Fréttablaðið - 04.03.2016, Síða 16
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis
á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871
fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is og Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is
menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is ljóSmyndir: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
Halldór
Óli Kristján
Ármannsson
olikr@frettabladid.is
Á síðasta ári leitaði rúm milljón flóttamanna skjóls í Evrópu. Langflestir þeirra koma frá stríðshrjáðum ríkjum á borð við Sýrland,
Afganistan, Írak og Sómalíu. En eru milljón flótta
menn margir flóttamenn? Til að svara því er ef til vill
rétt að setja hlutina í samhengi. Samhengið skiptir
máli.
Þegar haft er í huga að í heiminum eru alls um 60
milljónir flóttamanna er milljón ekki svo mikið. Og
heldur ekki þegar haft er í huga að Evrópa er auðug
heimsálfa þar sem eru yfir 700 milljónir íbúa.
En hvað með fjölda flóttamanna á Íslandi? Eru 355
hælisleitendur sem óskuðu hælis hérlendis á síðasta
ári há tala eða talan 700 sem er líklegur fjöldi hælis
leitenda á þessu ári? Þegar haft er í huga að yfir milljón
ferðamenn komu til Íslands á síðasta ári eru 700 hælis
leitendur ekki ýkja há tala. Og kannski ekki heldur
þegar haft er í huga að á síðasta ári komu fleiri ferða
menn til Íslands heldur en leituðu hælis í allri álfunni.
Flestir flóttamenn í eigin landi
Það er vert að undirstrika að flóttafólk er einungis
venjulegt fólk sem hefur lent í óvenjulegum aðstæð
um og að langflestir flóttamenn eru flóttamenn í eigin
landi. Á eftir þeim má nefna þann hóp flóttamanna
leitar skjóls í nágrannaríkjum þar sem aðstæður geta
verið bágbornar. Þar gæti jafnvel verið óstöðugt ástand
í kjölfar vopnaðra átaka sem takmarka getu til að veita
aðstoð.
Sem dæmi má nefna að um þessar mundir búa tæpar
tvær milljónir flóttamanna í smáríkinu Líbanon sem
telur venjulega tæpar sex milljónir íbúa. Af þessum
tveimur milljónum er rúm ein milljón Sýrlendinga.
Það er flóttamannavandi í Evrópu. Vandi sem er til
kominn vegna þess að fólk hefur flúið vopnuð átök
í heimalöndum sínum. En áttum okkur á því að það
eru ekki Evrópubúar sem þurfa að finna fyrir þessum
vanda að neinu teljandi marki. Og hvað þá Íslendingar.
Fólkið sem neyddist til að yfirgefa heimili sín, lífsviður
væri, fjölskyldu og ástvini. Það finnur fyrir vandanum.
Raunverulegir þolendur
flóttamannavandans
Fram kemur í samantekt Fréttablaðsins í gær að laun forstjóra í Kauphöll Íslands hafi á síðasta ári hækkað umfram launavísitölu í landinu. Meðalhækkun launa forstjóranna nam 13,3 prósentum, en meðalhækkun launavísitölu Hagstofunn
ar var 7,2 prósent.
Meðal þeirra sem eru fyrir ofan kúrfu eru formaður
Samtaka atvinnulífsins, sem einnig er forstjóri Ice
landair Group. Svo eru dæmi um aðra sem hækkuðu
miklu meira.
Laun stjórnarmanna skráðra félaga hækka líka
samkvæmt aðalfundartillögum, eða að meðaltali
um 8,6 prósent. Hækkanir þessara hópa, sem teljast
verða með þeim best settu í þjóðfélaginu, virðast
þannig yfir því sem samið hefur verið um á vinnu
markaði almennt.
Í blaðinu er haft eftir Þorsteini Víglundssyni,
framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, að mikil
vægt sé að stjórnendur sýni gott fordæmi þegar komi
að launahækkunum. Og það hafi þeir gert sé horft til
launaþróunar undangenginna ára. „Þeir hafa hækkað
hlutfallslega minna en aðrir launahópar í samfélag
inu,“ segir hann.
En er það í raun svo að gangi upp að horfa á hlut
fallshækkun launa og dæma launaþróunina út frá
því? Prósentuhækkunin vegur nefnilega misþungt
eftir því hvaðan er reiknað.
Ef launamaður með 300 þúsund krónur í laun fær
6,5 prósenta hækkun fara laun hans í 319.500. Kallar
slík hækkun á að laun stjórnanda með 1,8 milljónir
króna taki sömu hlutfallhækkun? Hærri launin færu
þá í ríflega 1,9 milljónir króna, hækkuðu um 117
þúsund krónur á meðan launamaðurinn hækkar um
rúmar 19 þúsund krónur.
