvað skapandi. Í Köben er þetta kallað creative districts, þá lækkar leigan aðeins og þetta verða aðsetur listamanna, lítilla og meðalstórra fyrirtækja sem eru að gera eitt- hvað nýsköpunartengt. Þannig er Grandinn að þróast á ótrúlega líf- rænan og skemmtilega hátt. Það er ekki tilviljun heldur m.a. vegna þess að við höfum ekki leyft íbúða- né hóteluppbyggingu þar. D ag ur u m Við megum ekki vera of dramatísk með þetta eins og umræðan vill verða. Þetta er heldur ekki nándar nærri eins og þegar við vorum að ná endum saman eftir hrun. f r é t t i r ∙ f r é t t A B L A ð i ð 11f Ö S t U D A G U r 4 . m A r S 2 0 1 6 0 4 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :1 9 F B 0 5 6 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 A 9 -E C B 0 1 8 A 9 -E B 7 4 1 8 A 9 -E A 3 8 1 8 A 9 -E 8 F C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 5 6 s _ 3 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.