Við rúmlega sex prósenta hækkun á hvorum
tveggja vígstöðvum eykst launamunurinn í þessu
dæmi um 97.500 krónur, eða um fimmfalda þá
hækkun sem launamaðurinn með þrjúhundruð
þúsundkallinn fékk í sinn hlut.
Ætlar einhver í alvörunni að halda því fram að
þarna sé um að ræða þróun sem ekki stefnir í óefni?
(Og þó er dæmið sem hér er upp teiknað langt frá því
að vera það versta sem hægt væri að draga upp.)
Væri galið að stinga upp á því að stjórnandinn og
launamaðurinn skiptu hækkununum á milli sín?
Ef þeir væru bara tveir myndi hvor um sig fá 68.250
krónur, en úr því hóparnir á lægri laununum eru
heldur fjölmennari er dæmið aðeins flóknara en svo.
Með tækni nútímans ætti að vera hægt að reikna sig í
átt að meira réttlæti.
Kannski er leiðin sú að ákveða að hækka hvergi
laun meira en nemur hækkun lægstu launa. Í það
minnsta virðist ótækt að halda endalaust úti kerfi
sem byggt virðist upp til að næra græðgi þeirra sem
best eru staddir. Endanlegar upphæðir skipta þá
ekki miklu sem best hafa, en þá sem verst eru staddir
munar um hvern þúsundkall.
Gallað kerfi
Væri galið
að stinga
upp á því að
stjórnandinn
og launamað-
urinn skiptu
hækkun-
unum á milli
sín?
Það er flótta-
mannavandi
í Evrópu.
Vandi sem er
til kominn
vegna þess að
fólk hefur flúið
vopnuð átök í
heimalöndum
sínum.
Atli Viðar
Thorstensen
sviðsstjóri
hjálpar- og
mannúðarsviðs
Rauða krossins á
Íslandi
Nýsköpunarsjóður tónlistar – Musica Nova
Styrkir vegna starfsársins 2016
Sjóðurinn auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki til nýsköpunar í tónlist.
Flytjendur og tónleikahaldarar geta sótt um styrk til að panta tónverk og skal
styrkfjárhæðin aðeins notuð til þess. Umsækjendur ábyrgjast frumflutning
verksins.
Í umsókn skal taka fram:
- höfund tónverks
- tímalengd verks
- flytjendur
- hljóðfæraskipan
- áætlaða tímasetningu frumflutnings
- upphæð sem sótt er um
Þá skal fylgja fjárhagsáætlun verkefnisins sem og ferilskrá umsækjanda
(flytjanda/tónleikahaldara)
Óskað er eftir því að umsóknir berist rafrænt á netfangið
musicanova.iceland@gmail.com
Umsóknarfrestur rennur út á miðnætti, mánudaginn 21. mars 2016
www.musicanova.is
Nýsköpunarsjóður tónlistar er styrktur af
Katrín vænlegur kostur
Katrín Jakobsdóttir, formaður
VG, er að íhuga forsetafram-
boð. Katrín hefur um árabil
mælst sá stjórnmálamaður sem
almenningur ber mest traust
til en þrátt fyrir að njóta mikils
persónufylgis tekst henni ekki
að hífa fylgi VG upp. Andstaðan
við framboð kom á óvart í gær
en það var margt vinstrafólk,
sem lýsti sig andvígt framboði
hennar. Því finnst hún nefni-
lega ómissandi af þingi. Þetta er
svo týpískt fyrir hugsjónafólk
vinstra megin. Það er aldrei
ánægt með neitt og vill frekar
hafa valdalausa konu á þingi
en forseta sem getur vísað til
þjóðarinnar stórum spurn-
ingum um náttúruvernd og
alþjóðamál. Hvar er pláss fyrir
öfugsnúna á hinum pólitíska ás?
Velkominn, skoðanabróðir
Það var á þessum vettvangi á
miðvikudag sem stungið var
upp á að Ásmundur Friðriksson,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins,
gengi til liðs við nýjan flokk,
Íslensku þjóðfylkinguna, því
skoðanir hans á útlendingamál-
um samræmast ekki frjálslyndri
stefnu Sjálfstæðisflokksins. Það
var sem við manninn mælt, nú
hefur Íslenska þjóðfylkingin
boðið Ásmund velkominn með
hliðsjón af fordæmingu félaga
Ásmundar á ummælum hans.
Það skal áréttað hér að hug-
myndin var sett fram í gríni.
snaeros@frettabladid.is
4 . m a r s 2 0 1 6 F Ö s T U D a G U r16 s k o ð U n ∙ F r É T T a B L a ð i ð
SKOÐUN
0
4
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:1
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
A
9
-C
F
1
0
1
8
A
9
-C
D
D
4
1
8
A
9
-C
C
9
8
1
8
A
9
-C
B
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
5
6
s
_
3
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K